Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 14

Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 14
I SKÁLDSÖGUR 40. JÓNSMESSUNÆTURMARTRÖÐ A FJALLINU HELGA eftir Loft Guðmundsson. Metsölubók ársins 1957. — „ . . . Þetta er alvörusaga í gamanstíl. Loftur er mikill og óvenjulegur háðfugl, en hann lætur alltaf skopið, glettn- ina og fyndnina spegla alvöru sína. . . . (bókin) er stór- athyglisvert listaverk." — Helgi Sæmundsson. í lausasölu kr. 150.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 105.00 „ . . . Útgeiðanuaðurinn stöðvaði bifreiðina úti fyrir garðshliði neðst í brekku, en hvarvetna í hallanura gat að líta fjölda upp- ljómaðra húsa og bar þau, er hæst stóðu, við húmljósan hirnin. Strand útgerðarmaður steig út, opnaði afturdyrnar, hjálpaði must- erisgyðjunni niður gangstéttina af mikilli hæversku, sem var í fullu samræmi við brotin í buxunum hans. Siðan opnaði hann fyrir okkur garðshliðið og bauð okkur að fylgja sér, hvað ekki virtist þurfa að segja musterisgyðjunni, systur minni. En . . . okkur varð það á að nema skyndilega staðra. Störðum fyrst á húsið. Því næst hvort á annað. Loks bæði á gestgjafa okkar, Strand útgerðarmann. — Jú, mælti hann og virtist undrun okkar ekki óviðbúinn, eða hafa jafnvel átt hennar von. Þetta er húsameistaranum að kenna eða öllu heldur að þakka. Við fengum að láni teikningar af húsi, sem grískur milljónamæringur, útgerðarmaður eins og ég, lét heimsfrægan húsameistara byggja handa sér einhvers staðar við Miðjarðarhaf. Minn húsameistari gat nokkuð líka; hann var nýkominn heim að afloknu háskólanámi erlendis, þar sem hann hafði hlotið einn frægan heiðurspening, fyrstur erlendra manna. En honum varð það á að líta öfugt á þessa lánsteikningu, og fyrir bragðið snýr það niður á þessu húsi, sem snýr upp á þvi fræga suður við Miðjarðarhaf. Fyrir bragðið hefur mitt hús hlotið ótal verðlaun, en húsameistarinn ungi hefur hafnað glæsi- legustu embættum hjá því opinbera, þar sem hann hefur ekki undan að teikna hús fyrir einstaklinga og græða of fjár.“ Úr bókinni Jónsmessunœturmartröð á Fjallinu helga 3. EGYPTINN eftir Mika Waltari. Sr. Björn O. Bjömsson þýddi. „Einn mesti rithöfundur Finna á vorri öld er Mika Waltari. . . . Hið mikla meistaraverk hans „Egyptinn“ er eitt stórfeng- legasta verk, sem Norðurlönd hafa lagt til heimsbók- menntanna á síðari áratugum. .. . “ — Kristmann Guð- mundsson. í lausasölu kr. 85.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 60.00 „ . . . Nokkrum dögum síðar reið maður nokkur hesti að húsdyrum mínum. Þetta vakti undrun mína, því Kemítar koma aldrei á hestbak og Sýrlendingar mjög sjaldan; það eru bara ræningjar á eyðimörkum, er hestum ríða. Þessi hestur var löðr- andi af svita, og hann var svo móður, að mér ógnaði það. Af klæðum mannsins sá ég, að hann var kominn ofan úr fjöllum; hann var afskaplega æstur og gaf sér naumast tíma til að hneigja sig fyrir mér og snerta ennið á sér með hendinni, en tafsaði þegar: „Láttu færa þér burðarstól þinn, Sinúhe læknir, og flýttu þér með mér, því ég kem frá Amúrrúlandi, og Azírú konunur hefir sent mig eftir þér. Sonur hans er veikur, og enginn veit, hvað að drengnum gengur, en Azírú bölsótast eins og grenjandi Ijón. Flýtir þú þér ekki, sker ég af þér hausinn og sparka honum á undan mér á götunni.“ — „Höfuðlausar verða hendur mínar Azírú að engu gagni,“ svaraði ég manninum. „En Azírú er vinur minn, og þú þarft engar áhyggjur að hafa um það, að ég flýti mér ekki.“ Úr bókinni Egyptinn 8. ÆVINTÝRAMAÐURINN eftir Mika Waltari. Skáldsaga frá Miðöldum, sögð af sömu frásagnarlistinni og skáldsagan „Egyptinn.“ Sr. Björn O. Björnsson þýddi. í lausasölu kr. 98.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 68.00 .....Við fórum svo aftur upp í turnherbergið og þar sór ég eiðinn eftir fyrirsögn pater Angelos. Að því búnu fórum við niður þröngan og brattan stiga í pyndingaklefann, en hann var glugga- laus með hvelfdu lofti; tvö blys brunnu í klefanum til lýsingar. Böðull var þar fyrir með sveini sínum. Þeir voru í fallegum rauð- um fötum, svo sem þeirrar stéttar mönnum er fvrir sett, enda þótt reglurnar banni þeim að vekja sakborningi blóðs eða valda honum örkumlum. Mér lá við ómegini, er ég sá tengumar, þumal- skrúfurnar, stigann er lá á tveimur undirstöðum, kaðalinn sem hékk á hjóli ofan úr hvolfinu, en undir voru þungir steinar með kengjum í. Hinir æruverðugu feður settust þar, sem hverjum fyrir sig fannst einna árennilegast, og þótti átakanlega þæginda- snautt herbergið. Komið var inn með Barböru og var hún náföl og titrandi af angist, en þegar böðullinn hafði, að fyrirskipan pater Angclos, skýrt fyrir henni notkun og verkanir tækjanna, neitaði hún því engu að síður enn, auðmjúk og barnalega, að hún væri sek og sagðist ekki geta játað á sig það, sem hún væri saklaus af. Pater Angelos andvarpaði og sagði meistara Fuchs að hefja rannsókn sína.“ Úr bókinni Ævintýramaðurinn 101. FJÖTRAR eftir W. Somerset Maugham. „Höf. er löngu kunnur sem einna fremsti núlifandi skáldsagnahöfundur Breta. . . . „Fjötrar" er lengsta saga höf., og af mörgum talin eitt mesta og bezta verk hans. . . .“ — Steindór Steindórsson frá Hlöðum. „ í „Fjötrum" segir skáldið nokkuð af sinni eigin ævisögu, en þó miklu meira um sína eigin þjóð. . . .“ — Jónas Jónsson frá Hriflu. Bókin er 472 bls. í stóru broti. Einar B. Guðmundsson frá Hraunum þýddi. í lausasölu kr. 150.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 105.00 „ . . . En um kvöldið, þegar þeir voru farnir að afklæðast, kom drengurinn, sem kailaður var Singer, út úr svefnklefa sínum og rak höfuðið inn til Philips. „Heyrðu, megum við ekki skoða á þér fótinn?" „Nei,“ sagði Philip. 338 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.