Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 19
Ég hló lengi að þessu með fjandann og langömmu hans, fannst
það alveg fyrirtak. Hugsa sér, ef ég settist upp í rúminu, þegar
þau kæmu inn — hann glottandi, hún litlaus og önug eins og
ævinlega og segði:
— Nei, góðan daginn, fjandi og langamma, hvernig líður
ykkur í dag?“
Úr bókinni Skt. Jósefs Bar
B. VEIZLAN A HÖFNINNI
eftir Arne Skouen. Norsk verðlaunaskáldsaga. Brynjólfur
Sveinsson menntaskólakennari þýddi.
í lausasölu kr. 32.50 Til áskr. HEB aðeins kr. 23.00
„ . . . Mjó ræma af gulum sandi lá eftir endilangri ströndinni.
Einar stóð í flæðarmálinu og veifaði, dapur í bragði, út á óra-
vítt Indlandshafið. Hann teygði handleggina svo hátt sem hann
gat og starði eins og bergnuminn út í sjóndeildarhringinn.
Naktir fæturnir mörkuðu djúp spor í gljúpan sandinn. Ekki
bólaði á skipinu, og hann tók að kalla. Svo óð hann út i sjóinn.
Öldurnar brotnuðu um hnén, og hann æpti svo hátt sem hann
gat. Hann var aleinn. Hér sá hann enginn. Röddin brast. Hann
fékk hóstahviður, hendurnar sigu niður á höfuðið, og fingurnir
léku vandræðalega um úfið hárið. Svo sneri hann til lands,
móður og magnþrota. í flæðarmálinu varð honum fótaskortur."
Úr bókinni Veizlan á höfninni
57. SÝSLUMANNSSONURINN
eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Vinsæl ástarsaga sem
lesendur „HEIMA ER BEZT“ þekkja.
í lausasölu kr. 60.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 40.00
„ . . . Sólbjartur vetrardagur ríkir yfir Sæeyri. Ásta situr við
stofugluggann hennar Jónu og saumar í dúk. Henni verður
venju fremur tíðlitið út götuna, sem blasir við augum hennar,
og saumaskapnum miðar fremur lítið áfram. Hjarnið glitrar
í geislum hækkandi sólar, og himininn hvelfist heiður og blár
yfir Sæeyri. Lognkyrrar öldur líða upp að ströndinni og hníga
þar með þýðum, dreymandi niði. Það er orðið langt síðan Ásta
hefur notið þess að horfa yfir Eyrina sína í svona fögrum lit-
brigðum, og útsýnið heillar huga ungu stúlkunnar. Saumarnir
falla niður í kjöltu hennar, hún hallar sér út að glugganum og
horfir út.
Skyndilega tekur hjarta hennar snöggt viðbragð, og blóðið
þýtur fram í kinnarnar. Valur lögregluþjónn gengur eftir götunni
fyrir framan húsið og horfir þangað heim. Ásta snýr sér f flýti
frá glugganum og lýtur yfir sauma sína, en það er um seinan.
Valur hefur séð hana. Hann heldur leiðar sinnar upp götuna
og gegnir skyldustörfum sínum. En gegnum lítinn stofuglugga
horfir ung stúlka á eftir honum með heitri aðdáun. Augu hennar
eru frjáls. Þau getur munaðarleysið ekki fjötrað."
Úr bókinni Sýslumannssonurinn
69. SYSTIR LÆKNISINS
eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur. Dóttir bæjarstjórans
vissi ekki að maðurinn, sem hún elskaði, var hálfbróðir
hennar....
1 lausasölu kr. 68.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 48.00
„ . . . Um nóttina ekur Bragi læknir inn í borgina. Hann er
í fylgd með vini sínum og skólabróður, sem stýrir bifreið þeirra
síðasta spölinn. Þeir eru að koma norðan úr Djúpafirði og hafa
stjórnað bifreiðinni til skiptis þessa löngu leið.
Bragi læknir er á ferð til borgarinnar í einkaerindum og ætlar
að hafa þar skamma viðdvöl að þessu sinni. En vinur hans og
skólabróðir er búsettur í höfuðborginni og kemur norðan úr
Djúpafirði frá því að heimsækja Braga lækni.
Þeir félagar eru komnir inn í miðja borgina og aka fremur
hægt, en skyndilega kemur stór bifreið á mikilli ferð fram úr
bílaþrönginni á móti þeim, og áður en ferðafélagi Braga fær
nokkurt svigrúm, rekast bifreiðarnar saman á feikna kasti. Bragi
læknir kastast fram í glugga bifreiðarinnar, og rúðan brotnar.
Hann hlýtur þungt höfuðhögg og mikinn skurð þvert yfir hægra
úlnlið. Hann missir þegar meðvitund, og blóðið fossar úr sári
hans. Ferðafélagi hans hefir hlotið minni meiðsl og heldur
fullri meðvitund. Lögreglumenn koma þegar í vettvang og gera
viðeigandi ráðstafanir, og láta þegar flytja þá særðu á sjúkra-
hús . . . .“
Úr bókinni Systir lœknisins
51. KJÖRDÓTTIRIN A BJARNARLÆK
eftir Hafstein Sigurbjarnarson. Þessi íslenzka skáldsaga,
sem er fyrsta bók höfundar, var ein af metsölubókum
ársins 1958.
í lausasölu kr. 130.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 91.00
„ . . . Árni Snorrason fór ekki úr fötum nóttina sem Sigrún
var burt flutt. Hann bjóst við henni á hverri stundu alla nóttina.
Svanheiður hafði verið að keppast við að taka saman með fólkinu
þar til er hún þurfti að fara að mjólka kýrnar, og hafði því
enginn á Snorra-búi hugmynd um það sem gerzt hafði þá um
daginn heima á Bjarnarlæk. Þegar frá leið, fór heimilisfólkið
að sakna séra Sigurðar og Sigrúnar, og spurði hver annan, en
enginn gat neitt upplýst. Guðmundur fjósamaður var sá eini
sem renndi grun í það, en var þögull sem gröfin."
Úr bókinni Kjördóttirin á Bjarnarlæk
63. DRAUMURINN
eftir Hafstein Sigurbjarnarson. í þessari nýju skáldsögu
Hafsteins koma fram margar af sömu persónunum sem
voru í „Kjördóttirin á Bjarnarlæk.“ Sagan er byggð á
sannsögulegum atburðum.
í lausasölu kr. 130.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 91.00
„ . . . Síðari hluta þessa sumars var ég að komast í kröggur.
Mér urðu æ ljósari kostir Kristínar og gat ekki annað en metið
hug hennar til mín. Og ekki gat ég lokað fyrir því augunum,
að hún var hispurslaust tekin að bægja Sigurði frá sér. Ég
reyndi að telja mér trú um að það gæti ekki komið til mála, að
ég elskaði tvær stúlkur samtímis. Minningin um samveru okkar
Sigríðar og staðfasta æskuþrá okkar beggja og draumur afa míns
héldu huga mxnum óbreyttum til hennar. Ég margrannsakaði
hug minn og lagði það niður fyrir mér að mín blinda ást til
Sigríðar væri út í bláinn orðið. Hún væri gift og ekki einu sinni
víst að hún bæri hlýjan hug til mín lengur. Þá kom draumurinn
sí og æ fram í huga mér, og ég beit mig í það að eitthvað kæmi
það fyrir, sem leiddi okkur saman að nýju. Ég trúði því og
treysti, að ekkert væri Guði ómáttugt."
Úr bókinni Draumurinn
N. HREKKVÍSI ÖRLAGANNA
smásögur eftir Braga Sigurjónsson. „Höftmdur er orðfær
í bezta lagi, málið kjarngott og sögustíllinn slíkur, að
hann heldur áhuga lesandans vakandi og hæfilegur hraði
á rás viðburðanna. — Bragi hefur auðsjáanlega mikið í
það að geta orðið gott sagnaskáld. Honum dettur marg-
vísleg sagnaefni í hug, og hann hefur þann stóra kost að
vera aldrei leiðinleigur.“ — Benjamín Kristjánsson. (ís-
lendingur.) — „Ekki þarf lengi að blaða í bókinni til að
sjá, að Braga lætur allvel sagnaskáldskapur. Hugmynda-
auðgin er mikil, formið víðast hvar gott og frásögnin ber
yfirleitt vitni um ágæta ritleikni.“ — Jónas Rafnar (Nýj-
ar Kvöldvökur).
í lausasölu kr. 65.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 45.00
„ . . . Hún var ein af þessum sjaldgæfu konum, sem karlmönn-
um finnst ósjálfrátt að muni fara daglega í bað og ganga alltaf
Heima er bezt 343