Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 27

Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 27
haft augun af henni. Þegar veiðilúðrarnir gullu kaus hann hana sem veiðigyðju. Er gestirnir settust á eftir miðdegisverði í lands- uppdráttarsalnum, skorti ekki illkvittnina og bakmælgina. Að þessu sinni var aðdáun keisarans á ungfrú de Montijó svo grímu- laus, að ekki var um að villast, og jafn greinilegt var það, að greifafrúin hylltist til, að þau gætu verið ein. Konurnar voru höggdofa á þessari hylli, sem þeim þótti stór hneykslanleg. Hjónaband kom þeim ekki til hugar, en þær héldu, að Eugenía sæktist eftir því að verða önnur frú Pompadour. Og vera mætti líka, að henni tækist vegna ættgöfgi sinnar og kænsku móður hennar að fá keisarann, sem hún lét sprikla á önglinum, til þess að giftast sér til vinstri handar. En um meira gat ekki verið að ræða. En þetta nægði til þess að auka á gremjuna og hatrið. Er Napóleon var við hlið hennar, þyrptist heil hirð umhverfis þau, en þegar hann, til þess að forða sér frá augnagotunum, vék frá henni, fylgdu allir keisaranum og skildu hana eina eftir.“ Úr bókinni Eugenia keisaradrottning 142. SJÁLFSÆVISAGA BENJAMÍNS FRANKLIN. Ein af merkustu bókum heimsbókmenntanna í þýðingu Guðmundar Hannessonar, prófessors, og Sigurjóns Jóns- sonar, héraðslæknis. „ . . . Þeir, sem lesa þessa ævisögu, eru í góðum félagskap. — Við lestur þessarar bókar kynnast menn heimsfærgum manni. En menn hafa einnig í höndum bók á góðu máli. Fyrir því hefur Guðmundur Hannesson, prófessor, séð. Þessi þýðing var honum hjart- fólgið tómstundastarf, er komið var fram á ævikvöldið.'1 Bókin er 230 bls. í stóru broti. í lausasölu kr. 100.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 70.00 „ . . . Frá því ég var lítill drengur var ég sólginn í að lesa bækur, og öllum þeim fáu aurum, sem ég eignaðist, varði ég til þess að kaupa bækur. Mér þótti gaman að „För pílagrxmsins", og fyrsta bókasafnið mitt var öll rit Jóns Bunyans í litlum, sér- stökum bindum. Ég seldi þau seinna til þess að geta keypt „Sögusafn" R. Burtons. í safni þessu voru lítil og ódýr alþýðu- rit, fjörutíu eða fimmtíu að tölu. Faðir minn átti dálítið bóka- safn en í því voru aðallega deilurit um trúmál. Ég las flest þeirra, en mér hefur oft sárnað það, að ég skyldi ekki rekast á betri bækur á þessum árum, meðan ég brann af þorsta eftir alls konar fróðleik, ekki sízt vegna þess, að nú var hætt við að láta mig læra til prests. Við áttum ævisögur Plutarks, og ég las þær ræki- lega, og ég held enn, að þær hafi komið mér að góðu gagni. Þá áttum við líka bók eftir De Foe, „Hugleiðingar um skipulag", og aðra eftir dr. Mathers „Hugleiðingar um að gera gott“, og þær breyttu ef til vill hugsunarhætti mínum að nokkru og höfðu áhrif á sum helztu atvikin í lífi mínu.“ Úr bókinni Sjálfsœvisaga Benjamins Franklin HANDBÆKUR 4. SKRÚÐGARÐAR eftir Jón Rögnvaldsson garðyrkjuráðunaut. Hér er hand- hæg og fjölbreytt bók handa þeim, sem vilja sjálfir sjá um garðinn kring um húsið sitt. Bókin er prýdd fjölda mynda og skipulagsuppdrátta. í lausasölu kr. 34.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 24.00 „ . . . Er koma skal upp skrúðgörðum ber þegar í byrjun margs að gæta. 1 fyrsta lagi verður jarðvegurinn að vera sæmilegur, ef góður árangur á að fást. Heppilegasti jarðvegurinn til garð- ræktar er leir- og sandblandin moldarjörð, hæfilega rök. Óheppi- legan jarðveg verður að bæta með húsdýraáburði og aðfluttri mold. En það mun sjaldan vera nauðsynlegt, enda naumast gerlegt, nema um smágarða sé að ræða. Hins vegar mun alloft vera þörf á að framræsa garða hér á landi, og sé þeim komið upp á bersvæði, geta skjólgirðingar verið mjög gagnlegar fyrir kulda eða stormasömustu áttum, en um þessi atriði mun síðar verða rætt nánar. Þá er og nauðsynlegt, er garðstæðið hefir verið ákveðið, hvort heldur t. d. umhverfis lítið fjölskylduhús í kaupstað, stærri bygg- ingu í sveit, eða yfirleitt hvers konar byggingu sem er, að gera sér ljóst, hvað á að gera með garðinn. Hvort tilgangurinn er einungis sá, að rækta sem flestar skrautjurtir, tré eða runna, er við verður komið. Eða hann er helzt ætlaður sem leikvöllur fyxrir börn og fullorðna. Ef til vill á líka að nota hann til alls þessa, eða enn annars." Úr bókinni Skrúðgarðar 28. STOFUBLÓM eftir Ingólf Davíðsson. Handhæg bók fyrir íslenzkar hús- mæður. Bókinni er skipt í 20 kafla, er fjalla um rækt- unarskilyrði, jarðveg, mold, áburð, gróðursetningu, sjúk- dóma o. s. frv. 1 bókinni eru um 155 myndir. Skrá yfir tegundaheiti á íslenzku og latínu. Lýsing á 4. hundrað tegunda stofublóma. í lausasölu kr. 90.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 63.00 .....Vökvunin er mjög mikilvægt atriði. Vökvunarvatnið ætti ekki að vera ískalt, heldur aðeins ylvolgt. Heitt á það ekki að vera. Regnvatn er auðvitað ágætt. Ekki er þægt að gefa neinar ákveðnar reglur um það, hve oft eða mikið skal vökva. Það er mjög háð ýmsum skilyrðum, og verða menn að læra það af reynzlunni. En vökva skal vandlega í hvert skipti, svo að öruggt sé, að öll moldin blotni. Ef vatnið hripar strax niður úr pottinum viðstöðulaust, er það vottur þess, að moldin hefur verið gegnþurr. Má þá láta pottinn standa dálitla stund í vatni, svo að moldin geti drukkið í sig raka. Minna þarf jafnan að vökva á vetuma en á sumrin. Jurtir í sólarglugga þurfa auð- vitað meira vatn en þær, sem standa í skugga eða við norður glugga. Eins þarf meiri vökvun í sólskini en í dumbungsveðri. 1 sólskini þarf jafnvel að vökva blaðmiklar jurtir tvisvar á dag. 1 sterku sólskini getur verið til bóta að skyggja á pottana sjálfa, svo að moldin í þeim og ræturnar þorni og hitni ekki um of.“ Úr bókinni Stofublóm 21. ÍSLENZK MALFRÆÐI eftir dr. Halldór Halldórsson prófessor. Efni bókarinnar er miðað við þær kröfur, sem nú eru gerðar í miðskólum og gagnfræðaskólum um nám í íslenzkri málfræði. í lausasölu kr. 55.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 39.00 .....Öruggasta einkenni til þess að þeklija sagnorð er það, að þau tiðbeygjast. í setningunni drengurinn les greinir orðið les ekki aðeins frá verknaði drengsins, heldur einnig frá þvi, að þessi verknaður gerist nú. Þetta verður greinilegt, ef setningunni er breytt og sagt drengurinn las. Las táknar sama verknað og les, en í hinni nýju setningu felst, að verknaðurinn sé um grað genginn. Orð- myndin les er nútíð, en orðmyndin las er þátíð. Báðar orðmynd- irnar eru af sömu sögninni, að lesa. Að lesa er nafnháttur. Nafnhátt sagna má þekkja á því, að hann endar venjulega á Heima er bezt 351

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.