Heima er bezt - 01.09.1960, Page 28
-a eða -á. Framan við nafnhátt má setja orðið að. Þetta að kallast
nafnháttarmerki. Sagnorð eru einu orðin, sem tiðbeygjast.“
Úr bókinni íslenzk málfrceði
13. SETNINGAFRÆÐI
eftir dr. Halldór Halldórsson prófessor. Þessi kennslubók
í setningafræði og greinarmerkjasetningu er ætluð sömu
nemendum og málfræðin, eða nemendum á svipuðu stigi.
Dr. Halldór hefur mikla reynslu í því að kenna íslenzka
málfræði, og þykir öll framsetning hans afburða skýr og
auðskilin.
í lausasölu kr. 40.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 28.00
„ . . . § 135. Stundum er nauðsynlegt að auðkenna sérstök orð
eða orðasambönd á einhvern hátt. Vel fer á því að nota gæsa-
lappir í þessu skyni framan og aftan við orð, sem notuð eru í
óvenjulegri merkingu, framan og aftan við orð eða orðasambönd,
sem skýra merkingu þess, sem áður er komið, framan og aftan
við erlend orð eða orðskrípi, sem af einhverjum orsökum þykir
erfitt að komast hjá að nota. Skulu nú sýnd dæmi um þetta allt.
Dœmi: Kyrrð var og friður úti í eyjunni, eins og „eyjarskeggjar"
hefðu tekið á sig óvenjulegar náðir. — Orðtakið að hrökkva upp
af merkir „að deyja“. — Mikið er nú rætt um „atóm“ og „atóm-
orku“. — Margir segja nú „stæll“, en ekki stíll.
Til þess að auðkenna einstök orð og orðasambönd má oft nota
undirstrikun í ritmáli og skáletur á prenti.
Dcemi: Orðin hurðaráss og liurðáss eru alltaf í fornritum. — Af
orðtakinu fœra út kvíarnar er til afbrigðið fcera sundur kvíarnar."
Úr bókinni Setningafrœði
5. LÍF OG JATNING
eftir Vald. V. Snævarr fyrrum skólastjóra. Höfundur er
löngu þjóðkunnur maður fyrir brennandi áhuga á krist-
indómsmálum. Hér er prýðilegt kver handa fermingar-
bömum, fagurlega myndskreytt.
í lausasölu kr. 15.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 10.00
„ . . . „Allir hlutir verða að eiga orsök." — Frumorsök alls
hins skapaða er Guð. Hann er ósýnilegur og ótakmarkaður andi,
sem vér getum hvorki mælt né þreifað á. En hann hefir ekki
látið sig án vitnisburðar, hvorki hið ytra í náttúrunni, né hið
innra í sálum mannanna. Sköpunarverkið ber skaparanum vitni,
líkt og húsið sýnir hugsun byggingarmeistarans, og hjarta manns-
ins er órótt, unz það finnur hvíld í Guði (Ágústínus). Þrá eftir
Guði er manninum lögð i brjóst. — Öllum þrám mannshjartans
er svarað. Mannin þyrstir, — svaladrykkur veitist honum. Manninn
hungrar, — fæða er honum gefin. Mannshjartað þráir Guð, —
þeirri þrá er einnig fullnægt: — Guð er til, — og allir, sem hans
leita, finna hann, sumir fyrr, sumir síðar, en allir að lokum.“
Úr bókinni Líf og játning
12. GUÐ LEIÐIR ÞIG
eftir Vald. V. Snævarr. Kristin fræði handa ungum
börnum. Bókin er tileinkuð íslenzkum mæðrum, því að
þær hafa „svo öldum skiptir, verið fyrstu kennarar bama
sinna í kristnum fræðum.“
í lausasölu kr. 15.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 10.00
„ . . . Þegar mamma og pabbi eða hver sem er, hefir gjört
eitthvað fyrir þig og verið þér góður, þá þakkar þú þeim að
sjálfsögðu fyrir þig með orðum, enda er það auðvelt. En bezt
og fullkomnust er þökkin, ef þú reynir að gleðja þá, sem þig
hafa glatt, og helzt fleiri. Þið gleðjið pabba og mömmu, ef þið
eruð góð og hlýðin og vingjarnleg við alla. Mömmu og pabba
þykir svo vænt um það.
Og — Guði má ekki gleyma. Hann gjörir svo mikið fyrir okkur
öll. Hann er okkur svo góður. Honum eigum við að þakka mest
og bezt.
En hvernig getum við sýnt Guði þökk í verki? Með því, að vera
góð og hlýðin börn. Hann segir: „Hlýðni er betri en fórn.“
Og Guð segir ennfremur: „Heiðra skaltu föður þinn og móður
þina."
Úr bókinni Guð leiðir þig
G.-VEFNAÐARBÓK
eftir Sigrúnu P. Blöndal. Vefnaðarbókin er not'uð sem
kennslubók í öllum húsmæðraskólum.
í lausasölu kr. 30.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 21.00
„ . . . í sléttum, munstruðum dúkum skiptast á ólíkar grunn-
bindingar. Er þá bindingin samsett, eins og áður er sagt. Ein
aðalgrein þessarar vefnaðartegundar eru dreglar. Að vísu eru
ýmsar vefnaðartegundir aðrar nefndar dreglar, eins og síðar mun
vikið að, af því að þær eru ofnar et'tir dregilmunstrum, en hinn
eiginlegi og upprunalegi dregill er vefnaður, þar sem grunn-
bindingin er ormeldúkur, og munstrið myndast með því að
nota á víxl band- og þráðarormeldúks-bindingu í hinum ýmsu
köflum munstursins. — Þessi samsetta binding veldur ljósbrigðum
á hinum slétta, einlita fleti dregilsins, svo að munstrið sést
greinilega, þó að uppistaða og ívaf sé samlitt og úr sama efni."
Úr bókinni Vefnaðarbók
TIL FRÓÐLEIKS OF SKEMMTUNAR
37. MANNAFERÐIR OG FORNAR SLÓÐIR
eftir Magnús Björnsson á Syðra-Hóli. „í þessari bók segir
einkum af nokkrum Húnvetningum, sem uppi voru á 18.
og 19. öld. . . . Magnús á Syðra-Hóli hefur skrifað margt
um dagana . . . en Mannaferðir mun vera fyrsta bókin,
sem hann hefur einn gert. Þar er skemmst af að segja, að
þessi húnvetnski bóndi er í senn góður fræðimaður og
prýðilegur rithöfundur. .. .“ — Bjarni Benediktsson frá
Hofteigi.
I lausasölu kr. 130.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 91.00
„ . . . Það stuðlaði margt að því, að drykkfeldni séra Eggerts
fór vaxandi. Margir sóknarmanna hans voru gefnir fyrir drykk-
inn og ósparir á að veita, ef þeir áttu á glasi. Vín var veitt í
hverri veizlu og oft drukkið ósleitilega. Það var ódýrt þá og
auðvelt að ná í það, prestur oft á ferðalögum, einatt þreyttur
og ekki vel til reika og taldi sér þörf kraftmikillar hressingar.
En hann þoldi ekki vel drykkinn og er af honum rann bjó hann
við vanlíðan margs konat og hafði þörf fyrir hjúkrun og um-
hyggjusemi, er ekki var í té látin. Varð honum þá oft fyrir að
bergja enn á veigum til að herða sig upp gegn áhrifum þeirra,
er þó rændu hann heilsu og þreki. Ragnhildi prestskonu líkaði
stórum illa drykkjuskapur manns hennar. Henni skildist fljótt,
að til lítils komu ákúrur og umvandanir, enda brá hún meir á
þyrrking og þurrakulda er bóndi hennar kom ölvaður heim,
sem var ærið oft. Þau voru næsta ólík að skapferli, hann glettinn
og stríðinn og skaut stundum örvum að konu sinni, en hún þoldi
illa, alvörugefin og siðavönd og leit nokkuð á sig.“
Úr bókinni Mannaferðir og fornar slóðir
70. HRAKHÓLAR OG HÖFUÐBÓL
eftir Magnús Bjömsson á Syðra-Hóli. í þessari nýju bók
Magnúsar á Syðra-Hóli eru ellefu sagnaþættir. Má þar
nefna þættina Ásverjar í Vatnsdal, Jónas í Brattahlíð,
Holtastaða-Jóhann, Bjöm á Brandsstöðum og Húsfrú
Þórdís. Aftan við bókina er nafnaskrá.
í lausasölu kr. 168.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 120.00
„ . . . Það bar til í janúarmánuði 1800 að nokkrir menn,
beggja vegna Blöndu, sammæltust að verða samferða suður í ver.
352 Heima er bezt
I