Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 29
1 ákveðinn tíma lögðu þeir upp og fóru „fyrir framan“ úr Svínadal ofan í Vatnsdal. Er þeir komu um Ás, sáu þeir mann- þyrpingu þar á hlaðinu og sýndist ekki betur en sýslumaður væri þar einn i hópnum, einkennisklæddur. Af því töldu þeir víst að eitthvað stæði til í Ási, gerðust forvitnir og fýsti að vita, hvað þar væri um að vera. Þeim kom saman um að ganga heim. Það reyndist orsök til mannsafnaðarins á Áshlaði, að þar skyldi upp- boð haldið og seldur Ás, gömul konungsjörð og fyrr og síðar talin ein bezta bújörð í Vatnsdal. f vermannahópnum var maður einn á þrítugsaldri, mikill að velli og vörpulegur. Guðmundur hét hann Halldórsson. Hvort sem var af rælni eða Guðmundi rann hugur til jarðarinnar, þá tók hann að bjóða og varð skjótt hæstbjóðandi er hann nefndi átta hundruð ríkisdali. Það var mikið fé í þá daga, mun hafa svarað til sextíu kúgilda eftir þess tíma reikningi.“ tír bókinni Hrakhólar og höfuðból 7. FORNAR GRAFIR OG FRÆÐIMENN eftir C. W. Ceram. „Þessi bók hefur að maklegleikum farið sigurför um hinn menntaða heim. . . . “ — Krist- mann Guðmundsson. — „. . . Það var raunar engin furða þó bókin næði hylli almennings um allan heim, því hún fjallar um efni, sem í augum margra er ævintýralegt og „spennandi“ og svo er bókin listavel rituð. . . . Það er engum vafa bundið, að „Fornar grafir og fræðimenn,“ er einhver bezta skemmtibók sem völ er á... . “ — Einar Ásmundsson. Bókin er ríkulega myndskreytt. Sr. Björn O. Björnsson þýddi. í lausasölu kr. 150.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 105.00 .....Carter og Carnarvon voru sem steini lostnir fyrst í stað, er þeir litu óhindraðir á öll þessi auðæfi, og það var ekki fyrr en seint og síðarmeir, að það rann upp fyrir þeim, að i fjársjóða- safni þessu sást hvorki líkkista né smyrlingur. Aftur reis upp í huga þeirra spurningin um, hvort hér væri í raun og veru um grafhýsi að ræða eða felustað aðeins. Þeir tóku að líta fastar á veggina og sáu þá, að á milli varðmannanna konunglegu voru þriðju innsigluðu dyrnar. „Og fyrir hugskotssjónum okkar flögraði mynd af herbergi inn af herbergi, hvert um sig yfirfullt af dýrgripum því líkum, sem við þegar höfðum séð. Og við, n;rrri því að segja, gripum andann á 1ofti.“ Callender kom nú fyrir sterkum rafmagnsljósum, og 27. desember rannsökuðu þeir þessar þriðju innsigluðu dyr. Þá sáu þeir, að lítið gat hafði verið gcrt á hurðina, niður undir gólfi, endurfyllt og endurinnsiglað. Ræningjarnir höfðu þá samt verið komnir svona langt. En hvað var hinum megin? Væri smyrlingur þar, var hann þá heill og ósnortinn? Hér var sjónarsvið dular- fullra athafna til forna. Bar hvorutveggja til, að herbergisskipun var frábrugðin því, er tíðkaðist um grafhýsi, og hitt, hvað því gat valdið, að ræningjamir voru að baka sér þá fyrirhöfn að gera gat á þriðju innsigluðu dyrnar, áður en þeir hirtu fjár- sjóðina í herberginu, sem þeir höfðu frjálsan aðgang að. Að hverju voru þeir að leita, þessir menn, er ekkert skeyttu um gull og gersemar?" Úr bókinni Fornar grafir og frœðimenn 61. GRAFIR OG GRÓNAR RÚSTIR eftir C. W. Ceram. Bók þessi fjallar um líkt efni og „Fornar grafir og fræðimenn": ævintýraríka baráttusögu fornleifafræðinga til að leiða í ljós horfnar hámenningar, sem almenn sagnfræði nær ekki til — svo og árangur þeirrar baráttu — hér allt sýnt í myndum með andríkum skýringum. Bókin er í stóru fjögurra blaða broti, prýdd 310 ljósmyndum og 16 myndasíðum í eðlilegum litum. Þetta er einhver glæsilegasta bók sem gefin hefur verið út á íslandi. Sr. Björn O. Björnsson þýddi. í lausasölu kr. 380.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 270.00 „ . . . Fyrstu dæmin um list Mexíkó-manna, sem komu til Norðurálfunnar, vöktu nokkurt uppnárn vegna þess hve undarleg þau þóttu og sakir efnisíburðar. Hins vegar voru lærdómsmenn ósnortnir, því að þeir voru ónæmir fyrir öllu, á listmunasviði, sem ekki var af grísk-rómverskum uppruna, þvi að þá voru augu þeirra nýopnuð gagnvart mikilleika klassiskrar listar. Montezuma sendi Cortesi töluvert af gjöfum út í skip hans. Þær af gjöfunum, sem Spánverjum fannst mest til um, voru í augum Aztekanna ekki svo mikils virði. Menn Cortezar stóðu sem steini lostnir yfir gull- og silfur-skjöldum sem voru á stærð við vagnhjól, en Aztekar lögðu miklu meira upp úr fjaðraskartgripum sínum. Og sannarlega ekki að ástæðulitlu. Á hinni síðunni er sýndur höfuðbúnaður, sem útþaninn er 1.70 m á breidd og var meðal gjafa þeirra sem Montezuma sendi Cortezi árið 1519. Ein af elztu lýsingum grips þessa hljóðar svo: „Serkneskur hattur úr löngum, fallega löguðum, glitrandi fjöðrum, grænleitum og gullnum að lit, sem koma fram undan hvítum, rauðum og bláum fjöðrum með gullnum rósum og doppum, en spöng undir öllu saman, úr skíru gulli, sem fellur að enninu." Hér um bil allar löngu fjaðrirnar voru teknar af fugli sem að jafnaði státar ekki með fleiri en tvær slíkar fjaý'rir í stélinu. Þegar við svo hugleðum að í höfuðbúnaðinum eru um 500 slíkar fjaðrir, þá fer að renna upp fyrir okkur að skartgripur þessi sé ekki svo lítilla peninga virði, enda muni hann ekki hafa verið ýkja algengur." Úr bókinni Grafir og grónar rústir Heima er bezt 353

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.