Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 35
inni eru margar myndir bæði af heimsmeisturum í þunga-
vigt og einnig frá keppnum um heimsmeistaratitilinn.
í lausasölu kr. 15.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 10.00
„ . . . Það leið alls eitt ár, þá komst heimsmeistaratignin aftur
í hendur Bandaríkjunum. Það var í júní 1933, sem Carnera
flutti heimsmeistaratignina til ítalíu, með því að slá Jack Sharkey
út, og í júní 1934 missti hann hana í hendur hinnar nýju amerísku
hnefaleikastjörnu í þungavigt, sem var Max Baer, hrokkinhærður,
drýldinn og orðhvatur garpur frá Omaha, fæddur 1909 og af
þýzkum Gyðingaættum.
Max Baer hafði verið kunnur hnefaleíkari í þungaflokki í
nokkur ár og varð hin stóra von Ameríkumanna, er hann í júní
1933, um svipað leyti og Camera tók titilinn af Sharkey, vann
glæsilegan sigur á Þjóðverjanum Max Schemling. Hann sló
Schmeling út í 9. lotu og Baer sýndi slíka högghörku og sóknar-
hug, að hann varð á svipstundu eftirlætisgoð almennings."
Úr bókinni 7 — 8 — 9 — Iinock — out —
154. JAZZ-STJÖRNUR
Æviágrip þekktustu manna á sviði jazz-hljómlistarinnar,
ásamt myndum af þeim.
í lausasölu kr. 15.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 10.00
„ . . . Louis Armstrong. Daniel Louis Satchmo Armstrong er
fullt nafn hans. Hann er tíðum nefndur konungur trompetleik-
aranna. Einnig hefur hann hlotið frægð sem söngvari. Fæddur
4. júlí 1900 í New Orleans. Byrjaði á unga aldri að leika í
hljómsveitum. Eftir að hann hafði leikið með hljómsveit Fate
Marables, hélt hann til Chicago kringum 1920 með hinni frægu
hljómsveit King Olivers. Síðan lék hann með Fletcher Henderson,
Erskine Tate og Carroll Dickerson hljómsveitunum. í nóvember
1925 kom hann á fót sinni eigin hljómsveit, sem lék inn á plötur
fyrir Okeh-fyrirtækið, og voru þar á meðal sumar frægustu jazz-
plötur, sem leikið hefur verið inn á enn þann dag í dag. —
„Tight Like This“, „Save It Pretty Mama“, „West End Blues“,
„Weather Bird", „Basin Street Blues", 12th Street Rag“ og
„Muggles" eru einungis fáar af hinum mörgu dásamlegu plötum,
sem hann hefur leikið inn á. Louis hefur ferðast tvisvar til Evrópu
og stjórnar enn stórri hljómsveit í Bandaríkjunum."
Úr bókinni Jazz-stjörnur
FERÐAlíÆKUR
16. FLOGIÐ UM ÁLFUR ALLAR
eftir Kristínu og Arthur Gook. „Ferðasaga Gooks-hjón-
anna . . . heldur athygli lesandans vakandi frá upphafi til
enda. Þau segja frá mörgum skemmtilegum atvikum og
margan fróðleik er að finna í frásögn þeirra. Bókin er
fjörlega rituð á látlausu en góðu máli og prýdd rúmlega
40 myndum, sem þau hjónin tóku á ferðalaginu. . . .“ —
Þorsteinn Jónatansson.
í lausasölu kr. 98.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 68.00
„ . . . Einu sinni fylgdi Arabi okkur heim að kvöldlagi. Búð-
irnar voru enn þá opnar, og ég minnist á það við Kristínu, er
við nálgumst ávaxtaverzlun, að við þyrftum að kaupa okkur
ávexti. „Ég skal gera það fyrir ykkur", segir Arabinn, „en ekki
í þessari búð. Þeir hafa séð til ykkar og munu vita, að ég er að
kaupa fyrir ykkur. Standið þið hér bak við þessar súlur, svo að
þið sjáizt ekki, en ég skal ganga í aðra búð skammt frá.“ Við
gerðum eins og hann sagði, en með því að gægjast á milli súln-
anna, sáum við til hans. Fjörugar umræður hófust milli hans
og kaupmannsins, báðir böðuðu höndunum út í loftið og töluðu
í ákafa. Þetta gekk um stund, unz bardaginn hætti eins snöggt
og hann byrjaði. Kaupmaðurinn setti ávextina í bréfpoka og
kvaddi brosandi með mestu virktum. Þegar ég sá í pokanum
heilmikið af vínberjum, banönum, eplum og appelsínum, spurði
ég, hvað allt þetta kostaði. „Mig langar sjálfan til að greiða það,“
segir vinur okkar. Ég þakkaði honum fyrir og bætti við: „En það
verður okkur til leiðbeiningar, ef við vitum, hvað við eigum að
borga fyrir slíkt. Viltu ekki segja mér, hvað þú greiddir?" Þegar
hann sagði mér verðið, var það svo sem einn fimmti hluti af
því, sem við höfðum áður borgað fyrir ávexti!"
Úr bókinni Flogið um álfur altar
60. PÍLAGRÍMSFÖR OG FERÐAÞÆTTIR
eftir Þorbjörgu Ámadóttur hjúkrunarkonu. Þorbjörg
hefur ferðast víða og lýsir því, sem fyrir augun ber, bæði
erlendís og hér heima. „Pílagrímsförin“, sem hún nefnir
svo, var farin til Rómaborgar, en auk þess eru þættir frá
Bláu ströndinni, Flórenz, Assisi, Capri, Sienna, Mílanó,
Feneyjum, París, Kaliforníu, Panama, New York og Nor-
egi. Síðari hluti bókarinnar nefnist „Fótgangandi um fjöll
og byggð“ og skiptist í eftirfarandi kafla: Landið okkar,
Mývatnsheiði, Bárðardalur, Sellönd, Myndir í Ásbyrgi,
Á ferð og flugi. Tólf ljósmyndasíður prýða bókina, auk
þess sem listakonan Toni Patten hefur gert teikningar
við hvern kafla.
í lausasölu kr. 130.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 91.00
„ . . . Lyon er mikill iðnaðar- og verzlunarbær. Einkum er þar
mikill silkiiðnaður. Þar er og annar stærsti háskóli Frakka, söfn
og fagrar byggingar. Svo og fornmenjar, sem Rómverjar létu eftir
sig, rústir af leikhúsi og böðum. Og í Lyon fæddust Claudius og
Caraculla, sem síðar urðu keisarar Rómverja.
Vagninn ók okkur heim að gistihúsinu. þar sem okkur var
búinn náttstaður. Við matborðið spurði yfirþjónninn okkur,
hverrar þjóðar við værum. Til frekari skýringar á þjóðerninu
minntist ég á bók Pierre Lotis, Á tslandsmiðtim. Einnig fór ég
eitthvað að reyna að segja frá minnismerkjum þeim, sem reist
hefðu verið dr. Charcot hér heima. Fór nú yfirþjónninn að sinna
öðrum gestum, en liflu síðar vék hann sér að borði okkar, hallaði
sér fram og sagði lágt og virðulega: „Amundsen," og hvarf á ný
í annir sínar. Var auðsætt, að hann áleit Amundsen í ætt við
okkur og vildi nú launa það, sem minnst hafði verið á dr.
Charcot."
Úr bókinni Pilagrimsför og ferðaþcettir
159. EINN A BÁTI UMHVERFIS HNÖTTINN
eftir Joshua Slocum. Fátt segir af einum, segir gamalt
máltæki, og oft voru helzt horfur á því, að það sannaðist
á Joshua Slocum, skipstjóra, höfundi þessarar bókar.
Hann lagði í hnattsiglingu fyrir rúmlega hálfri öld á
lítilli skútu, einn síns liðs, og var oft hætt kominn. í þess-
ari bók segir frá helztu ævintýrunum, sem Slocum lenti í
á ferðalaginu. Á hverri síðu segir hann frá einhverju
Heima er bezt 359