Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 40

Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 40
Sérstæð hús í bjarka- og blómakerfi bera vott um kærleikshug til þín. Gil þín, hvammar, lækir, lystigarðar laða til þín margan sumargest. Hér er sem við heyrum Eyjafjarðar hjartslátt, þegar okkur líður bezt.“ Úr bókinni Ljóð af lausum bluðum L. UNDIR SVÖRTULOFTUM, LJÓÐ 1954 eftir Braga Sigurjónsson. 96 bls. í Skímisbroti. — „Undir Svörtuloftum er þriðja bók Braga Sigurjónssonar og sú bezta. Höf. er sífellt að vaxa ásmegin til að glíma við stærri viðfangsefni. Það er erfitt að spá um framtíð rita, en sennilegt þætti mér þó, að mörg kvæðanna í þessari bók muni lengi lifa í íslenzkum bókmenntum.“ — Steindór Steindórsson frá Hlöðum (Laugard.bl.). — „Þá er aldarminning Stephans G. Stephanssonar eigi síður svipmikið kvæði, bæði um þróttmikla hugsun og mál- kynngi, og megum við íslendingar vestan hafs vera skáld- inu þakklátir fyrir að hafa rist öndvegisskáldi okkar jafn- glæsilega minningarún.“ Richard Beck (Heimskringla). í lausasölu kr. 65.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 45.00 TÍMARIT 1. HLÍN, ÁRSRIT ISLENZKRA KVENNA Ritstjóri Halldóra Bjarnadóttir. Fyrstu fjórir árgangar „Hlínar“ hafa löngu verið ófáanlegir, en eru nú til end- urprentaðir, í einni bók. í lausasölu kr. 30.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 21.00 Auk þess er hægt að útvega áskrifendum HEB marga af nýrri og eldri árgöngum „Hlínar“ við mjög vægu verði. Með léttan mal og lítinn farareyri úr lands og þjóðar hélztu Mjóadal, en þér var gefin önnur eign og meiri en auga féglöggt sér í pyngju og mal. Og þótt þú hyrfir landalaus frá ströndum, svo laukstu þinni æviför af höndum, að kannske hefir enginn íslendingur eignast stærra jarðatal." Úr bókinni Undir svörtuloftum, ljóð 1954 M. Á VEÐRAMÓTUM, LJÓÐ 1959 eftir Braga Sigurjónsson. 112 bls. í Skírnisbroti. — „Full- yrða má, að mörg ljóða þessara eru mjög haglega gerð. Enda er það sýnilegt, að maður, sem yrkir jafnmikið og Bragi, gerir það ekki af tildri, heldur þörf og ástríðu — “. — Bjartmar Guðmundsson (íslendingur). — „Bragi er góður leiðsögumaður og bendir okkur á fegurð landsins og göfgi mannsins. Frásögn hans er létt og leikandi og á yndislega fögru máli------— Sigurjón Jónsson (Vísir). — „í ljóðum þessum er mikill auður náttúruunaðar og ljúfra endurminninga og víða frábær myndvísi." — Helgi Valtýsson (Dagur). 1 lausasölu kr. 75.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 50.00 „ . . . Man ég vordaga, mjúkur var túnsmári undir berum barnsfótum í blóði morguns. Gall gaukur í heiði, glamaði stelkur í mýri. Þá var fögur sólarsýn. Man ég ársumur, undir fögrum laufkrónum las ég mér lífdaggir úr liljum vallar. Léku silungabörn á silfurflúðum áa. Unaðsdrykkur var hvert andartak." Úr bókinni A veðramótum, ljóð 1959 „ . . . Því er það trú mín, að enginn sje allur maður með út- lendri þjóð. Útlendingurinn er misskilinn og hann misskilur aðra. Hann nýtur sfn ekki að fullu og getur því ekki ávaxtað sitt pund eins og hann hefur þegið hæfileika til. Þetta finnur hann sjálfur og verður óánægður með tilveruna og starfsþrek hans lamast. Jeg vil, að sem flestir Islendingar fari utan og fái kynni af þeim þjóðum, sem framar oss standa að menningu, en jeg vil að þeir komi allir aftur og flytji með sjer framför og umbætur og innleiði hjer alt nýtt, sem við getur átt og gott talist. Jeg ber enga virðingu fyrir þeim íslendingi, sem flýr land og þjóð, af því hann þorir ekki að horfast í augu við erfiðleikana, en heldur að hann geti orðið meiri maður með annarri þjóð. Það er heldur ekki mest i það varið, að einstakir fslendingar verði dýrðlegir með útlendri þjóð, takmarkið er að íslenska þjóðin verði stórþjóð á Islandi." Kristbjörg Jónatansdóttir. Hlín, 1. árg. 1917. Úr tímaritinu Hlin, ársrit islenzkra kvenna HEIMA ER BEZT ■ ■ -■ ' Ennþá eru allir eldri árgangar „Heima er bezt“ fáanlegir (að því undanskildu, að í þriðja árgang vantar tvö hefti: nr. 7 og 12). Verð hvers árgangs er kr. 80.00. 364 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.