Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 42

Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 42
Prentsmiðja Odds Björnssonar, Aðalstrœti 17, Akureyri. Myndin er tekin við konungskomuna 1907. heims og vann þar um skeið; kom aftur heim til ís- lands og vann á ný í prentsmiðju Odds. Hann er nú látinn. Jakob var fyrsti lærlingur hjá Oddi í prentlistinni. Hann lauk námi eftir tilskilinn tíma. Eg átti að snúa mér til hans, með vandræði mín að húsbóndanum fjar- verandi. Við Jakob urðum mestu mátar, og mun vin- átta okkar haldast, að öllu forfallalausu til endadægurs. Hjónin María Jónsdóttir frá Staðartungu og Kristján Nikulásson frá Hólkoti í Hörgárdal, söðlasmiður og lögregluþjónn innbæjarins, voru foreldrar Jakobs. Heimili hans var suður í Fjöru, í svokölluðu Matthías- arhúsi. Auk þess, sem hann var efnilegur nemandi, jafnvígur á prentun sem setningu, var hann mjög lip- ur íþróttamaður. Hann kom síðar mikið við sögu prent- listarinnar á íslandi. Þau þrjú árin, sem ég nam og vann í prentsmiðju Odds, minnist ég sérstaklega Arngríms Ólafssonar, Péturs Ásgrímssonar og Ingólfs Jónssonar. Foreldrar Amgríms voru hjónin Jórunn Jóhanns- dóttir frá Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal, föðursystir þeirra þekktu bræðra, Jakobs og Jóhanns Tryggvasona, og Ólafur Jónsson frá Hallgilsstöðum í Hörgárdal, gagn- fræðingur frá Möðruvallaskóla; síðar bæði barna- og sundkennari. Arngrímur kom frá Ytra-Hvarfi í prent- smiðjuna um áramótin 1904—1905. Hann var að miklu leyti alinn þar upp hjá afa sínum og ömmu. Fundum okkar Amgríms bar ekki fyrst saman í prentsmiðjunni, sem telja hefði mátt eðlilegast, heldur var það í boði hjá Björnssons-hjónunum, sem þannig vom nefnd, og var þá átt við þau frú Ingibjörgu og Odd Björnsson, húsbónda minn. Heimili þeirra var þá í húsi sunnan við þáverandi Akureyrarkirkju og trjágarð þann, sem Jón Chr. Stephánsson, smiður, faðir Svövu leikkonu, hafði umsjón með. Hús þetta er nú bústaður Armanns skóg- arvarðar Dalmannssonar, en talið er það reist af Hall- grími, afa Hallgríms ljósmyndasmiðs Einarssonar. Það sem mér er sérstaklega minnisstætt frá boði þessu er, að þá sá ég Benedikt Jónsson frá Auðnum, föður Huldu skáldkonu, í fyrsta og síðasta sldpti. Arngrímur var bæði íþróttamaður og listfengur, einnig hugkvæmur á marga lund; átti um sinn bæði rottu og hrafn, sem hann fékkst við að temja. Minnis- stæðust er mér rottan. Hún var orðin svo hænd að fóstra sínum, að hann bar hana í vösunum, þegar hann fór út í bæinn. Þess á milli geymdi hann hana í búri, í svefnstofu sinni, uppi á prentsmiðjulofti, sem hann út- bjó sem hentugast fyrir hana. Var oft gaman að horfa á hana þar og atferli hennar. Meðal kunningja stakk hann oft rottunni undir annan hvorn jakkaboðunginn og rak hún þá fljótlega snjáldrið fram úr annarri hvorri erminni. Um Arngrím mætti skrifa lengra mál, því að hann kemur víða við sögu. Pétur var sonur Ásgríms Péturssonar fiskimatsmanns og fyrri konu hans. Hann lauk ekki námi. Fékkst við kaupsýslustörf að því búnu; síðast í Hafnarfirði. Hann kvæntist Margréti Guðlaugsdóttur sýslumanns Guð- mundssonar. 366 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.