Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1960, Qupperneq 2

Heima er bezt - 01.12.1960, Qupperneq 2
Líður að jólum Fullvel man ég fimmtíu ára sól fullvel meir en hálfrar aldar jól kvað síra Matthías fyrir löngu, þegar hann, roskinn maður, horfði yfir hálfrar aldar ævi, auðuga að við- burðum og andlegri reynslu. Þótt því fari fjarri, að vér almennt getum mælt oss við slíka andans menn að reynslu og skilningi á lífinu og umhverfi voru, getum vér þó fylgt skáldinu eftir í einu. Vér getum numið staðar og horft um öxl, rifjað upp atburði liðinnar ævi, skotizt snöggvast í baðstofuhornið, þar sem vér lékum oss sem börn, vér getum staldrað við á sjónarhólum ævinnar og borið saman hið liðna og það sem er. Og ég held að það sé eitt af því, sem hverjum manni er vænlegt til nokkurs þroska að staldra þannig við og at- huga reikningsskilin við liðinn tíma og samtíðina, sjálf- an sig og umhverfið. Tímarnir breytast, og vér breytumst með þeim. Hálf öld er ekki langur tími í sögu mannkynsins. Þegar á hana er litið frá þeim sjónarhóli er hún eins og dropi í úthafinu. En í ævi einstaklingsins er hún mikill þáttur. Ef vér lítum á tímann frá því fyrst vér förum að skynja heiminn umhverfis okkur og rekjum síðan hálfa öld áfram, þá er liðinn athafnamesti og viðburðaríkasti hluti ævinnar, og farið að halla undan fæti fyrir mörg- um. Vér, sem nú munum 50 ára sól, höfum eins og aðrar kynslóðir eignazt vora persónulegu reynslu, ólíka reynslu allra undanfarandi kynslóða. Vér höfum verið svo lánsöm eða ólánssöm, að lifa stórfelldari breyting- ar en nokkurn tíma hafa áður gerzt í heimssögunni. Þetta á við um allan heim, og ekki sízt oss íslendinga. Tvær heimsstyrjaldir hafa geisað. Ríki hafa hrunið í rústir en önnur risið af grunni. Þjóðir hafa varpað af sér aldalöngum fjötrum ófrelsis og kúgunar, en aðrar hafa verið hnepptar í harðari helfjötra efnislega og andlega en mannkynssagan hefur áður þekkt dæmi til. Risavaxin átök hafa verið gerð, til þess að auka vel- farnað mannkynsins. Barizt hefur verið gegn hungri, sjúkdómum og félagslegu böli með miklum og glæsi- legum árangri, en á sama tíma hafa verið fundin upp ægilegri gjöreyðingarvopn, en mannkynið hafði nokk- urn tíma dreymt um fyrr. Fleiri og meiri friðarráð- stefnur hafa verið haldnar en í allri sögu mannkynsins samanlagt áður, og meira rætt um styrjaldarbölið, en á sama tíma er vígbúizt af kappi, og sumir þeir, sem hæst tala um frið hafa umhverfzt á sjálfum friðarþing- unum, þegar eitthvað hefur verið sagt, sem þeim féll ekki í geð. En síðast en ekki sízt, gömul siðakerfi hafa hrunið í rústir, og hamingjudraumar liðinnar aldar hafa reynzt hégóminn einn. A slíkri öld andstæðna og umbreytinga höfum vér lifað. Og sennilega vildi enginn af oss hafa misst af þeirri lífsreynslu, sem hún hefur veitt oss, þótt vér ættum þess kost. Hér úti á íslandi höfum vér orðið vitni að og tekið þátt í stórfelldari þjóðfélagsbyltingu en nokkur önnur þjóð hefur lifað á jafnskömmum tíma. A nokkrum áratugum höfum vér lifað þróun margra alda. Og sú bylting hefur verið gerð án blóðsúthellinga og kúgunar, með sameinuðu átaki fólksins, enda þótt oss greini á um margt, og þjóðin sé sjálfri sér sundur- þykkari en sæmilegt má telja. En oss er ætíð tamast að líta mest á ytra borðið. At- hygli vor beinist meira að glæsilegum mannvirkjum, stórhýsum, hraðskreiðum skipum, skrautvögnum og tæknisigrum, en að horfa inn á við, skoða í barm vor sjálfra og kanna þær breytingar, sem óhjákvæmilega verða þar, eftir því sem tíminn líður. Ef vér gerum örlitla tilraun til þess að skyggnast inn á við, munum vér komast að raun um að flest erum vér börn tímans. Umhverfið, tímarnir hafa sett mark sitt á oss, og vér fylgt straumi þeirra bæði í því sem oss var Ijúft og hinu, sem síður skyldi. Eirðarleysi og hraði samtíðarinnar hefur merkt oss, og uggurinn um hvað framtíðin kunni að bera í skauti hafa fremur öðru markað hugsanalíf vort. Eitt af einkennum sam- tíðar vorrar er það að lifa fyrir líðandi stund. Knýja frá henni þau lífsgæði, sem hún framast getur veitt oss, án þess að spyrja um afleiðingarnar, hvað þau kosti, eða hvað morgundagurinn beri í skauti sér. Sennilega er þetta viðhorf skapað af tveimur heimsstyrjöldum, sem kollvarpað hafa hugsanakerfi og siðmati liðinnar aldar en fátt eitt gefið í staðinn. En í öllu þessu umróti, þessum heimi hins ytra, þar sem gullkálfur efnishyggjunnar situr í öndvegi, eigum vér þó alltaf einn friðsælan reit: minningar bernskunn- ar. Það er einungis alltof sjaldan sem vér leyfum oss þá ánægju að heimsækja hann og dveljast þar um stund. Hversdagslega erum vér feimin við að láta í ljós þá tilfinningasemi, að þessi reitur sé okkur kær. En það er ein af kröfum tímanna að varpa tilfinningunum fyrir borð, og vera harðsoðinn að hinum innsta kjarna. En þegar líður að jólum, þá getum vér leyft oss að hverfa 446 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.