Heima er bezt - 01.12.1960, Side 19

Heima er bezt - 01.12.1960, Side 19
Þverá. Sá hann, ásanit fleiri mönnum, sem með hon- um voru, allt í einu koma stórar gusur og boðaföll í Þverá, rétt eins og hvalur lægi þar fastur á grynning- um og væri að reyna að losa sig. Þessi hamagangur stóð yfir í nokkrar sekúndur, segir Sveinn, en hætti síðan um stund. Um leið sáu þeir félagar þrjá eða fjóra svarta hausa eða skanka gægjast þegjandi og hljóðalaust upp úr vatninu. Eftir stundarkyrrð hófst sami hamagangur- inn á nýjan leik og þannig gekk þetta koll af kolli í um það bil stundarfjórðung. Ferlíki þetta var á að gizka 8—10 faðmar á lengd. Langaði Svein til að kanna þetta nánar, en gat ekki komið því við sökum annríkis. Sveinn Pálsson kann fleiri sögur af skötunni í Þverá. Hann segir frá manni sem var að ríða Þverá, er hestur- inn hnaut með hann úti í miðri ánni. Hann náði taki í faxi hestsins og það bjargaði lífi hans, því botninn var svo háll að engin leið var að standa á fótunum. Var það því líkast sem hann stæði á lagardýri eða skriplaði á skötu. Eftir Vigfúsi sýslumanni á Hlíðarenda er og haft að hann hafi séð undarlegt dýr í Þverá. Skaut það þrem skönkum, kryppu og haus upp úr vatninu og barst síðan hægt og sígandi niður ána. Þetta sá einnig drengur, sem var í fylgd með sýslumanni. Eiríkur Ólafsson frá Brúnum, sem kunnur er fyrir Mormónarit sín og fleira taldi sig eitt sinn hafa séð skrímsli í Markarfljóti og hafi það líkst hvað mest skötu í útliti. Var það á leið hans yfir ána og taldi Eiríkur vænlegast fyrir sig að hverfa aftur og leita að nýju vaði. Þá er þjóðsaga til um mann, sem var á ferð yfir Markarfljótsaura í náttmyrkri. Þegar hann var kominn yfir nokkurn hluta Markarfljóts spyrnir reiðskjóti hans allt í einu við fótum og engin leið að koma honum áfram. Frýsar hann og lætur illa. Maðurinn tekur þá að athuga nánar af hverju þetta stafi og virðist honum þá sem á eyrinni fyrir framan sig liggi ferlíki eitthvert og sýndist honum tindra úr því eldneistar. En hvernig sem maðurinn ætlaði að breyta um stefnu til þess að komast í einhverja átt burt af eyrinn var ókindin alltaf komin í veg fyrir hann og varnaði honum ferðar. Við þetta fauk í manninn. Hann reiddi klaufhamar fyrir framan sig á hestinum og með honum barði hann af því afli sem hann mátti í ferlíkið. Við það hvarf það en maðurinn fékk haldið ferð sinni áfram. Það eru fleiri vágestir en Markarfljót og Þverá, sem sótt hafa Fljótshlíðinga heim og valdið á henni spjöll- um. Einn þeirra vágesta er Eyjafjallajökull — jökul- hvelið fagra handan Markarfljótsaura. Þar hefur eldur tvívegis brunnið svo sögur fari af, árin 1612 og 1821— 22. Pólskur ferðalangur, Daniel Streyc að nafni, var staddur á íslandi þegar jökullinn gaus hið fyrra skiptið. Hann lýsir því þannig: „Fyrst gengu þrumur og eldingar án afláts í þrjá daga, og það svo ákaft eins og verið væri að skjóta með stærstu fallbyssum; síðan komst allt fjallið á hreyfingu, og logandi eins og steypujárn rann það með ógurleg- um hávaða og hræðilegum þrumum niður í breitt vatn, nærri 30 feta djúpt, sem þar var rétt hjá, og fyllti það alveg með möl og hraungrjóti, en sjálft vatnið varð allt að gufu.“ Rétt í árslok 1821 hófst eldgos i Eyjafjallajökli að nýju og stóð nokkuð fram á næsta ár, án þess þó að valda tilfinnanlegu tjóni í Fljótshlíð eða annars staðar. Magnús Stephensen segir í bréfi að „jökullnn hafi gos- ið biki, vikri og brennisteini — lítilfj örlega — einungis kónginum til æru og gleði“. Samt munaði minnstu að flóð, sem kom úr jöklin- um við þetta eldgos yrði afdrifaríkt fyrir Fljótshlíð- (Framhald á bls. 474.)

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.