Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 29

Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 29
stað heim á leið. Enn sem fyrr liggur leið hans fram hjá Afengisverzluninni, og hún er opin að vanda. En nú lítur Hallur ekki þangað. Hann finnur enga löngun hjá sér að koma þar við. Glaður og svifléttur í spori, frjáls úr hlekkjum ógæfunnar heldur hann beina leið heim að þessu sinni. Ragna er ein að störfum í eldhúsinu. Hallur kemur inn til konu sinnar, og nemur staðar við hlið hennar. Síðan tekur hann vikukaupið upp úr vasa sínum og réttir henni það með sigurbrosi. — Gerðu svo vel, Ragna mín, segir hann. — í þetta sinn kem ég heim með kaup heillar viku óskert. Ragna tekur við peningunum og lítur innilega á mann sinn. — Þetta minnir mig á fyrstu búskaparárin okkar, Hallur, þegar við vorum ung og hamingjusöm, segir hún saknaðarkenndri röddu. — Getum við elcki lifað það upp aftur, orðið ham- ingjusöm á ný, Ragna? — Jú, vissulega, Hallur, með Guðs hjálp getum við það. — Við skulum bæði biðja Hann að hjálpa okkur til þess. Afengi skal ég aldrei bragða framar. — Þá er líka þyngsta bjarginu velt úr vegi, og allt annað verða smámunir einir. — Ragna mín, ætlarðu þá að leggja út á nýja braut með manninum þínum og gefa honum traust þitt að nýju? — Já, vinur minn, alveg óhrædd, því ég veit að þú hefur sigrað á hinum rétta vettvangi. Hallur tekur um báðar hendur konu sinnar og dreg- ur hana blíðlega að sér. Þau vefja hvort annað örmum eins og á morgni lífsins og hamingjunnar. Bæði hafa eignazt þá vissu á þessari stundu, að þeirra bíður nú framtíð rík af blessun og sannri hamingju. VI. Fanginn. Mildur haustdagur hvílir yfir borginni. Frú Eygló er ein á heimleið frá vinkonu sinni, sem býr í úthverfi borgarinnar, og að þessu sinni kemur hún þaðan með djúpa hryggð í huga. Vinkona hennar færði henni í dag ömurlegar fréttir. — Góður æskuvinur þeirra beggja, jafnaldri og fermingarbróðir situr nú innilok- aður í fangahúsi borgarinnar, en vinkona frú Eyglóar vissi ógerla um orsök þess, að svona var komið fyrir honum. Hún hafði fengið bréf heiman úr æskusveit- inni þeirra nýlega, þar sem henni var sagt frá þessu, svo það var áreiðanlega satt. Frú Eygló gengur hægt eftir götunni og horfir dap- urlega niður fyrir sig. Hann Bjössi, þessi góði drengur, sem hún þekkti svo vel í æsku, skuli nú vera fangi í hegningarhúsi. Það er hræðilegt! Hún sér hann svo skýrt fyrir sér í endurminningu heima í æskusveitinni þeirra, þar sem þau léku sér saman börn, og hann var henni kær sem bezti bróðir. Og hún sér hann einnig í anda á fögrum vordegi, er þau stóðu bæði við altari Drottins og unnu það heit að hafa Frelsarann að leið- toga lífs síns, og það var vissulega hjartans ásetningur þeirra beggja að ganga á guðs vegum. En hvað hefur komið fyrir hann Bjössa? Aumingja aldurhnignir foreldrar hans. Hann var yngstur af tiu börnum, og við hann tengdu þau áreiðanlega miklar vonir. Eitt sinn heyrði hún móður hans segja, þegar rætt var um Bjössa: — Við gömlu hjónin kvíðum ekki framtíðinni, hann Bjössi minn verður ellistoðin okkar, en hin börnin eru öll flogin úr hreiðrinu. Og þessi þreytta tíu barna móð- ir batt sínar fegurstu vonir við þennan yngsta son sinn, sem var líka góður drengur. En svo hefur hann senni- lega farið eitthvað að heiman út í veröldina og villzt af réttri leið, aumingja Bjössi. Frú Eygó andvarpar þunglega, en það gagnar lítið að aumka hann aðeins, hún verður að revna að hjálpa honum á einhvern hátt í nafni meistara síns. Hún veit ekki, hve lengi hann hefur verið dæmdur til að dvelja í fangahúsi. Ef til vill er sá tími þegar útrunninn. Hún verður tafarlaust að gera tilraun með að ná fundi hans sem allra fyrst, því hver stundin getur orðið henni dýrmæt. Hún hlýtur að fá leyfi fangavarðarins til þess að tala við Bjössa dálitla stund, og frú Eygló fyllist nýjum eldmóði samúðar og kærleika. Hún breytir þegar um stefnu og gengur beinustu leið að fangahúsi borgar- innar.------- í þröngum, skuggalegum fangaklefa situr ungur maður og gjörvilegur á hörðum bekk og starir döpr- um vonleysis augum fram fyrir sig. Á morgun er hann frjáls maður á ný. Þá má hann fara héðan aftur út í veröldina. Frjáls á ný. Hann hristir höfuðið. Orðið „frelsi“ er glatað í réttri merkingu í lífi hans og vekur honum aðeins sársauka. Hvert á hann að fara, þegar hann er laus úr fangelsinu? Hann veit það ekki. Hér í borginni á hann enga vini, sem hann getur leitað til undir þessum kringumstæðum. Það langar sjálfsagt fáa til að hýsa hann, þegar hann kemur beina leið úr fanga- klefanum. Allir hljóta að líta niður á hann, sem orðið hefur sekur við landslögin, sektin og niðurlægingin hlýtur alls staðar að sjást á honum, hvar sem hann fer. Það verður honum því aðeins til nýrra kvala að um- gangast fólk. Hann hefði helzt kosið að mega fara héðan beina leið heim, en til foreldra sinna getur hann ekki farið. Hann hefur brotið svo mikið gagnvart þeim. Hann fór að heiman í atvinnuleit, án þess að slíks væri nein þörf, og þvert á móti vilja foreldra sinna, skildi þau tvö ein eftir aldurhnigin og þreytt við búskapinn í stað þess að vera kyrr hjá þeim og bregðast ekki trausti þeira, og svo.... Hann grúfir andlitið í höndum sér og stynur sárt af ómælisdjúpri kvöl og algeru vonleysi. Hurð fangaklef- ans er opnuð, en fanginn lítur ekki upp í fyrstu. Hon- um er sama þó að þjónar þessarar stofnunar gangi hér um. En brátt heyrir hann fangavörðinn segja: Heima er bezt 475

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.