Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1960, Qupperneq 9

Heima er bezt - 01.12.1960, Qupperneq 9
ÞORSTEINN JÓSEPSSON: Um FljótsKIíé og Fljótshlíéinga Nokkur brot egar við beygjum hjá Hvolsvelli út af Suður- landsvegi — þjóðbrautinni frá Reykjavík aust- ur í Skaftafellssýslu — í þeim tilgangi að heim- sækja Fljótshlíðina, liggur leiðin yfir lágan háls eða hæðardrag fram hjá Stórólfshvoli, bæ þeirra feðga Stórólfs og Orms sterka. Handan við hæðardragið tekur við dalur. Hann ber að vísu ekki nafn dals, en er dalur samt. Og það sem meira er: Hann er einn af fegurstu, svipmestu og and- stæðumestu dölum Islands. Hann gæti heitir Markar- fljótsdalur. Vestanmegin í þessum dal liggur ein grózkumesta og fríðasta sveit á íslandi: Fljótshlíðin. Hinum megin — að austanverðu — rís Eyjafjallajökull, svipmikið jökul- hvel, um 1600 metra hátt, með brattar undirhlíðar, skriðjökulsfossa og hyldjúp gljúfragil. Fram af jöklin- um til suðurs gengur fjallsrani og heitir hinn vestasti hluti hans Seljalandsmúli. Fram af honum falla Gljúfra- búi og Seljalandsfoss — tveir nafntogaðir fossar á Suð- urlandi. í dalbotninum milli Fljótshlíðar og Eyjafjallajökuls liggur grásvört ömurleg auðn. Það er sandur og möl sem beljandi jökulvötnin — einkum þó Markarfljót — bera sí og æ fram á þessa víðáttumiklu sléttu. Inn frá þessum dal gengur annar dalur og allur minni um sig, en þó enn þá svipmeiri. Þar er Þórsmörk, óum- deilanlega eitt af skrautlegustu djásnum íslenzkrar nátt- úrufegurðar. Fljótshlíðin er eina byggða svæðið í þessum dal, þeg- ar undan eru skildir örfáir bæir austan Markarfljótsaura og handan Markarfljótsbrúar. Hlíðin er grösug sveit, en líka fögur, meira að segja annáluð fyrir fegurð sína. Hún var svo fögur að Gunnar á Hlíðarenda vildi held- ur bíða hel en hverfa á brott frá bleikum ökrum og slegnum túnum. Þannig hefur fegurð Fljótshlíðar orðið manns bani — margra manna bani. Fljótshlíðin er stór sveit, alls um 60 býli og sum þeirra stórbýli. Úthlíðin er svo þéttbýl að ekki mun gefa öllu þéttbýlli sveitir á íslandi og má segja að þar standi bær við bæ. Talið er að um 20 kílómetrar séu á milli neðsta og efsta bæjar sveitarinnar, Núps og Fljóts- dals. Þeir standa flestir sem næst 100 metrum yfir sjávarmál. Fyrsti bærinn í Fljótshlíð, þegar komið er sunnan frá Hvolsvelli, heitir Núpur. Þar er gróðursæld mikil, fallegur klettaröðull ofan við bæinn og skjólsælt í bezta máta, enda liggur sveitin öll vel við sólu og í vari fyrir norðannæðingnum. Fljótlega eftir að komið er fram hjá Núpi breytir Hlíðin um svip — í bili. Klettabeltið hverfur, en við tekur mikil og aflíðandi brekka, öll grasi gróin frá efstu brún og niður á jafnsléttu. Utan í þessari brekku og undir henni blasir við hvert býlið af öðru — mesta þéttbýli í íslenzkri sveit; þegar inn fyrir Hlíðarenda kemur breytir Hlíðin aftur um svip. Hún verður miklu brattari, víða með lágum klettabelt- um og urmul af bergvatnsám og lækjum, sem falla í fossum — sums staðar stall af stalli — niður hlíðina. Grózkan minnkar, bæjunum fækkar, en svipur lands- ins vex. Upp af Innhlíðinni rísa há fjöll og brött. Þau heita Tindfjöll og bera nafn með rentu. Þau eru framverðir Tindfjallajökuls, sem liggur handan við þau og dreg- ur nafn af þeim. Þannig er heildarmynd þessa dals, sem Fljótshlíðin myndar öðrum megin, Eyjafjallajökull hinum megin, Þórsmörk, Goðaland og Mýrdalsjökull loka í norðri, en flatneskja Suðurlandsundirlendisins opnar í suðri með hafið og Vestmannaeyjar að bakhjarli. Andstæð- Gamall maður með orf. Heima er bezt 453

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.