Heima er bezt - 01.12.1960, Side 14

Heima er bezt - 01.12.1960, Side 14
í skála sínum á Hlíðarenda var Gunnar sóttur heim af óvígum her. Hann var einn vopnfærra manna heima og þar féll hann eftir frækilega viirn. Hafði hann sært 16 fénda sinna og drepið tvo, þeirra er að honum sóttu. Enda þótt á Hlíðarenda séu enn til örnefni, sem benda til sögu Gunnars og atburða frá því tímabili, mun þar þó fátt eða ekkert um fornminjar frá þeim tíma. Bent hefur verið á gamlar tættur þar sem skáli Gunnars á að hafa staðið, en fornleifafræðingum ber saman um að fyrir því séu ekki minnstu líkur, enda ekki á þeim stað, sem Njála telur bæinn hafa verið. Gunnarshaugur er í hlíðinni fyrir ofan Hlíðarenda. Þar er sagt að Gunnar hafi verið heygður, en sá hóll er ekki mannaverk og þar mun kuml aldrei hafa verið. Sámsreitur er líka til á Hlíðarenda. Þar átti hundur Gunnars — Sámur — að hafa verið grafinn. Saga Gunnars á Hlíðarenda er saga stórra atburða — framar öllu þó mikilla mannvíga. En það kemur manni á óvart að fæst vígin eru unnin í Fljótshlíð. Það hvílir heillastjarna yfir þessari fögru byggð. Hún er að vísu sögurík, en hún hefur frá öndverðu fremur verið vett- vangur mikilla örlaga heldur en atburða. Hlíðarendi var eftir daga Gunnars höfðingjasetur um aldir. Þar sátu stundum menn sem hæzt bar á í íslenzku þjóðlífi og athöfnum og er þar skemmst að minnast Gísla sýslumanns Magnússonar, sem oftast gengur und- ir nafninu Vísi-Gísli. Hann var talinn mestur höfðingi á íslandi um sína daga, lærður maður og margfróður, veglyndur og góðgerðasamur. Gísli er talinn fyrsti Is- lendingur, sem lagt hefur stund á náttúrufræði við há- skóla. Hann var brautryðjandi um kornrækt og ræktun matjurta og annarra nytjajurta. Hann flutti m. a. inn kúmen, sem enn í dag er all útbreitt í Fljótshlíð. Gísli hafði áhuga fyrir málmvinnslu, leirvinnslu, brenni- steinsvinnslu, saltsuðu og fleiru. Hann barðist fyrir auknu pólitísku sjálfstæði íslands og kom ,í þeim efn- um einarðlega fram við konungsvaldið danska. Hann vildi koma á ýmsum efnahagslegum umbótum er mið- uðu til almenningsheilla og þegar á allt er litið er Vísi- Gísli óumdeilanlega einn af jöfrum íslenzkrar þjóðar- sögu í svartnætti miðaldanna. Sá þáttur umbóta hans, sem snýr sérstaklega að Hlíð- arenda, eru kornræktartilraunirnar. Vísi-Gísli mun hafa verið minnugur þeirra sagna, sem gengu um bleika akra í Fljótshlíð til forna og hann hefur talið að eins og korn gat þrifizt þar áður eins gæti það gert nú. Samkvæmt samtíðarheimildum hefur akuryrkja hans borið einhvern árangur, en þó ekki svo mikinn að ná- grannar hans tækju upp kornrækt eftir honum. Kart- öflur hugðist Gísli einnig ætla að rækta, en þá var kart- öflurækt með öllu óþekkt á Norðurlöndum. Er þetta Ijóst dæmi um mikla framsýni hans, framfaraviðleitni og trú á landið. Svo virðist sem akrar Gísla hafi verið í brekkunni fyrir ofan Hlíðarendatún, en akrar Gunnars á flatlend- inu fyrir neðan bæinn. Þar hefur Þverá seinna hulið þykkan jarðveg og skilið eftir möl og sand. Á sviði kornræktar á Fljótshlíðin merkari sögu að baki en nokkurt byggðarlag annað á íslandi. Þar er vitað að kornrækt hefur verið stunduð að einhverju Ieyti í fjórar aldir. Þýzk heimild, en það er ferðabók Thienemanns frá 1821, getur um kornræktartilraunir í Fljótshlíð snemma á öldinni sem leið. Loks eru korn- ræktartilraunir Klemenzar Kristjánssonar, sem hann hefur gert á vegum Búnaðarfélags íslands á Sámstöð- um með góðurn árangri. Annar mikill höfðingi, sem sat Hlíðarenda, var Vig- fús Erlendsson hirðstjóri. Hann fór með sýsluvöld í Rangárþingi í byrjun 16. aldar, um margt ágætismaður, réttsýnn í dómum og læknir góður, en þótti yfirgangs- samur á yngri árum, fédrægur og kvensamur. Páll son- ur hans, lögmaður sat og Hlíðarenda. Hann var talinn höfðingi mikill, auðugur, stórgerður og óhlutdeilinn. Einn af fyrirmönnum á Hlíðarenda var Br\mjólfur Thorlacius sonur Þórðar biskups Þorlákssonar og dótt- ursonur Vísa-Gísla. Ekki þótti hann í neinu jafnoki afa 458 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.