Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 26

Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 26
Ingibjörg Sigurðardóttir: NÍUNDI HLUTI 1 ^jónustu Meistarans SKALDSAGA — Nei. Þeirra vegna finnurðu, að þú verður að hyrja nýtt líf, sagði frú Eygló við hann, og þau orð hljóma nú á ný í vitund hans. Enn stendur hann kyrr fyrir utan dyr áfengisverzlunarinnar, og baráttan held- ur áfram í sál hans. Freistingin og skyldurnar við lífið berjast þar um sigurinn, og þau átök eru hörð. I fyrstu virðist freistingin ætla að sigra. Hallur gengur að dyr- um verzlunarinnar, leggur höndina á handfang hurð- arinnar, og snýr því. En ekki lengra. Á þessu augna- bliki er sem einhver óskiljanlegur máttur geri hönd hans óvirka til að opna dyr verzlunarinnar. Hann kipp- ir að sér höndinni, eins og hann hafi brennt sig, og tekur á rás burt frá áfengisverzluninni í áttina heim til sín. Hann gerir sér varla grein fyrir því, hvar hann fer, en brátt er hann kominn heim að kjallaradyrunum sínum. Hann reikar inn í kjallarann gegnum eldhúsið, þar sem konan hans er að störfum, án þess að yrða á hana, og heldur áfram inn í stofu. Þar kastar hann af sér fötunum, veltir sér upp í legubekkinn og breiðir teppi vfir höfuð sér. Þaðan skal hann svo ekki hreyfa sig, á hverju sem gengur, fyrr en næsta morgun.... Björt árdagssól sendir geisla sína inn um litla kjall- aragluggann þeirra Halls og Rögnu. Nýr helgidagur ljómar yfir borginni. Hallur vaknar af löngum svefni og opnar augun hress og endurnærður. Hann hvílir í fyrstu kyrr á legubekknum og horfir í kringum sig, en það er orðið langt síðan hann hefur vaknað þannig á sunnudagsmorgni, heilbrigður og allsgáður eftir draum- væra nótt. Honum finnst fátæklega stofan sín óvenju- lega hlý og vistleg, og það er sem geislar sólarinnar og friður morgunsins sveipi hana helgum töfrablæ. Hallur sér að Ragna og börnin eru farin úr stofunni, og barnarúmin uppbúin, en á stól við legubekkinn, sem hann hvílir á, liggja sparifötin hans hrein og pressuð, og skórnir hans standa gljáburstaðir á gólfinu. Svo Ragna ætlar honum þá að spariklæðast í dag. Hallur varpar öndinni. Sú var líka venja hans fyrir eina tíð að ganga spariklæddur á helgidögum, en síðan áfengisneyzlan varð honum fjötur um fót, hefur hann lítið sinnt um klæðaburð sinn fremur en annað gott og fagurt. Skyndilega man hann eftir hádegisverðar- boði frú Eyglóar, og nú má hann eiga von á því, að hún komi á hverri stundu til að heyra svar hans, því hann efast ekki um, að það var henni full alvara, að boð hennar yrði þegið. Á hann að manna sig upp og fara með fjölskyldu sína í hádegisverðarboðið? Æ-i, hann er svo langt niðri, en. ... Hann hefur ekki næði til að hugsa setninguna á enda. Stofuhurðin opnast, og Ragna kemur inn með morgunkaffi á bakka. Hún býður manni sínum góðan dag og réttir honum bakkann. Hallur tekur við bakk- anum og fer þegar að drekka kaffið, en Ragna fær sér sæti hjá honurn. Það er orðið langt síðan hún hefur fengið tækifæri til að bera manni sínum morgunkaffi á þennan hátt. f fyrstu er þögn, það er engu líkara en þau hjónin séu hálffeimin hvort við annað. En svo rýfur Hallur þögnina og segir: — Hvað er orðið áliðið dagsins, Ragna? — Klukkan er tæpt ellefu. — Hvaða skelfing hef ég sofið lengi. — Það er sunnudagsmorgunn, og ég tímdi ekki að vekja þig. Mér fannst það svo unaðslegt að sjá þig sofa svona, eins og þú leizt út á koddanum í morgunn. — Jæja, en hvar eru börnin? — Þau eru fyrir löngu komin út í góða veðrið. Hallur hefur lokið við að drekka kaffið og réttir konu sinni bakkann. — Lofaðu mér að þakka þér fyrir kaffið með kossi, Ragna mín, segir hann. — Það er svo Iangt síðan ég hef notið þess á þennan hátt að hressa mig á morgunkaffinu hjá þér. Ragna lýtur niður að manni sínum og meðtekur þakklæti hans í hlýjum kossi. Þessi morgunstund er óvenjulega björt og friðsæl á heimili þeirra hjóna. Er hún kannske fyrirboði bjartari framtíðar? Bæði þrá þau jákvætt svar. Hallur stígur fram úr legubekknum og tekur spari- fötin. — Þú ætlar mér víst að klæðast þessum fötum í dag, segir hann og lítur með döpru brosi á konu sína. — Já, það er helgidagur í dag, Hallur. — Hallur andvarpar. — Og það er ekki svo oft helgi- dagur í réttum skilningi hjá mér. Samtal þeirra hjóna verður ekki lengra að sinni. Þau heyra að bifreið er stöðvuð fyrir utan húsið, og einhver gengur heim að kjallaradyrunum. Ragna hraðar sér fram úr stofunni til móts við gestinn, en Hallur klæðist í skyndi. Brátt kernur Ragna inn í stofuna aftur, og frú Eygló með henni. Hún heilsar Halli með hlýju handabandi og segir síðan glaðlega og fornrálalaust: — Jæja, Hallur, nú er ég komin til að heyra svar þitt. Ætlar þú að veita okkur hjónum þá ánægju að koma ásamt fjölskyldu þinni til hádegisverðar í dag á heimili okkar? 470 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.