Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 13
JAN OKLAND: Vatnasvæði eða vötn, eins og vér nefnum það hér ná yfir tjarnir og polla, flóa og mýrar, stöðuvötn, læki og ár stórar og litlar. Á þess- um slóðum er fjölbreytt dýralíf, þar eru lax og silungur, krabbadýr og mýlirfur og ótalmargt fleira. Vötnin eru sífellt ofarlega á dagskrá. Vér getum nefnt þar t. d. vatnamiðlun, lagaboð um óhreinkun vatns og hvaðan vér getum aflað drykkjarvatns. Einnig er rætt um veiði í vötnum, þjóðgarða og meðferð vatna í þeim. Verkefnin knýja hvarvetna á, af því að áhrif mannsins á náttúruna fara sívaxandi með auknum hraða. — En brennidepill umræðnanna verður þó, hversu vér fáum hagnýtt oss vatnasvæðin á sem beztan hátt. Hér verður rætt lítils háttar um dýr í norskum vötn- um, líf þeirra og lífskjör, og hversu haga megi rann- sóknum á vatnasvæðunum. Einnig verður drepið á, hversvegna náttúruvísindunum er nauðsyn á vatnasvæð- um, sem lítt eru snortin af tilkomu mannanna. Vötnin eru skarpar mörkuð rannsóknarsvið en hafið eða þurrlendið. Hvert vatn er oft lítill heimur fyrir sig, sem hlýðir tilteknum lögmálum. Vér skulum t. d. athuga um hin uppleystu sölt í vötnunum. Vatnaplönt- urnar nærast á þeim, hin smávöxnu vatnadýr lifa af plöntunum, en fiskar og önnur stærri dýr lifa á smá- dýrunum. Plöntur og dýr deyja og leysast í sundur. Næringarsöltin hverfa aftur til vatnsins og verða fæða nýrra plöntukynslóða. Þannig er viðhaldið óslitinni hringrás. Með tiltölulega einföldum aðferðum getum vér rannsakað ýmis grundvallaratriði líffræðinnar í þess- um afmarkaða vatnsheimi. Þannig er það oft tiltölulega létt að rannsaka ýmsa þætti lífskjaranna, sem eru mikil- vægir fyrir vatnalífverurnar, og síðan verður unnt að kanna áhrif þeirra á gerð og lífshætti plantna og dýra. Fjölbreytni lífsskilyrða í norskum vötnum gefur land- inu sérstöðu í öflun rannsóknarefnis. Þar eru háfjöll og láglendi hvort með sínu loftslagi, berggrunnur landsins er breytilegur, en hann veldur miklu um, hversu dýra- lífið þróast í vötnunum. Austanfjalls er t. d. héraðið umhverfis Oslo, tiltölulega lítið um sig en óvenjulega fjölbreytilegt að bergtegundum og jarðvegi, þetta veld- ur miklum sveiflum á næringarsöltum í jarðvatninu, sem aftur orkar á efnasamsetningu í ám og stöðuvötn- um. Kemur slíkt og mjög greinilega fram í gróðri og dýralífi. Þarna eru því óvenjulega góð skilyrði til að kanna áhrif umhverfisins á vatnalífið, svo að slík finn- ast tæplega annars staðar á jörðinni. Víða setur náttúran tálmanir gegn dreifingu dýranna, svo að þau hafa ekki náð að breiðast út um landið allt, síðan jökla ísaldar leysti. Þegar svo háttar til, gefst færi á að kanna dreifingarháttu dýra, og hvernig tegundir nema nýtt land. Vér skulum því hverfa um 10.000 ár aftur í tímann, eða að því, er jökull ísaldarinnar var að hverfa. Jökl- ana leysti, stöðuvötn og ár urðu til. Plöntur og dýr fóru smám saman að nema hið auða land. Um þær mundir komu einnig fyrstu steinaldarmennirnir til Noregs. Hvaðan komu vatnadýrin? spyrjum vér. Sum vatna- dýr þola salt vatn, og geta því fluzt sjóleiðina. Má þar nefna lax, urriða, bleikju, hornsíli. En langfæstir þeirra fiska og annarra dýra, sem í vatni lifa, þola salt vatn. Á jökultímanum lifðu þessi dýr í ám og stöðuvötnum á íslausum svæðum Evrópu og Asíu, og hafa leifar þeirra fundizt í botnleðju stöðuvatna og mýra. Við ísaldar- lokin gátu dýr þessi komizt til Skandinavíu yfir Eystra- saltið, sem um skeið var ósalt stöðuvatn, er náði meira að segja yfir allmikið af láglendi Finnlands og Svíþjóð- ar. Frá þessu stöðuvatni gátu dýrin komizt upp í norsk- ar ár og vötn. Mýrar, sem orðið hafa til úr fornum stöðuvötnum, geyma oft merkilegar heimildir um dýralíf liðinna tíma. Djúpt í mýri nokkurri milli Hamars og Elverum fannst nýlega elgshorn, sem við rannsókn með kolefni 14 reyndist vera um 8000 ára gamalt, við hlið þess voru leifar vatnasnigla og samlokuskelja. Rannsóknum á dýra- leifum djúpt í mýrum eða vatnaleðju er enn skammt komið í Noregi, og bíður þar mikið verkefni. Vatnafiskarnir hafa hlotið að fylgja samfelldum vatna- vegum, þar sem skordýr og ýmis önnur vatnadýr gátu borizt að einhverju leyti yfir þurrt land. Stundum hafa mennirnir hjálpað dýrunum áleiðis. Á rúnasteini í Gausdal frá því um 100 e. Kr. sést, að maður flutti fiska í stöðuvatn. Á vorum dögum eru fiskar fluttir í veiðilaus vötn, og einnig er reynt að flytja þangað önn- ur dýr, sem þeir geta lifað af, svo sem krabbadýr, sem silungur sækist mjög eftir. Vatnakrabbinn stóri, sem er hafður til manneldis, var fluttur til Noregs af mönnum. Einnig hjálpum vér fiskigöngunum á annan hátt, t. d. með að gera laxastiga eða breyta landslaginu að ein- hverju leyti. Vér setjum kalk í súr stöðuvötn, og leit- umst við að útrýma þeim fiskitegundum, sem vér telj- um oss gagnslausar eða skaðlegar, svo að lífsrými nytja- fiskanna verði meira. Heima er bezt 9

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.