Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 32
að við færum að ráðast til niðurgöngu og rannsaka þessi dularfullu leynigöng. Ég tók þessari uppá- stungu hans vel, en sagðist vilja vera á undan þar eð ég væri með vasaljósið. Samþykkti Halli það, síðan lögðum við af stað niður. í fyrsta þrepinu var ég næstum því dottinn því að það var svo sleipt og illa höggvið. Lét ég mér þetta að kenningu verða og var gætnari. Við héldum nú áfram niður, hægt og varlega. Eftir því sem neðar dró virtust leynigöngin fara breikkandi og við urð- um forvitnari og forvitnari. Hvar myndu göngin enda? Allt í einu sá ég eitthvað fyrir framan mig og nam staðar til að athuga það nánar með vasaluktinni. Komst ég þá að því, að við vorum staddir í fremur litlum helli og það sem ég hafði séð fyrir framan mig var ekki annað en blautur klettaveggur. En þegar ég skimaði betur um hellinn með vasaluktinni, kom ég auga á nokkuð merkilegt. Ég kom nefnilega auga á kassastafla sem þarna var vel upp hlaðinn. Nú urðum við bræðurnir fyrst fyrir alvöru for- vitnir og fórum þegar að rannsaka þessa kassa. Kom- umst við þá að því að það sem í kössunum var, var Genever áfengi og vindlingar. Við bræður litum hvor á annan. „Smyglarar, við höfum komizt á spor smyglara,11 sagði Halli nokkuð æstur. „Já,“ sagði ég, „á því leikur enginn efi. Við erum svei mér lentir í ævintýri. Fyrst leynigöng, svo hell- ir í iðrum jarðar, fullur af smyglvarningi. IV Við vorum seztir á sinn hvorn kassann, sem báðir voru fullir af vindlingum, þegar ég sagði: „Jæja, bróðir sæll, hvað eigum við nú til bragðs að taka? Við höfum uppgötvað mikið nú á tæpum hálf- tíma, já, ótrúlegar uppgötvanir en samt sannar. Væri nú ekki bezt að við snerum heim og segðum frá öllu saman, þá mundum við stuðla að því, að þeir sem smyglvarning þennan eiga, verði teknir höndum.“ „Jú, en ég er hræddur um að það muni enginn trúa okkur því að þetta er allt saman svo ótrúlegt. Já, og ef við snúum nú heim þá verður ekkert meira úr þessu stroki okkar. Við ætluðumst þó til þess að það stæði lengur yfir, þegar við fórum að heiman,“ sagði Halli. Frh. Brotabrot Framhald af fyls. 17. að vera á milli þeirra í hlaupalokin. Eitt ágústkvöld þegar ég var 10 ára heyrði ég inn í stofu einhver kyn- leg org, tryllingsleg, sogandi og kyngimögnuð — eins og grimmdaræði eitt getur framleitt hjá skepnum. Þegar út kom sá ég hvers kyns var. Brúnn barðist þar við stóðhest frá næsta bæ. Varnaði honum að kom- ast til folaldshryssu, sem var neðan við girðinguna. Slíkum aðgangi er ekki gott að lýsa. Þeir orguðu, bitust og börðust, stóðu á afturfótum og lömdu hvorn annan með framfótunum. Veltust um í þýfinu, og reyndu að koma höggum við í byltunum. En allt í einu flýði folinn og Brúnn stóð eftir og blés. Við nutum bæði sigursins vinirnir. Þetta sama sumar fór bóndi í kaupstað með Brún undir reiðingi. Seint um kvöldið kom hann svo heim, drukkinn. Teymdi hann Brún með fullum klyfjum og ýmsu trússi niðri í milli. Ég sá strax að eitthvað var að. Reiðingurinn var frammi á hálsi hestsins og reiðinn ekki spenntur. Þeir komust loks heim á hlaðið. Brúnn leit snöggvast til mín, svo beygði hann sig áfram og lét allt saman steypast fram af sér. Kippti höfðinu snöggt undan reiðingnum og steig svo hægt og hóglega upp úr gjörðunum. Taumurinn var fastur undir reiðingnum. Ég hljóp til og leysti hann. Þá var mér litið í augu þessa vinar míns. Þar sá ég speglast reiði og sársauka yfir meðferð og ræfildómi manna. Og svei mér þá, þar örlaði líka á fyrirlitningu og hatri. Við röltum af stað upp í Iautir, þar sem hin hrossin voru. Þar klappaði ég vini mínum lengi og kyssti hann á silkimjúkan flipann. Bað hann fyrirgefningar á öllu óréttlætinu, sem mannkindin sýnir skepnum æ ofan í æ. Þó ég tæki út úr honum teyminginn, stóð hann bara kyrr og starði út í loftið, hugsandi, en reiðin var að sjatna. Það var eins og hann væri að ráða torráðna gátu til- verunnar, en svo hrissti hann sig allt í einu og dansaði á fákspori upp í lautina. BRÉFASKIPTI Magnús Ólafsson, Garðsstöðum, Ögurhreppi, óskar eftir bréfa- skiptum við stúlku á aldrinum 20 til 21 árs. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Héðinn Ólafsson, Garðsstöðum, Ögurhreppi, óskar eftir bréfa- skiptum við stúlku á aldrinum 19 til 20 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Ingibjörg Guðjónsdóttir, Hreiðarstaðaskoti, Svarfaðardal, Eyja- fjarðarsýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilt á aldrinum 12 til 14 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. 28 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.