Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 34
fólk síðan talaði um. — Þjóðverjar réðust inn í Pól- land! Þessi orð táknuðu í huga Völu urmul af æð- andi villidýrslegum svartskeggjuðum mönnum, sem óðu yfir lítið og fallegt land, þar sem græn tré og blá blikandi vötn horfðu til himins, og prúðbúið fólk og falleg lítil börn léku sér á sunnudögum. Henni hafði ekki orðið eins mikið um, þegar henn- ar eigið land var hertekið. Þá hafði líka útvarpið heima verið rafgeymislaust, svo ekkert fréttist fyrr en þrem dögurn síðar. Og þá hafði samt lífið gengið sinn vanagang. Hafið hafði ekki skipt um lit né vind- urinn um rödd, og fuglarnir létu sem allt væri eins og áður, eingöngu af því að ekkert heyrðist í út- varpinu. Oft hafði Vala verið komin á fremsta hlunn með að fikta eða pilla eitthvað við þennan blaðrandi kassa að aftan, en þá hafði pabbi hennar orðið enn geð- verri, og svo hafði þurft að senda gripinn suður til viðgerðar, og það kostaði peninga, og af þeim var minna en ekki neitt á Harnri. Eins og útvarpið hafði þó verið skemmtilegt fyrir stríð. Reyndar var enn ofurlítið gaman að ýmsu, en þessar sífelldu fréttir voru eins og að fá eldsúrt slát- ur út í dísætan rúsínugraut. Vala hljóp í spretti heim. Hana langaði til að hrópa: „Ég veit líka dálítið sem ekkert ykkar veit eða fær nokkru sinni að vita,“ en hún varð að stilla sig og þegja. Morguninn eftir þegar Vala klæddi sig í fyrstu skímu dagsins, var þetta ekki eins ævintýralegt. Það var hrollur í henni. Ekki færi pilturinn að gera henni neitt, þegar hann hafði séð að hún hafði ekki sagt neitt frá. Enn rændi hún brauði úr búrinu og köld- um silungsbitum, en flöskuna yrði hún að fá aftur, það var lítið til af þcini á Hamri. Hún gekk hratt fram að vatninu, leit hvorki til hægri né vinstri, en gaut augunum út undan sér upp í klettana. En það var enn of dimmt til að sjá nema nokkra faðma frá sér. Snati sperrti eyrun. Vala fann kuldastraum leggja um sig alla og lang- aði mest til að taka til fótanna heim aftur. En þá mundi hún eftir einni ráðleggingu Möngu gömlu: „Sértu hrædd, hróið, þá gakktu hægt, teldu skrefin eitt—tvö, eitt—tvö, ósköp rólega, eftir því sem þú ert hræddari, skaltu ganga hægara. iMargur maðurinn hefur misst vitglóruna eða sprengt sig hreint og beint á því að flýja sinn eiginn ótta.“ Þannig sagðist Möngu frá, og hún vissi sínu viti, það hafði Vala uppgötvað fyrir löngu. En því mið- ur virtust engir aðrir hafa veitt því athygli. Hún gerði öll verstu verkin á bænum, hreinsaði eldavélina og bar út ösku og inn mó og spýtur, nema þegar hún mútaði einhverjum krakkanum með kandísörðu, eða bara flatkökubita. Það var líka hennar verk að mjólka og sjá um, að kálfarnir fengju skolið sitt. Svo gerði hún einnig það, sem Völu þótti verst allra verka, en það var að þvo og gera við sokkaplöggin, og við það var Vala látin hjálpa henni. Það var kalt á veturna að berja plöggin upp úr læknum, og á sumrin var hún venju- lega svo þreytt, þegar hún kom heim af engjunum, að henni fannst bak sitt vera að brotna, og handlegg- irnir að slitna sundur, þegar hún sveiflaði sokkunum í hring og sló úr þeim. Vala laut niður og fór að draga netið í land. Það var þoka og súld, og þá var alltaf meiri veiði, enda voru strax komnir fjórir silungar úr þessu eina neti, og einn þeirra heilmikill dolpungur. Snati lá fram á lappir sínar og horfði letilegu augnaráði á hana, en allt í einu sperrti hann eyru og þaut á fætur. Vala snerist á hæl. Þarna stóð þá pilt- urinn rétt hjá henni enn úfnari en daginn áður, en augun full af þakklæti, og ljómandi bros í miðjum skegghýj ungnum. Vala varð vandræðaleg og vissi ekki, hvað hún ætti að segja. Pilturinn var fallegur þrátt fyrir garm- ana, úfna hárið og skeggið. Henni hitnaði allri að innan bara af því, hvernig hann horfði á hana. Svo rétti hann henni höndina og sagði: „Takk, mikið takk!“ Vala gat ekki sagt neitt, roðnaði aðeins ofurlítið og leit niður fyrir sig. Handtak hans var svo þétt, og henni varð allt í einu ljóst, að hér hafði hún eignazt vin, þann fyrsta á ævinni. Hver dagurinn af öðrum leið líkt og ævintýri. Vala var sjálfri sér lík á yfirborðinu, en í sál henn- ar var mikið umrót. Hún varð áhyggjufull, því hvernig ætti hún að fela piltinn, fæða hann og klæða, þar til stríðinu lyki. Að vísu sagði Úlrick, sem hún alltaf kallaði Úlla, að það gæti ekki staðið lengi, slíkt væri óhugsandi. „Vilt þú að Þjóðverjar sigri?“ spurði Vala einu sinni. „Vitanlega þeir sigra,“ svaraði hann sigurviss. Vala andvarpaði. Hann leit á hana og sagði, að 30 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.