Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.01.1968, Blaðsíða 28
Ég og tvíburabróðir minn Halli, vorum 12 ára er saga þessi gerðist. Við vorum nokkuð stórir eftir aldri, Halli dökkhærður, en ég ljóshærður. Við átt- um þá heima í stóru hvítu húsi, rétt ofan við kaup- staðinn, hjá foreldrum okkar og þrem systrum. Við þóttum óþægir í skólanum og utan hans, og oft stóðum við fyrir prakkarastrikum sem framin voru í kaupstaðnum. Af þeim sökum álitu margir íbúar hans, að við værum hinir verstu þorparar. En þrátt fyrir það allt gekk okkur vel að glíma við skólabækurnar og vorum taldir, af meiri mönn- um, duglegir við nám. Fannst okkur mest gaman að mannkynssögunni og vorum alltaf hæstir í henni í okkar bekk. Mikið lásum við af sögubókum og höfð- um mest gaman af sjóræningjasögum, svo og öðrum bókum, sem voru mjög spennandi og ævintýralegar. Og nú var svo komið, að okkur var farið að langa til þess að lenda í ævintýrum eins og aðalsöguhetjurnar í skemmtilegustu bókunum. Já, og svo varð hugmyndin til. Jón gamli í Naustinu átti lítinn árabát. Höfðum við bræður oft fengið hann lánaðan hjá Jóni gamla er gott var veður og róið okkur til skemmtunar út á víkina. Var þetta hinn mesti sómabátur. Kvöld eitt síðla í ágústmánuði vorum við bræður háttaðir og ætluðum að fara að sofa, þegar Halli sagði allt í einu: „Heyrðu, Skari, heldur þú að það væri ekki gam- an að stela séttunni hans Jóns gamla einhverja nótt- ina og róa síðan út á hafið í ævintýraleit? — Já, og gerast kannske sjóræningjar.“ „Já, og hafa bækistöð í einhverri eyðivíkinni fyr- ir norðan Sléttafjörð,“ sagði ég, en hélt svo áfram og talaði nú lægra svo að enginn óviðkomandi gæti heyrt það sem ég sagði: „Þetta er ágætis hugmynd hjá þér, bróðir sæll. Og jafnvel þótt við gerðumst ekki sjó- ræningjar, þá væri gaman að stela séttunni hans Jóns gamla. Við myndum örugglega lenda í einhverjum ævintýrum. T. d. yrðum við eltir, þegar upp kæmist um stuld okkar. Heldur þú að það yrði ekki fjör, maður? Allt plássið kæmist í uppnám!“ „Já, og ef við yrðum eltir á sjó, þá róum við bara inn í Litluvík eða Grunnuvík og stingum svo af upp á fjöll. Þá væri þetta bæði orðið sjó- og fjallaævin- týri,“ mælti Halli. „Já, en hvað heldur þú að yrði gert við okkur, ef við næðumst eða þegar við snerum aftur heim,“ spurði ég. I „O — bara ávítaðir eitthvað, svo og sennilega hýddir. En hvað myndi það vega upp á móti hinum stórskemmtilegu og spennandi ævintýrum, er við myndum lenda í?“ svaraði Halli. Hann var kaldari en ég, en um leið kærulausari. „Það er satt hjá þér, þetta yrði mjög skemmtilegt,“ mælti ég. „Já, og svo hefði pabbi gott af því að koma svolít- ið út og viðra sig. Hann situr alltaf inni á skrifstof- unni, kengboginn yfir pennanum eða ritvélinni,“ sagði Halli. „Þú átt við, að hann mundi veita okkur eftirför.“ sagði ég. „Já, hann mundi sennilega gera það. Kannski er 24 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.