Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1968, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.01.1968, Qupperneq 31
og nú ætla ég líka að fara að leita að gulli,“ mælti Halli um leið og hann stóð á fætur. „Gull, gull, gull. Blessaður farðu að leita að gulli, bróðir sæll. Frekar mundi ég nú fara upp í klettana hérna fyrir ofan og príla þar heldur en að fara að leita að gulli,“ sagði ég, sem nú var allt í einu búinn að fá hina mestu andúð á gulli, af hverj u, sem það nú stafaði. „Uss, hvað heldur þú að þú getir prílað maður? Svo er það líka til einskis. En að leita að gulli, það er nú nokkuð, sem ekki er til einskis. Ég gæti vel trúað því, að hérna innst inni í hellinum sé gull fal- ið og ég ætla líka að athuga það,“ mælti Halli. Ég lét mér fátt um finnast og horfði með vanþókn- unarsvip á bróður minn, sem nú var farinn að róta með höndunum í þurrum sandinum, innst inni í hell- inum. Hann hlýtur að vara búinn að fá gullæði, hugs- aði ég: En ég varð mjög undrandi, þegar Halli hróp- aði allt í einu: „Ég er kominn niður á gullkistu, maður. Komdu bara og sjáðu.“ III Hvort sem ég trúði Halla eða ekki, reis ég á fæt- ur og gekk til hans. Og maður lifandi, hann var kom- inn niður á eitthvað, sem vel gat verið gullkista. „Brjótum upp þessa gullkistu. Já, við verðum að athuga, hvort þetta sé í raun og veru gullkista,“ sagði ég nokkuð æstur. „Uss, engan æsing, maður. Nú strjúkum við fyrst sandinn af lokinu og tökum það síðan af kistunni. Þá sjáum við, hvort þetta er gullkista eða ekki. Ef svo er, að þetta sé gullkista, þá gröfum við hana upp, þótt við verðum að gera það með höndunum,“ sagði Halli sem nú vildi auðsýnilega ráða öllu, enda hafði hann líka ástæðu til þess. Ég samþykkti það sem Halli sagði og við fórurn þegar að koma sandinum af „gullkistulokinu“. Með- an við vorum að því, taldi ég alltaf minni og minni líkur á því, að þetta væri gullkista, sem bróðir minn hafði fundið. Þetta gat bara verið hleri, sem einhverra hluta vegna hafði grafizt þarna í sandinn. Ég virtist hafa rétt fyrir mér, því að þegar við vorurn búnir að sópa öllum sandinum af „gullkistulokinu“, þá leit það út eins og hleri. En Halli var þögull, á honum sáust engin svipbrigði. Hann beygði sig niður og tók upp „gullkistulokið“, en það reyndist aðeins eins manns verk að gera það. En hvað kom nú í ljós, gull eða hvað? Nei, kol- svart gat blasti við okkur bræðrum. Leynigöng, datt mér þegar í hug. „Nú vantar okkur illilega vasaljós, bróðir sæll,“ sagði Halli. Hann var, sem ég, undrandi yfir þessu kolsvarta gati. Voru þetta kannske útidyrnar hans Kölska gamla? „Nei, nei, okkur vantar ekki vasaljós. Mitt, það litla er í úlpuvasa mínum. Ég vissi ekki, að það væri þar, fyrr en áðan, þegar við vorum að leita að þess- um helli,“ sagði ég hróðugur. „En sú heppni. En náðu nú fljótt í það. Ég er orð- inn svo forvitinn,“ mælti Halli. Ég sótti í flýti vasaljósið. „Lýstu nú niður í þetta dularfulla hellisgólfsgat,“ sagði Halli spenntur, er ég kom með vasaljósið. Það þurfti ekki að segja mér fyrir verkum, en Halla fannst ég alltaf vera svo svifaseinn, hvort sem ég er það eða ekki. Ég lýsti nú niður í þetta dularfulla gat. Þá sáum við bræðurnir okkur til mikillar undrunar, að niður úr þessu gati lágu þrep, sem höggvin höfðu verið í bergið. „Ha, leynigöng, maður. Nú þykir mér vera farið að týra,“ hrópaði Halli. „Þetta er undarlegt, leynigöng, alveg eins og í sögubók, og það hér í Litluvík. Og hvert skyldu þessi göng eiginlega liggja?“ Ég sagði þessi orð alveg frá mér numinn af undr- un. Ég er viss um, að ef ég hefði þessa stundina litið í spegil, þá hefði ég bara séð eitt stórt spurningar- merki. „Hvert þessi leynigöng liggja verðum við nú að rannsaka. Það gera alltaf hetjurnar í sögubókunum,“ sagði Halli í ævintýrahug. „Já við verðum að gera það að sjálfsögðu,“ sagði ég, en bætti svo við: „Þetta er svo merkilegur fund- ur sem við höfum gert, að ég get ekki lýst því með neinum orðum.“ „Já,“ sagði Halli, „þetta er mjög merkilegur fund- ur, en hverjir skyldu hafa höggvið þessi þrep?“ „Sennilega útilegumenn,“ svaraði ég. „Já ef til vill, eða kannski írar, þegar þeir voru að forðast Norðurlandabúana, er þeir síðarnefndu voru að nema land hér,“ sagði Halli. Við hættum nú þessu tali og Halli stakk upp á því Heima er bezt 27

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.