Heima er bezt - 01.01.1968, Síða 35

Heima er bezt - 01.01.1968, Síða 35
henni mætti vera sama, ekki hefðu Þjóðverjar gert henni neitt eða hennar þjóð. „Nei, en allir segja að þeir séu villidýr en ekki menn.“ „Við skulum ekki tala um stríð, það er andstyggi- legt. Finnst þér ég vera villidýr? Ég segja þér, það eru bara fáir menn sem skipa þjóðunum í stríð. Þetta er brjálæði. Menn sem voru beztu vinir mínir í gær, drepa hver annan í dag.“ „Nei, menn drepa ekki vini sína,“ sagði Vala. Hún var að hugsa um, að aldrei gæti hún látið gera Úlla mein né gera það sjálf, þó hann sé óvinur. „Jú, í stríði allt snýst við. Það voru oft útlending- ar heima. Þeir voru eins og bræður okkar. Svo allt í einu vorum við óvinir þeirra og þeir okkar, engum var að treysta.“ Hann var búinn að segja henni frá íslenzkum manni, sem var hjá foreldrum hans nokkur ár. Þegar Úlli var drengur, lærði hann hjá honum hrafl í ís- lenzku að gamni sínu. Og einmitt þess vegna hefði hann nú, þótt ungur væri, verið þjálfaður sem njósn- ari og sendur til fslands. Vala fór einn morguninn með Úlla upp í hellinn. Það var eins og henni hefði dottið nokkuð í hug. Það var Bergmálshellirinn! Og hann var auðfundinn. Hún sýndi honum hellinn hærra í berginu. Um þenn- an helli vissi aðeins hún og Manga gamla. Og ótrú- legt var að Manga færi að klifra í kletta, kornin um sextugt, svo það ætti að vera öruggt fyrir hann að halda þar til. Vala hafði útvegað honum stoppunál, þá einu sem til var á heimilinu, og hann hafði keppzt við að staga bætur á föt sín, svo hún gæti skilað nálinni sem fljót- ast. Það var ekki hlaupið í kaupstað á hverjum degi frá Hamri. Málfríður belgdi sig upp, þegar hún fann hvergi nálina, leitað var á líklegustu og ólíklegustu stöðum, allt kom fyrir ekki, nálin hafði orðið „uppnumin“, því enginn þóttist hafa á henni snert. Mestu lætin voru um garð gengin þegar Vala kom heim af engj- unum, og hún var aðeins spurð lauslega eftir nálinni. Hún hváði bara undrandi og slapp með það. Morguninn eftir var nálin á sínum stað stungin í þilkörfu sem hékk í eldhúsinu. „Þarna sjáið þið,“ sagði Manga sigri hrósandi. „Ég sagði að ekki þyrfti að leita þessi ósköp, nálin kæmi þegar búið væri að nota hana. Það er skilvíst, huldu- fólkið, það er víst um það.“ Málfríður sagðist ekki anza þessu huldufólks- kjaftæði. „Hvaðan kom þá nálin?“ spurði Manga snefsin. Því gat Málfríður ekki svarað, enda varla von. Það má fátt hverfa á fátæku heimili, svo ekki sé eftir því tekið. Það mátti Vala reyna þetta haust. Hún gat farið að grenja af öllum þessum látum. Ekki mátti hverfa svo mikið sem teppisræfill eða striga- poki, svo ekki væri farið að rexa: „Hvar er pokinn sem ég lét þarna í gær? Komið þið með pokann, svona sækið hann, ekki hefur hann hlaupið burtu sjálfur! Vala kenndi í brjósti um krakkagreyin, sem fengu skammir fyrir hennar atferli, en hún gat ekkert sagt. Manga gerði henni óviljandi oft gramt í geði. Hún var reglusemin sjálf holdi klædd, og hafði augun alls staðar. Að hennar dómi átti hver hlutur að vera á sínum stað. Vala óskaði þess oft, að hún gæti gert Möngu að- ila að leyndarmáli sínu, þá hefði allt verið svo miklu auðveldara, en þetta var alveg óhugsandi. Manga hat- aði hermenn, hverju nafni sem þeir nefndust. Hefði Vala beðið hana að leyna huldumanni, hefði Manga óðar gert það eftir beztu getu. Aldrei datt henni samt í hug að reyna að telja Möngu trú um, að Úlli væri huldumaður, þó var hún ekki viss um nema það hefði tekizt. Einn morguninn færði hún Úlla spegilbrot og rak- vél föður síns ásamt skærum. Hún gat ekki annað en hlegið, þegar snyrtingunni var lokið. Varla var hægt að segja að klippingin væri fyrsta flokks, og rakstur- inn kostaði miklar þjáningar. Úlli hét því að reyna þetta ekki aftur fyrr en hann væri kominn heim aftur. Það var ljótur söngur í húsbóndanum, þegar hann næst sargaði af sér skeggið. Hann fullyrti að fiktað hefði verið rakvélinni, þótt jafnvel Málfríður stæði með krökkunum og segði, að þau væru öll saklaus. Það væri þá helzt Manga, sem hefði þurft á henni að halda. Þetta var meira en Manga þoldi, því þótt hýjung- urinn á efri vör hennar og höku væri ræktarlegur, þóttist hún ekki þurfa að þola neinar glósur frá Mál- fríði um það, hún væri sjálf litlu skárri. Svo strunsaði Manga inn til sín, læsti hurðinni og gerði ekki svo mildð sem koma fram og mjólka í þrjá daga. Það voru aumu dagarnir, verkin hennar gerðu sig ekki sjálf. Heima er bezt 31

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.