Heima er bezt - 01.06.1972, Page 13

Heima er bezt - 01.06.1972, Page 13
LILJA S. KRISTJANSDOTTIR: SKRIÐAN ‘Bemskuminning að var dásamlegur vormorgun. Sólin var á gægjum bak við fjallsbrúnina eins og hún væri að gá að því, hvort íbúar dalsins væru eins árvakrir og hún sjálf. En hún gætti sín ekki nógu vel. Hinn gullni haddur hennar féll niður í dalinn og náði því lengra því hærra, sem hún teygði sig. Langvarandi rigningar höfðu gengið undanfama daga. Jörðin virtist því drekka í sig geisla sólarinnar. Grund- irnar og fjöllin glitruðu í öllum regnbogans litum, svo að unun var á að horfa. Það voru fleiri árvakrir en sólin. Þegar geislar hennar féllu inn um lítinn glugga á lágum bæ, mættu þeir tveim bláum, tárvotum augum, sem leiftruðu í skini sólarinnar. Þarna lá unglingsstúlka, tæplega á fermingaraldri, ég sjálf. Nágrannarnir höfðu skotið yfir mig skjólshúsi síð- ustu dagana. En í nótt strauk ég, læddist heim. Ég þráði að vera ein um stund á þessum stað, sem allar fagrar, bjartar minningar voru tengdar við og einnig sárustu harmar minnar skömmu ævi. Mér hafði ekki komið dúr á auga alla nóttina. Það voru þjáningadrættir kringum barnsmunninn og sorgar- glampi í augnum. En þegar sólin kom upp, leið mér betur. Ég tók föt mín og klæddist, lét skó á bera fætur mína og gekk hljóðlega út. Þegar ég kom út á hlaðið, glitraði döggin á grasinu. Nóttin hafði líka fellt tár. Það var mér huggun. Ég strauk höndinni mjúklega yfir döggvott grasið og lagði hana síðan á sveitt ennið. Hin hreina náttdögg var hin unaðslegasta lækning, sem ég gat hlotið. Síðan lagði ég land undir fót, stefndi á stóran stein uppi í fjalli og keppti við sólina. Vott grasið slóst um fætur mína og veitti mér einkennilega svölun. Þegar ég kom upp að steininum, settist ég niður og horfði yfir sveitina. Sólin var enn langt niðri í brekkun- um. Enn héldust dagur og nótt í hendur yfir dalnum mínum. Áður en nóttin hvarf, renndi hún angurblíðu augnaráði yfir eystri fjöllin. Eftir langvarandi rigning- ar var jörðin gegnvot. Mosinn í fjöllunum sýndi því ótrúleg litbrigði, þegar nóttin var að kveðja. Þó tók ég varla eftir þessari fegurð núna. Ég horfði út í bláinn með biðjandi augum og hvíslaði: „Guð, þú hefir svo oft fært mér frið. Gerðu það einu sinni enn. Pabbi og mamma eru bæði dáin með stuttu millibili, og ég er ein eftir.“ Það hafði verið sárt að missa pabba og mömmu. Þó var það ekki það versta, heldur hitt, að pabbi var búinn að vera lengi veikur. Hin litlu efni hans voru löngu eydd. Nú var ekkert eftir, nema skuldir, og þær þurfti að greiða. Kaupmaðurinn í þorpinu, lánardrottinn pabba, hafði komið daginn áður. Hann lét meta jörðina og húsin og krafðist þess alls upp í skuldina. Ég vissi vel, að þó að bærinn væri orðinn lélegur, þá var jörðin góð. Það var ekki sanngjarnt verð, sem hún var metin á, það höfðu nágrannarnir líka sagt. En hvað gat ég gert? Þó að ég væri í raun og veru hinn rétti eig- andi jarðarinnar, þá var ég enn svo ung og átti forsvars- menn fáa. Það voru ekki peningar, sem ég var að hugsa um. Ég var ung og hraust, átti lífið framundan, og gat vel unnið fyrir fé til að greiða skuldina, ef það aðeins mátti bíða í nokkur ár. Ég hafði hert upp hugann og minnst á þetta við kaup- manninn, en hann tók því með skætingi. Ég vissi vel, að hann ætlaði sér að hagnast á mér. Hann ætlaði að taka handaverk foreldra minna, breyta þeim og bylta. Þó voru þau það eina, sem ég átti til minningar um þau. Hann var ræningi, sem ætlaði að svipta mig föðurarfinum. Hérna höfðu pabbi og mamma búið í mörg ár. Hérna höfðu þau byggt sér heimili, lifað í ást og eindrægni, alið mig upp og lokað augum tveggja systkina minna í hinzta sinn. Þessi staður var það eina í heiminum, sem mér var kært. Hvað átti svo að verða um mig, þegar búið var að svipta mig öllu? Átti ég að hrekjast vinalaus og heimilis- laus um þennan kalda heim? Ég hafði enga landsýn, átti enga höfn, þar sem hægt var að varpa akkerum í ofviðri lífsins. Mér fannst spjótsoddur nísta hjarta mitt og skera sundur allt það viðkvæmasta og bezta, sem ég átti, ræturnar og minningarnar, sem tengdar voru við bernskuheimilið. Gat ekki maðurinn skilið tilfinningar mínar? Gat Heima er bezt 193

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.