Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 14
hann ekki haft samúð með mér, sem var nýbúin að missa báða foreldra mína og átti ekkert eftir? Nei, það var hvergi miskunnar að vænta í þessum kalda heimi. Það var tilgangslaust að hugsa um slíkt. Hitt var meiri huggun að renna huganum til þeirra, sem líkt var ástatt fyrir. Eg fór að hugsa um þær þjóðir, sem höfðu borizt á banaspjótum. Var ekki tilgangurinn þar sá sami og hjá kaupmanninum? Réðst ekki hinn sterkari og voldugri á lítilmagnann, kúgaði hann, tók með of- beldi eigur hans, rak hann landflótta burtu eða ofurseldi hann ánauð og þrældóm. Þá áttu hinir betra, sem misstu allt sitt í eldi eða fyrir sprengjum. Það lenti þó ekki í höndum óvinanna þeim til hags. Ætti ég að kveikja í bænum? Nei, það væri synd. Pabbi og mamma hefðu óskað þess, að ég léti æðri hönd stjórna þessu öllu. Allt í einu fann ég hitastraum fara um mig. Sólar- geislarnir höfðu náð upp til mín. Mér fannst þeir reyna að smjúga inn að hinu hrellda hjarta mínu og græða djúpu undina, er sveið svo mjög. Eg litaðist um. Þarna í kringum mig voru kindurnar, sem ég þekkti svo vel. í gærmorgun voru þær mín eign, en í gærkveldi voru þær komnar í annarra hendur. Þær voru vinir mínir, sem ég varð að láta af hendi. Ég hafði vonað, að peningar þeir, sem ég eignaðist á uppboðinu, nægðu til að greiða kaupmanninum skuldina. En hún var svo mikil þessi skuld, og krafan var miskunnarlaus. Þegar ég sat þarna og hugsaði, heyrði ég allt í einu einhvern þungan nið. Eg htaðist um. Niðurinn óx og varð að öskri. Mosalitaða hlíðin, sem í morgun var svo fögiu: ásýndum, hreyfðist. Kindurnar tóku viðbragð og hlupu sem fætur toguðu eitthvað út í buskann. Ég sat ein eftir og horfði á skriðufallið. Jörðin titraði, og ég hugsaði, að nú fengi ég víst að fara með. En svo varð ekki. Ég svimaði og æpti upp yfir mig, þegar skriðan nálg- aðist bæinn heima. Á svipstundu var honum sópað burtu. Túnið og engjarnar urðu að moldarflagi, þar sem steinarnir stóðu upp úr eins og klettar úr hafinu. Niðri við ána stöðvaðist skriðufallið, aðeins lítill hluti þess féli fram í hana og litaði hana. „Áin litaðist af svitadropum og hjartablóði pabba og mömmu,“ sagði ég við sjálfa mig. Þó ghtruðu gleðitárin í augum mínum, er ég leit til himins og hvíslaði með grátþrunginni rödd: „Ég þakka þér, Drottinn.“ Þegar kyrrð var komin á, gekk ég rólegum skrefum niður moldarflagið. Ég var að fara heim. Ég vissi, að kaupmaðurinn tæki ekki fallnar rústir og sundurtætt land upp í skuldina. Jörðin var mín eign. Sama valdið, sem hafði hrifið burt foreldra mína, hafði nú að vísu eyðilagt handaverk þeirra. En. rætur mínar höfðu ekki skerzt. Þær stóðu dýpra en skrifufall- ið náði. Ég átti fast land undir fótum, land, sem enginn gat haggað. Hannes Hjartarson Framhald af bls. 186. ____________________________ raunar fleirum — að drykkjuskapur er okkar rammasta þjóðarböl og niðurdrep fyrir hvern þann, sem verður áfengissýkinni að bráð. Gegn þessum háska hefur hann iagt fram mikið starf í félagssamtökum bindindismanna. Á yngri árum Hannesar á Herjólfsstöðum var sr. Bjarni Einarsson prestur í Álftaveri og sat á Mýrum. Hann var strangur bindindismaður. Hafði hann mikið starfað í stúkunni Einingin í Reykjavík á skólaárum sínum. Eftir að hann komst út í prestsstarfið, taldi hann sér skylt að láta þetta velferðarmál til sín taka og stuðla að bindindisstarfsemi meðal safnaða sinna. Gekkst hann fyrir stofnun bindindisfélags í Álftaveri laust fyrir alda- mótin. Upp úr því félagi var stúkan Foldin nr. 88 stofn- uð 1903. Var Hannes einn af stofnendum hennar og hefur verið meðlimur hennar alla tíð síðan. Var hann með í því starfi af lífi og sál og gegndi þar lengi starfi umboðsmanns. Er þeim, sem þetta ritar, enn í fersku minni hve vel Hannes, þá aldraður orðinn, naut þess að vera með unga fólkinu á samkomum þess þegar bindindi var í heiðri haft og það skemmti sér án þess að vera undir áhrifavaldi vínguðsins. Mundi vissulega öðruvísi vera umhorfs á þessu sviði þjóðlífsins, ef fleiri menn, sem segjast sjá háskann og viðurkenna hann í orði, leggðu sig fram um að starfa að uppbyggingu bindindissamtakanna í landinu. Hannes Hjartarson horfir nú úr hárri elli yfir sína löngu ævi. Ekki hefur hann gert víðreist um sína daga. Vel hefur hann og hans fólk unað sér í sinni heima- byggð, sveitinni litlu frammi við sjó, milli Mýrdalssands og Kúðafljóts, sem sífellt á Kötlugos yfir höfði sér. í þeirri sveit er Hannes á Herjólfsstöðum góður fulltrúi þeirrar kynslóðar, sem um síðustu aldamót stóð í broddi lífsins, ung og djörf og fús til að fórna sér fyrir frelsi og framfarir þjóðar sinar. Vér öll, sem nú lifum, stönd- um í mikilli þakkarskuld við þetta fólk. Þá skuld skulum vér gjalda með því að vera trú hugsjónum þess. Þá mun oss vel vegna. Leiðréttingar í grein um Einar Guðfinnsson, í marzblaði H. e. b. 1972, aftara dálki 7. línu að neðan, stendur Margrét Thorberg, á að vera Kristín Thorberg. Á bls. 78 í sömu grein, 11. 1. a. o., upp með mynd stendur Geirfinnur, á að vera Guðfinnur. Á bls. 79, fremri dálki, 25. 1. a. o., stendur Pétmr Friðgeir, á að vera Pétur Guðni. 194 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.