Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1972, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.06.1972, Qupperneq 20
TDraumur eha veruleiki? Við lauslega athugun á stúdentspróftöflum virðast mér stúlkurnar vera rneiri námsmenn en piltar, þegar á heildina er litið, og munurinn eykzt ár frá ári. Ef þetta er rétt, mætti segja, að þær væru iðnari og samvizku- samari. Bezt er að taka fram, að próf segja ekki allt, eru þó eini mælikvarðinn á kunnáttu námsefnis. Líka mætti hugsa sér, að piltar veldu þyngra námsefni. Svo mun þó ekki vera. Það er nokkuð jafnt á bæði kynin. Hitt veit ég, að piltarnir eru miklu meira áberandi í margs konar félagsmálastússi skólanna, sem orðið er talsvert og hlýtur að taka mikinn tíma, nokkrir eru önnum kafnir við að frelsa heiminn samhliða vikulegri skemmt- unargleði. Við gætum þess vel, að æsku okkar skorti ekki peninga, því íslendingar voru eitt sinn fátæk þjóð. Ef hún vinnur ekki fyrir þeim sjálf, mokum við þeim bara í hana, án þess að hugsa hið minnsta urn afleiðing- arnar, kaupum hana jafnvel af okkur til að hafa frið. Það skyldi þó aldrei vera, að námsiðni stúlknanna staf- aði af því, að þær væru yfirleitt fúsari að beygja sig undir þann litla aga, sem krafizt er af námsfólki, og er raunar forsenda þess, að einhver árangur náist? Agi, sagði ég. Þar nefndi ég orð, sem mörgum finnst alveg voðalegt og jaðra við frelsisskerðingu, auk þess að vera hlægilegt á þessum tíma hins mikla jöfnuðar. Brosið myndi enn breikka ef ég tæki mér í munn orðið virð- ing og það að bera virðingu fyrir einhverju og einhverj- um. Svoleiðis hugsandi karlhólkar væru betur komnir undir græna torfu. Og björgin myndu klofna af hlátra- sköllum ef ég talaði bara um virðingu fyrir sjálfum sér og því, sem maður væri að gera. Enda ekki að marka, ég er orðinn svo ruglaður í öllu auglýsingaflóðinu, að ég kaupi þvottaduft í staðinn fyrir ostbita, ef fyrr- nefnda auglýsingin er tuldruð oftar. Og við lá, að ég legði bílnum mínum, þegar mér var sagt, að vélin í honum hefði eðlishvatir, svo var tekið til orða. Úr því svo var komið, var ómögulegt að vita upp á hverju hann fyndi. Hvatir geta leitt til svo margs. Já, það er satt, sennilega er ég forneskja úr því mér finnst orðið agi ekkert gamaldags, — og púkó að rugla þyí ekki saman við ofstjórn. Ég er ekkert á móti því að láta mér líða vel, t. d. við vinnuna. En hvemig yrði bragurinn á þeim vinnustað, þar sem allir teldu sig hafa mest vitið á hlutunum og væru jafn frekir, vildu allir ráða? Ég mundi frekar ger- ast hippi en vinna á slíkum stað. Skólarnir eru ekkert annað en vinnustaður, þar sem töluverð vinna á að fara fram, nóg fyrir meðal ungling. Vel kann að vera, að þrekmikill og andlega vel búinn slöttólfur geti vafstrað í flestu, sem hugurinn girnist, án þess það bitni á náminu, en obbinri getur það ekki. Nú ertu anzi harður við skinnin, munu einhverjir segja. Nei, það finnst mér ekki. I rauninni er ég að leika við þau eins og allir aðrir. Ég á minn hlut í sjónarspili frá barnaskólaárum til stúdentsprófs, og ég hef ekki einu sinni gefið mér tíma til að hengja bleyjuna til þerr- is, hvað þá að þurrka talkúmið af bossanum. Ég gæti meira að segja hugsað mér að taka þátt í því að leika við þau í kirkjunni, því annars neita þau að koma þang- að. Og meira hef ég gert, ég hef ýtt undir sérfræðina, því nú á dögum er allt sérfræði. Stundum læðist að mér sá grunur, að sumt af því, sem það heiti ber, sé ekki annað en það, sem nefnt var almenn skynsemi. Sér- fræði skapar sérfræðinga, og þeir segja: allt skal jafnt; við gerum alla að stúdentum og gerum það próf að lyldi flestra annarra starfa á þessu landi. Þar með er mörkuð leið frá fornri dáð, sem við þó óðfluga stefnd- um að og var einu sinni talinn bezti skólinn, að vega fólk og salta kýrkjöt á Englands- og írlandsströndum. Gæta verður þess vel, að stúdentsprófið verði ekki forréttindi, því skal taka af einkunn þess duglega og bæta við hinn laka, því aðalatriðið er að ná prófi. Helzt verður að afnema alla einkunnagjöf, þá er allur þessi hlægilegi munur horfinn og ég fæ stúdentstitilinn, rétt eins og lán úr lífeyrissj óðí. Þeir sem hugsa öðru vísi skilja ekki jafn fín orð og firring, kerfi, o. fl. þ. h. Allt skal jafnt. Ég vil hafa rétt til að þræta við kenn- arann um námsefnið, og mér er alveg sama, þótt hann hafi varið mestum hluta ævi sinnar í að nema fræðin. Vilji hann halda sönsum, er bezt fyrir hann að líta á starf sitt sem kolamokstur, ella verður hann skammaður í skólablaðinu, jibbi, jibbi, je, hey. Ef einhver gæi ætlar að taka upp á jafn borgaralegum hugsunarhætti og að skara fram úr í einhverjum fögum, skal talað við hann með tveim hrútshornum. Og ef skvísurnar eru með eitthvert metnaðarbrölt, eins og hef- ur sýnt sig, er einfalt ráð við því. Bara binda trúss sitt við þær, þá hætta þær, jafnvel vinna fyrir mér, og þá hafa rauðsokkurnar sko eitthvað að tala um. Hvað er hjúkrunarkona án stúdentsprófs? Sú kona kann ekki að meðhöndla bekkenið rétt. Éða ljósmóðirin? Hún getur sko ekki reiknað út hvenær barnið kemur. 200 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.