Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 22
við dyggilega eftir þjóðsögunni, sem ég tilfærði hér að ofan, og tætlum hrosshárið okkar. E. E. Lei&rétting í síðasta maíblaði Heima er bezt, bls. 163 í greininni „A leggjum Bíldsá brýtur" hefur orðið rughngur á efnisniðurröðun. Síðasta málsgreinin í fremra dálki (næst á undan vísunum) á að færast á aftari dálk, en fyrsta málsgrein á eftir vísunum, sem byrjar þannig: „Áð er við tæra lækjarsytru" o. s. frv., kemur í hinnar stað, næst á undan vísunum. Þá hefur orðið brengl á 3. vísu. Rétt er hún þannig: Svo hleypum við í hlaðið og hestum sprettum af. Nú helgarleyfi er hafið hér á Sörlastað. ^— =5 - (■H - * - - "■ i \-m — «1 mkv DÆGURLAGA^ áttUKÍHH Ætli við byrjum ekki þennan júníþátt á nokkrum dægurlögum unga fólksins, og fyrsti textinn verður eftir hinn vinsæla Björgvin Halldórsson og lagið er víst líka eftir hann. HORFÐU Horfðu á lítið barn, sem leikur sér, í einfaldleika sínum hreykir sér. Skalt þú minnast? Skalt þú gleyma? Viðlag: La—la—la—la—la—Ia—la Horfðu á tunglið, horfðu á stjömurnar. Sjáðu himinhvolfið gleypa þig. Skalt þú eflast? Skalt þú hörfa? Þú hugsar um þitt draumaríki. Þú kallar, en færð ekkert svar. Ég sé þig líða langt í burtu frá mér og frá sjálfum þér. Þú hugsar um þitt draumaríki. Þú lifir í draumi. Áfram þú gengur, gengur, gengur. Um næsta texta get ég lítið sagt, en á handritinu fyrir framan mig stendur, að hann sé fluttur af Hannesi Jóni Dylan, hvað sem það á nú að merkja, en heitið er TILEINKUNN Ég man þig enn, ég man þig enn klessumálarinn minn, með litsterkju kringum augun og rauðan blett á kinn. Tónöldur skoluðu okkur saman á flæðisker, Það var eitt af þessum kvöldum, sem að kemur bara ög fer. Við áttum saman öldudans í mannhafi eitt sinn, og hljómlistin og hundafans heilluðu huga minn. Svo komstu heim í kjallarann minn, því kitran mín var tóm. Ég gaf þér brennivín í kók, en ekki kærleiksblóm. Ég gaf þér ekkert, en sjálfur tók auðmýkt þína og ást, og raupaði um sjálfan mig af mælgi, sem ei brást. En er ég undi ánægður, umkomulaus þú lást, mér fannst svo óra fjarlægt þá, að hægt væri að þjást. Þó liðið hafi ótal ár og allt sé orðið breytt, í gleymskuskógi stendur kvöld svo undarlegt og eitt, því alltaf birtist þú aftur og herjar huga minn. Ég man þig, man þig sem klessumálarann minn. Punktum og basta. Næsti texti mun vera úr hinum vinsæla söngleik Hárinu, og er saminn eða umsaminn af Kristjáni Árnasyni. Mörg laganna úr þessum fræga söngleik eru býsna skemmtileg. ANDA ÞÚ SKALT Halló brennnisteinsbræla, blessuð kolsýringssvæla, ég finn, ég finn loft flæða um allt, djúpt inn anda þú skalt — ávallt. Blóðrás, bullandi af víni; brjósthol, fyllt níkótíni. Ég ljúfan ilm, finn leika um allt, djúpt inn þú anda skallt — ávallt. Einu sinni minntist ég á hljómsveitina Mána frá Sel- fossi á þessum síðum og birti frumlega mynd af þeim. Næstu þrír textar eru í tengslum við þessa hljómsveit. 202 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.