Heima er bezt - 01.06.1972, Page 24

Heima er bezt - 01.06.1972, Page 24
Shady Owens, Engilbert Jensen og Gunnar Jökull, allt kunnar íslenzkar poppstjörnur, eins og Jens Kristján Guðmundsson frá Hrafnhóli í Skagafirði teiknar þœr. ur, og úr því þeir bera ekkert skynbragð á þessa hluti, finnst mér engin skömm að því að leita sér fræðslu um það. Þeir verða meiri menn að. Þjóðhátíð í Eyjum er mikil skemmtun og þar fer margt fram, sem geymist í minni. Mitt álit er þó það, að varanlegastir verði Þjóðhátíðartextarnir hans Ása í Bæ við lög Oddgeirs Kristjánssonar. Næsti texti er einmitt þjóðhátíðarlag Vestmannaeyinga frá 1961 við texta Ása og lag Oddgeirs. SÓLBRÚNIR VANGAR Sólbrúnir vangar, siglandi ský og sumar í augum þér. Angandi gróður, golan hlý og gleðin í hjarta mér. Söngur í lofti, sólin skær og svo eru brosin þín yndislegri en allt sem grær og ylmar og hjalar og skín. Ástin og undrið æskunnar förunautar; nemum og njótum næði meðan gefst. Látum því daga líða á ný með ljóð af vörum mér, sólbrúna vanga, siglandi ský og sumar í augum þér. Að lokum birti ég svo texta við gamalt og fallegt lag: „Love’s old sweet song“ eftir J. L. Molloy. Góð vin- kona þáttarins, sem sendi ljóðið, veit ekki höfund text- ans og vill ekki ábyrgjast, að hann sé alveg réttur. LOFNARMÁL BLÍÐ Eitt sinn á langa löngu gleymdri öld, er ljósin himins byrgðu skuggatjöld, spruttu í brjóstum fyrstu Lofnarljóð, ljóð, sem að kveiktu fólgna munarglóð. Og þegar rökkrið lýstu langeldar, ljóðskáldið fyrsta óf í hendingar. Menjar mætra stunda minning húms og báls, fögnuð ástafunda, fegurð söngs og máls, sem í hlátri og harmi hafa alla tíð lagt á lýðsins tungu: :/: Lofnarmál blíð :/: Ennþá í dag að eyrum vorum ber ómana fornu, sem að þekkjum vér. Þreyzt getur fótur, þrotið getur dag, þá hljóma strengir, undir sólarlag. Þannig unz hjartans hinzta kulnar glóð, hugurinn geymir fólgin munaljóð. Menjar mætra stunda, minning húms og báls, fögnuð ástafunda, fegurð söngs og máls, sem í hlátri og harmi hafa alla tíð lagt á lýðsins tungu: :/: Lofnarmál blíð :/: Lofn = ástargyðja; menjar = léifar, vottur um e—ð; munarglóð = ástareldur. Fleiri Ijóð birtast ekki að sinni. — Kær kveðja. — E. E. BRÉFASKIPTI Þuríður Osk Gunnarsdóttir, Núpl, Djúpavogi, óskar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 9—10 ára. Ásgerður Jóhannesdóttir, Barónsstíg 11, Reykjavík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum ló—17 ára. Jóhanna Jóhannesdóttir, Barónsstíg 11, Reykjavík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 17—18 ára. Arnleif Gunnarsdóttir, Mói, Dalvík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Sigríður Helgadóttir, Alviðru, Dýrafirði, óskar eftir bréfa- skiptum við stelpur og stráka á aldrinum 14—15 áa. Mynd fylgi fyrsta bréfi. 204 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.