Heima er bezt - 01.06.1972, Side 34

Heima er bezt - 01.06.1972, Side 34
unga stúlkan við sig, kippti í handlegg gamla mannsins og sagði með undrun og aðdáun: „Ne-ei. Þetta þekki ég af myndum. Þetta er Ráð- hússtorgið og þarna er ráðhúsið fræga.“ , Já, það er rétt,“ svaraði gamli maðurinn. Þó að þau hefðu aðeins knappan tíma til þess að litast um í þessari stórborg, var það ótrúlega mikið, sem gamla manninum tókst að sýna gangastúlkunni af því sem markverðast var þarna í námunda við Ráðhússtorgið. Fyrr en varði var tíminn þrotinn og ekki um annað að gera en flýta sér til flugvallarins. Þar var farangurinn vigtaður, farseðlar áritaðir og afhent útgönguspjöld. Á tilsettum tíma hóf þotan sig á loft og bókstaf- lega þaut áfram. Hærra og hærra var stefnt. Flug- þerna tilkynnti, hver væri flugstjóri, hversu hátt yrði flogið, komið yrði við á flugvellinum í Glasgow og fleira. „Á heimleið! Á heimleið! Á leiðinni heim,“ hljómaði fyrir eyrum ungu stúlkunnar. Það var samt enginn, sem sagði þessi orð, heldur hugur hennar sjálfrar, sem bergmálaði í hljómlausum orð- um dulúðuga þrá eftir því að koma heim. Á Glasgow-flugvellinum var stutt viðstaða. Þar keypti gamli maðurinn talsvert af sælgæti og minja- gripum, sem hann sagðist ætla að bæta upp með þær gjafir, sem hann hefði keypt í Noregi. Ganga- stúlkan fór að dæmi hans, þó að í mun minni stíl væri. Flugvélin hóf sig til flugs yfir blómlegar byggðir, hæðir og dali. Loks var lagt út yfir hafið — yfir haf- ið — og heim. Veitingarnar í þessari íslenzku þotu voru rausnarlegar og bornar fram af þjálfuðum þernum, sem auðsýndu farþegunum vinhlýja af- greiðslu. Svo kom tilkynningin um, að innan stundar yrði lent á Keflavíkurflugvelli. Já, þarna var ísland, traust og öruggt, líkt og það biði með eftirvæntingu ferðalanganna, sem voru að koma heim. En gífurlegur munur var á því, hversu það var hrjóstugra yfir að líta en Danmörk og Skot- land. Samt vissu íslendingarnir, sem nú voru á heimleið, að gróðurblettir landsins geta veitt að- stöðu til aukins landbúnaðar í stórum stíl og eru því einskonar forðabúr landbúnaðarins. „Jæja, þá erum við nú komin heim til gamla íslands," sagði gamli maðurinn og brosti til ganga- stúlkunnar, sem leit upp við orð hans. Hún brosti, kinkaði kolli og sagði: „Það tekur vel á móti okkur, blessað landið okkar." 20. kafli. Sólhýr sumardagur. „Þá eru þau nú komin úr sinni löngu reisu,“ sagði gamall maður, sem gekk með eldri manni eft- ir gangstíg í trjágarðinum hjá FRIÐHEIMI. „Ha? Hver kom?“ spurði hinn, setti höndina að eyranum og myndaði hálf-tregt með henni við eyr- að, ef ske kynni, að hann heyrði betur. „Ég sagði, að þau væru komin heim hingað gamli maðurinn og gangastúlkan,“ sagði hinn. Hann var nokkru hærri vexti og varð því að halla sér ofur- lítið til þess að geta talað beint í hálf-tregtina. „Já, þau eru komin. Og ferðin hafðí gengið þeim giftusamlega, heyri ég sagt,“ svaraði hinn með veikri, mjógerðri rödd, sem var að öðru leyti ákaf- lega máttlítil. „Já, mér skilst að þau hafi fundið þennan strák, sem þau fóru að leita að. Ja, það er ekki öll vitleys- an eins. Ég held að þeim peningum hefði mátt eyða til annars nytsamara en að elta strákinn, sem auð- vítað vill ekkert með stelpuna hafa,“ sagði sá stærri. Sá veikróma virtist nú heyra vel, því að hann svaraði, án þess að hvá: „Ég held að blessaðri stúlkunni hljóti að þykja fjarskalega vænt um piltinn sinn. Og þá finnst mér fallega gert af gamla manninum að hjálpa henni til að finna hann. Ég leyfi mér að efast um, að þeim peningum hafi verið varið illa, sem fóru í það ferðalag,“ Hann ræskti sig og dró svo djúpt andann, eins og hann hefði misst af andardrætti við ræsk- inguna. Skammt frá gömlu mönnunum sátu þrjár gamlar konur á bekk og nutu sólhitaðrar lognblíðunnar. „Þau eru víst búin að skemmta sér heldur hressi- lega, gamli maðurinn á 37 og gangastúlkan,“ sagði konan, sem sat á vesturenda bekksins. „Ég held að þeim væri það ekki of gott, greyjun- um, fyrst þau hafa peninga til þess. — En það er eitt, sem ég kann ekki við og það er aldursmunur- inn á þeim. Mér finnst hann vera alltof mikill," sagði konan á austurenda bekksins. „Ég hefi heyrt, að þetta hafi ekki verið nein skemmtiferð, heldur hafi þau verið að reyna að hafa upp á unnusta stúlkunnar. Hann hafði stungið af út í lönd frá henni. Gamli maðurinn fór svo að hjálpa til að finna hann. O-já, þetta hefi ég eftir góðum heimildum," sagði konan, sem sat hér um bil á miðjum bekknum milli hinna. „Ég heyrði þetta nú líka. En það hefir alls konar afsakanir þetta fólk. Þetta lítur svo sem nógu vel 214 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.