Heima er bezt - 01.05.1976, Page 26

Heima er bezt - 01.05.1976, Page 26
og unnt er, þótt hann hins vegar smái ekki flatbrauðs- diskinn. Af og til skotrar hann augunum til pokans bak við stofuhurðina, eða stelst til að líta til bræðranna; honum sýnist þeir býsna kankvísir á svipinn, eins og þeim finnist eitthvað kátlegt. „Kannske húsbóndinn leyfi, að ég leysi frá pokan- um?“ spyr Brandur, þegar lokið hefir verið úr fyrstu bollunum; hann veit af reynslu, að nú er rétta augna- blikið. „Já, láttu okkur bara sjá, hvað þú ert með,“ segir Ás- valdur glaðlega; „þó að við höfum engin efni á að kaupa bækur.“ „Nei, þið ættuð heldur að fá ykkur einhverja flík,“ leggur Halla til málanna, um leið og hún kemur inn með rjúkandi kaffi. „Það er nóg af bókum hér á Fossi — og skotvopnum.“ Þetta er hún vön að segja, í hvert skipti sem Brandur kemur; og samt er það kannske ein- mitt hún, sem með sjálfri sér — feðganna vegna — er ánægðust yfir komu hans. En farandsalinn er þegar kominn fram að dyrum og stendur hálfboginn yfir poka sínum. Af gömlum vana byrjar hann að andvarpa, á meðan hann tekur bækurn- ar upp eina og eina og sýnir þær, síðan leggur hann þær gætilega frá sér á stól. Bræðurnir eru líka staðnir upp og skoða varninginn af áhuga. Ásvaldur einn er kyrr í sæti sínu. „Drekkið þið kaffið ykkar fyrst, svo það kólni ekki,“ segir móðir þeirra. En synirnir eru of önnum kafnir til að gefa áminningum hennar gaum. Brátt eru þeir búnir að yfirfara allar bækurnar. „Hvað kostar þessi?“ spyr Grímur og hampar notaðri reikningsbók. Það lifnar yfir Brandi, sem var bvrjaður að ganga eins og allur í sig við horfurnar á, að hann kæmi engu út á sjálfu bókaheimilinu Fossi. „Hún kostar aðeins litlar tvær krónur,“ svarar hann, „og ég tók hana eingöngu með til þess að sýna ykkur — sem ég veit eruð menntafólk. Þetta er sú albezta reikningsbók, sem til er.“ „Helgi,“ segir Grímur, án þess að veita orðaflaumi farandsalans frekari athygli, „ætti ég að kaupa hana núna? Það er sú, sem notuð er í Samvinnuskólanum.“ Bræðurnir ganga út að glugganum og fletta bókinni í ákafa. En nú er þolinmæði Ásvaldar skyndilega á þrotum. Honum fellur aldrei, þegar drengirnir fara að tala sam- an eingöngu sín á milli. „Það verður ekki miklu komið í verk hjá okkur í dag,“ segir hann og stendur upp frá borðinu; „áfallið er þornað, áður en þið eruð búnir að taka ykkur til — og hvar er Þorvarður? 'Ætli hann kúri ennþá undir sænginni?“ „Nei, hann var kominn á fætur,“ svara bræðurnir og flýta sér að borga Brandi bókina. Ásvaldur þrífur prik, sem liggur á gólfinu, og bankar nokkur högg í loftið með því, jafnframt sem hann kallar á son sinn. En það heyrist ekkert svar. „Þorvarður! Þorvarður! Ertu ákveðinn í að liggja í bólinu í dag?“ Ekkert svar. Að síðustu verður Ásvaldur að leggja prikið frá sér. Nú er farið að þykkna í honum fyrir alvöru. Þá kemur Þorvarður í dyrnar og býður góðan daginn. „Þú feð þér svei mér ekki óðslega á morgnana,“ segir Ásvaldur reiðilega; „hallar þér bara á vangann, eftir að bræður þínir eru farnir.“ „En klukkan er ekki nema hálf-átta ennþá, pabbi,“ svarar Þorvarður, og það kennir titrings í rómnum. „Nú — ekki það!“ Ásvaldur þýtur upp (en úr hans er alltaf einum tíma á undan). „Já, þú vildir auðvitað helzt liggja fyrir allan daginn, og láta færa þér mál- tíðirnar í rúmið, það myndi henta þér vel...“ 1 æsingu sinni verður honum á að stjaka við stólnum með bók- um farandsalans, svo að allur staflinn hrynur niður á gólf. „Ég skal...,“ segir Brandur auðmjúklega og beygir sig niðtu: til þess að tína bækurnar saman. Hann sér, að ekkert muni hægt að gera meir, fyrst bóndinn er orðinn fokvondur. En Ásvaldur heldur áfram þrumunni við son sinn: „Þú verður aldrei að manni... þú hefur ekki áhuga á nokkrum sköpuðum hlut... að minnsta kosti ekki vinnunni... að sitja og húka úti í horni, þar sem þú þarft ekki að hreyfa þig, það er yndi þitt.“ Því næst þrífur faðirinn hatt sinn utan við sig og snarast út úr dyrunum. Nokkrum augnablikum síðar eru bræðurnir þrír á leiðinni út á tún með orf sín. Þeir eldri tala saman í ákafa. En Þorvarður er spottakorn á eftir; í svip hans vottar fyrir þvermóðsku. Heiðblár himinninn hvelfist yfir dalinn, og sólin skín eins og áður. Tvær mjallahvítar kindur koma rambandi niður grýttan ásinn vestan bæjarins, sú þriðja jarmar aumkunarlega einhvers staðar í fjarska. Það leggur hressandi ilm frá heysátunum, þegar drengirnir fara um. Sá gamli er nýbúinn að koma þar og hrófla við þeim um leið og hann gekk fram hjá. Innan skamms munu þeir breiða þær á völlinn. En eftir mjórri götunni, sem liggur frá bænum niður að ánni, labbar Brandur og talar við sjálfan sig í lágum hljóðum: „ — En hvað hann gat orðið vondur. Gott, að þeir voru búnir að kaupa bókina áður....“ Enn hvílir pokinn þungt á herðum litla mannsins. En hann er ánægður yfir að hafa þó komið út einni bók og hafa fengið kaffi. Þar að auki er í bókapokanum hans lítill böggull, sem húsmóðirin á Fossi rétti hon- um, þegar hann fór. — Hvað skyldi það vera, sem hún hefur skenkt, konan? ... Brandur er varla kominn út fyrir túngarðinn, fyrr en hann sezt niður og ranghverfir skjóðuopinu. Fjórar þykkar flatbrauðssneiðar með smjöri og dilka- kjöti á milli! Ekki sem verst! Bara þær væru svona ör- látar á öllum bæjum, húsfreyjurnar. En nú ætlar hann næst að koma að Hrauni — Sléttu og hreppstjórasetr- inu Sunnuhvoli; og halda síðan til baka út dalinn hinum megin árinnar. 170 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.