Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1982, Qupperneq 17

Heima er bezt - 01.03.1982, Qupperneq 17
fólksins. Forn-Grænlendingar hafa því efalaust stundað veiðar af kappi frá fyrstu tíð, bæði heima fyrir, því að fiskur var nægur í fjörðum og ám, og þar var einnig gnótt sela, og hreindýr var þar einnig að fá. En einnig sóttu þeir veiðiskap um óraleið til Norður- setu, m.a. til að afla sér dýrmæts gjaldeyris eins og fyrr var getið. Með- an gnótt var slíkrar vöru var verslun þeirra við Evrópu fjörug, enda þótt þeir hafi naumast siglt þangað eigin skipum að nokkru ráði, nema ef til vill fyrstu aldirnar, en norrænir kaup- menn töldu ekki eftir sér að sigla til Grænlands til að sækja slík dýrmæti og þar var að fá. Það sem nú hefir verið rakið gefur oss nokkra hugmynd um grænlensku þjóðina. Þar hafa verið gildir bændur, sem ráku stórbú og kunnu vel til verka, svo sem húsagerð þeirra sýnir, en vera má einnig, að þar hafi erlendir byggingamenn verið að verki. En Grænlendingar voru einnig djarfir og harðgerðir sjósóknarar, sem ekki töldu eftir sér að fara upp undir þús- und kílómetra leið norður frá byggð- unum, og hafa þar vetursetu í kulda og myrkri heimskautanæturinnar, til að afla nauðsynlegs kaupeyris og trjáviðar. Þegar vér hugsum um hina þrótt- miklu þjóð og virðum oss hin miklu mannvirki, verður spurningin um eyðingu þessa samfélags enn áleitari og harmurinn yfir örlögum þess sár- ari. Margs hefir verið til getið um það efni, og skal drepið á hið helsta. Fyrstu og raunar einu skjalfestu harmafregnina fáum vér um miðja 14. öld. Þá sat norskur maður, fvar Bárðarson sem ráðsmaður á Garða- stóli um 1341-1362, en biskupslaust virðist hafa verið eitthvað af þeim tíma. Einhvern tíma á þessum árum var hann sendur ásamt fleiri mönnum af lögmanni til Vestri byggðar „á móti Skrælingjum, að reka þá brott úr Vestri byggð. Og þá er þeir komu þar fundu þeir enga menn hvorki kristna né heiðna, nema gnótt villifjár og sauða.“ Með öðrum orðum, Vestri byggð er þá eydd af mönnum. En svo mætti ætla af hinni fáorðu frásögn, að þeim í Eystri byggð hefði verið ókunnugt um það, en haft fregnir af einhverjum skærum milli Eskimóa og byggðarmanna. Ekkert sýnir átakan- legar, hversu samgangurinn milli byggðanna hefir þá verið orðinn lítill. Síðasta trausta heimildin um Grænlendinga er frá árinu 1409. En þá voru gefin saman íslensk hjón í Hvalseyjarkirkju „að mörgum dándi- rnanni áheyrandi bæði útlenskum og innlenskum.“ Útlendingarnir hafa sennilega eingöngu verið fslendingar þeir, sem þar voru þá staddir, og sigldu næsta sumar til íslands. Nokk- ur málarekstur varð út af brúðkaupi þessu og eru bréf um það geymd og gefin út í íslensku fornbréfasafni. Síðan þetta vitum vér ekkert um hvað gerst hefir þar í byggðunum, en ráða má það af bréfinu að enn hafi ekkert lát verið á byggðinni þar, þótt meira en hálf öld væri liðin frá eyðingu Vestri byggðar. Vér vitum því ekkert um hvað gerst hefir, hvernig byggðin hafi eyðst og hvenær, eða hvað hafi orðið um fólkið. Fáeinar óljósar sagnir erlendra sjófarenda um að þeir hafi séð fólk þar með norrænu yfir- bragði eru til. En erfitt er að henda fullar reiður á þeim, enda þótt þær séu engan veginn ósennilegar. En mætti taka mark á þeim, er trúlegt, að þar hafi einhver byggð haldist að minnsta kosti út 15. öldina og sennilega lengur. Ein merkilegasta sögnin er frásagan í Grænlands annál af Jóni nokkrum, er kallaður var Grænlendingur, af því að hann hafði þrisvar farið til Græn- lands, er hann var með þýskum kaupmönnum. í einni þeirri ferð vörpuðu þeir akkerum við útey litla „þar voru naust manna og verbúðir nokkrar og margir grjóthjallar eins og hér á landi. Þar fundu þeir einn mann dauðan. Hann hafði hettu á höfði vel saumaða en hafði klæði bæði af vað- máli og selskinni. Hjá honum lá tálguhnífur boginn og mjög for- brýndur og eyddur, þann hníf höfðu þeir með sér til sýnis.“ Þetta telja fróðir menn, að muni hafa gerst um 1550. Þó að hér sé um munnlega frá- sögn að ræða, sem Jón lærði hefir tekið í annál sinn, er eins og Ólafur Halldórsson segir: „aðalatriði hennar virðast trúverðug, og ekkert bendir til að þar sé farið með staðlausa stafi.“ Aftur mun ég víkja að síðasta Græn- lendingnum og forbrýnda hnífnum hans. Eyðing fornbyggðarinnar á Græn- landi, hvort sem hún gerðist 100 árum fyrr eða seinna, hefir löngum verið mönnum ráðgáta, síðan þeim varð kunnugt um hana og þá vitanlega ýmsu til getið. Margt hefir komið fram við hinar umfangsmiklu fornleifarannsóknir Dana á Grænlandi en ekkert, sem taki af tvímæli um örlög nýlendunnar, og naumast nokkuð, sem gefi greinilegar bendingar í þá átt. Lengi var því haldið fram, að Eski- móar hefðu útrýmt fom Grænlend- ingum í einskonar skæruhernaði. Studdist sú skoðun einkum við frá- sögn ívars Bárðarsonar um Vestri byggð svo og grænlenskar þjóðsögur. En raunar verður engin örugg ályktun dregin af frásögn ívars og þjóðsög- urnar mjög vafasamar, þótt einhver sannleikskjami kunni að vera í þeim. Þannig er sögn um það, að Eskimóar hafi brennt fjölda Grænlendinga inni í Hvalseyjarkirkju. En fullyrða má, að aldrei hefir eldur verið að henni bor- inn, eða hryllileg manndráp hafi átt sér þar stað. Og yfirleitt munu hvergi hafa fundist minjar þess, að bæir hafi verið brenndir. Fæstir munu nú vera þeirrar skoðunar, að Eskimóar hafi eytt byggðina að mannfólki, enda þótt einhverjar skærur hafi orðið milli þeirra og forn Grænlendinga, og menn þá fallið fyrir örvum þeirra eða öðrum vopnum. Jón Dúason hefir hrakið þá kenningu rækilega, hvað sem annars verður sagt um skoðanir hans. En hann heldur því fram að forn Grænlendingar hafi haft stöðugar samgöngur við Ameríku, stofnað þar fjölmennar nýlendur, blandast þar frumbyggjum og að lokum flust þangað allir með tölu, aðrir en þeir, sem blandast höfðu Eskimóum og tekið upp siði þeirra og lifnaðarhætti. Telur hann að Eskimóar Ameríku og Grænlendingar nútímans séu fram komnir við kynblöndun við hina fornu Grænlendinga og Grænlend- ingar nútímans afspringur þeirrar blöndunar og harla ólíkir Skræl- ingjum þeim, sem fornsögur vorar skýra frá. Eftir þeirri skoðun eru Grænlendingar nú frændur vorir í Heima er bezt 89

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.