Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2000, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.12.2000, Blaðsíða 18
þó fljótlega upp í sór vonbrigði því vinnumaðurinn reyndist að von- um bæði verklítill og auk þess gjarn til að bregða sér af bæ ef hann sá fyrir sér annríki meira en honum hugnaðist. Einhverju sinni skömmu eftir vistun Emils í Hólkoti, bar Árna að garði til for- eldra minna á Reykjum. Við hefð- bundið gestaskraf barst talið að hinum nýja vinnumanni og móbir mín spurði í mesta sakleysi hvort hann væri ekki bara duglegur? „Jú, hann er duglegur að borða", svaraði Árni með mæbusvip. Ekki ber að skilja þetta svo að Árni hafi verið matsár, en auðvit- að bættust á hann aukastörf við matseldina með þessari tvöföldun heimilismannna og honum þótti að vonum lítið koma í staðinn. Einn var sá siður sem truflaði Árna frá allri vinnu, en það var sú áráttta hans að þurfa að hlýða á allar jarðarfarir sem útvarpað var. Af þessu efni var honum nánast óbærileg tilhugsun að missa. Það fyrirbæri tækninnar sem nefnist út- varpstæki, kallaði Emil ævinlega „tækið,, og það sem hann heyrði í útvarpi hafði hann sem sagt heyrt „í tækinu". Svo er það eitt sinn að sumri til í brakandi þerri, að Emil ber að garði á Reykjum. Móðir mín setti hann til veitinga eins og hennar var venja og fór að ræða við gestinn um landsins gagn og nauðsynjar. Þar kom svo talinu að hún innti gestinn eftir því hvað Árni hefði haft fyrir stafni þegar hann fór af bæ. „Ekki neitt",var svarið. Hún kvaðst eiga erfitt með að trúa að eljumaður eins og Árni hefði setið auðum höndum í svona heyskaparveðri og spurði hverju hefði sætt að svo hefði verið. „Það var verið að jarða gamla konu í tækinu", svaraði gesturinn. Það yrði langt mál ef ég færi að lýsa öllum sveitungum mínum og gera þeim þau skil sem verðugt væri. Þama var persónuleikinn einstaklingsbundinn og gerólíkur frá manni til manns, en ekki sam- ræmdur á neinn hátt eins og mér sýnist sækja í hjá yngri kynslóð- inni, sem virðist eiga sér einhverjar þröngt mótaðar fýrirmyndir. Allir höfðu mótast af uppeldi sínu, oft- ast í foreldrahúsum og svo arfi frá eldri kynslóðum. Þar að auki hafði þetta fólk fengið næði til að móta einstaklinginn í sjálfu sér. Þess vegna þótti engum sérstakt tiltöku- mál þótt Meylendingar, en það voru þeir Meyjarlandsbræður jafn- an nefndir, gengju um á heima- saumuðum skóm úr ósútuðu skinni, þegar aðrir gengu á gúmmískóm. Og þegar þeim varð það á að blóta, bættu þeir ævin- lega við í afsökunartón: "Ég segi svo stórt." Guðmundur Einarsson á Veðra- móti sagði hinsvegar „Ansvítinn", ef honum varð það á að tala ógætilega, en nafrii hans Andrés- son á Syðri Ingveldarstöðum blót- aði aldrei, enda mótaði hæverska og snyrtimennska allt hans fas. Mér er minnisstætt að eitt sinn þegar farin var hópferð til Drang- eyjar, brá hann sér afsíðis og hafði fataskipti eftir að upp á eyjuna var komið. Þeir sem falin voru trúnaðarstörf tóku þau alvarlega og máttu ekki vamm sitt vita. Skafti á Meyjar- landi var lengi gangnastjóri í Stólnum, þ.e. Tindastóli vestan- verðum, en það eru 5-6 klst. smalamennska á hestum og mikill hátíðisdagur ungra manna á þeim árum. Skafti var fálátur maður og einrænn og jafnframt nokkuð sér- lundaður. Unglinga, sem fýrsta sinn fóru í göngur tók hann undir sinn vemdarvæng og lét þá ríða næsta sér eða jafnvel samhliða. Þá var hann eins og leystur úr álög- um og ræddi af hlýju og vingjarn- leik við nýliðann og sagði honum sögu og kennileiti gangnasvæðis- ins. Sjálfur fékk ég að kynnast þessu fýrsta sinn sem ég fór þessa lang- þráðu för manndómsvígslunnar. En Skafti fann að sjálfsögbu til ábyrgðar sinnar og leið engum manni að vera með múður né efa- semdir um að vel væri fýrir öllu séð undir hans stjóm. Mér er minnisstæður einn morg- unn gangnadags við Álftavatn, þar sem göngum var skipt og allir gangnamenn vom saman komnir á tilsettum tíma. Þama var nafhi minn í Hólkoti að sjálfsögðu og svartsýnn að vanda, þóttist sjá að annaö hvort hefði orðið samdrátt- ur í skipan til gangnasvæðisins ellegar einhvem gangnamanninn vantaði: „Þetta er bara enginn mann- skapur, ekki nokkur mannskapur", sagði hann og stundi mæðulega. Skafti gangnastjóri þykktist greinilega við og hefur líklega þótt að embættisheiðri sínum vegið: "Ég er enginn andskotans mann- skapari hér", hreytti hann út úr sér með alvöruþunga þegar hann leit til nafna míns og spýtti mórauðu fyrirlitlega, eins og hans var venja þegar hann vildi leggja sérstaka áherslu á fálæti sitt til ótímabærra ellegar óskynsamlegra athuga- semda. Því er reyndar ekki að leyna að menn sáu ýmislegt skoplegt í fari náungans og flestir leyfðu sér að gera góðlátlegt grín að nágrann- anum þegar hann var fjarstaddur. Eiginlega var þetta hluti af sveitar- bragnum og hefur að líkindum tíðkast í flestum sveitum þessa lands um langa tíb. En oftast held ég að þetta hafi verið græskulaust og flestir hafi vitað af því að þeir væm skotspænir á þessum vígvelli að einu eða öðru leyti. Létu sér á sama standa og breyttu í engu hegðan sinni né lífsmáta, sem bet- ur fór. Eitt það fyrsta sem ég heyrði um Hjörleif bónda á Kimbastöðum var það að hann svæfi um hádaginn og færi ekki í fjósið nema með hálstau. Kimbastaðafjölskyldan var þá fremur nýlega flutt í sveit- ina úr fjarlægu landshomi og 450 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.