Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2000, Síða 19

Heima er bezt - 01.12.2000, Síða 19
haföi lífsvenjur ólíkar sveitarbrag í Skarðshreppi. Hjörleifur Sturlaugs- son var Strandamaður að upp- runa, búfræðingur frá Hvanneyri og haföi rekið bú bæði í Stranda- sýslu og í Reykjavík, ásamt konu sinni Áslaugu Jónsdóttur sem var Borgfirðingur. Hjörleifur er mesti verkmaður sem ég hef kynnst um mína daga; karlmenni til burða, kappsamur og verklaginn eins og best má verða. Auk þess var hann óvenju vel skipulagður og reglu- semi ásamt fágætri snyrtimennsku einkenndi öll hans störf. Það var siður hans að taka dag- inn snemma og fá sér stuttan há- degisblund. Á vetrum haföi hann ævinlega lokið fjósverkum og haft fataskipti á sama tíma og flestir aðrir voru að paufast af stað til gegninga. Þetta má þó ekki skilja sem svo að slór og draslarahættir hafi verið sveitarbragur í mínum ágæta hreppi. Þó skildu menn lengi vel ekki þetta háttalag og héldu að maðurinn væri letingi og spjátrungur. En þessi umræða eyddist nú þegar mönnum fór að skiljast hvað á bak við lá. Sveitarfundir í Skarðshreppi voru engar deyföarsamkomur og minntu gjaman á orrustuvöll þar sem vegist er með orðum eins og best gerist á Alþingi. Þarna vom skarpgreindir vígamenn og vel máli farnir sem létu stór og þung orð falla í hita leiksins og vægðu hvergi andstæðingum sínum ef þeir gáfu færi á sér. Oftast gleymd- ist þetta nú fljótt, en þó ekki alltaf. Menn skiptust reyndar nokkuð í tvær andstæöar fylkingar sem völdu sér hvor um sig sinn leiö- toga og fylgdu honum gegnum þykkt og þunnt. Það var hreint engin lognþoka yfir mannlífinu. Að öllu samanlögðu finnst mér í dag að þessir gömlu sveitungar mínir hafi verið gott manndóms- fólk og mér verið að því nokkur fengur að hafa borið til þess gæfu að deila með því drjúgum hluta af mínu æviskeiði. SÆsj Kviðlingar og kvæðamál 92. þáttur Vísnamál Steinunn Eyjólfsdóttir frá Patreksfirði sendi okkur ljóð eftir sig í tilefni af komandi jólatíð og nefnir hún það einfaldlega Jólaljóö Á veturna er sólin þreytt og syfjuð og sorti og myrkur fyila veröldina. Mörgum fmnst sér verða fátt til vina. Hér fyrrum sagði fólk við baldna krakka að framhjá bœnum jólin kynnu að ganga efþaðan hefði heyrst um hegðun ranga. Og margra gœfusól er geymd í hafi, gleðin fer og œskan fyrir lítið. Myrkrið er svart og mannfólkið er skrýtið. Farið nú hvergi framhjá, jólin góðu, fœrið þið öllum milda vetrarljósið, krökkum þeim helst sem iðka einhvern ósið. Þó að það tefji ykkur ofurlítið er það ekki mál sem neinu skiptir. Því tilhlökkunin Ijúfa hugum lyftir. Skiljið ekkert kot né kofa eftir, kveikið á öllum jólatrjánum myrku. í Jesú nafni verið veikum styrkur. Áskorunin Fleiri vísur hafa okkur borist sem svar við áskoruninni um kaffið, en komu of seint til að ná síðasta þætti. Pálína Magnúsdóttir segir þetta: Þó að árum áður var ótœpt drukkið kaffi, vara okkur verðum þar og vera nú í straffi. Heima er bezt 451

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.