Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2000, Side 24

Heima er bezt - 01.12.2000, Side 24
vegna. Nótabassinn hvatti ræðar- ana áfram með bölvi og ragni, líkt og ætla má að rómverskir galeiðu- þrælar hafi verið reknir áfram forð- um tíð, nema hér vantaði svipuna. Ekki veit ég hvort orðbragðið hefur átt að auka bátunum skrið eða flýta því að nótin kæmist í sjó, eða gera síldina stjarfa af hræðslu. En til þess að koma í veg fyrir að hún forðaði sér hafði bassinn hvítt tréspjald með fisklögun og spotta í sporðinum, og þessu skutlaði hann niðurí sjóinn til að stugga síldinni frá opinu milli endanna á nótinni meðan verið var að snurpa. Loksins náðu bátamir saman og snurpun hófst. Þarna var búnaður í frumstæðara lagi, engar rúllur til að renna út nótinni, svosem þá var al- gengt orðið, og varð því að bisa henni útfyrir borðstokkinn með handafli. Þó voru komin handsnúin snurpuspil í bátana, svo ekki þurfti að draga línuna inn með höndun- um einsog áður tíðkaðist. Er nú snurpað sem óðast í báðum bátunum, en eitthvað hafði farið úrskeiðis, því snurpulínan var öll meira og minna flækt í netinu sem kom inn með henni í flygsum og síldin horfin út og suður - eða kannski þangað sem nótabassinn vísaði skipshöfninni, norður og nið- ur. Var nú tekið að greiða úr nótinni og varð víða að skera og bæta. Ekki fór betur en svo fyrir mér þegar ég ætlaði að stinga skeiðahníf mínum í borðstokkinn, að höndin rann á sleipu skaftinu niður blaðið sem risti skurð í handarjaðarinn, og ber ég menjar þess ennþá. Ekki þótti það þó næg átylla til að gera hlé á við- gerðarstarfinu. Ég vafði einhverjum druslum um höndina til að hamla blóbrás, enda geisaði bassi nú ákaf- lega og þóttist illa svikinn af þess- um lyddum sem til hans hefðu valist. Langt var komið framá dag þegar nótin var aftur komin í bæli sín í bátunum tveim, og var nú farið að skima eftir nýjum torfum. Ekki þurfti lengi að Ieita, enda svartur sjór af síld. Eru nú aftur hafðir sömu tilburðir og í fyrra skiptið, nema nú voru menn orönir slæptir og leiðir, enda gaf torfan okkur langt nef ut- anúr hafsauga þegar nótinni hafði verið náð saman. Var síðan kastað hvað eftir annað sleitulaust, en eng- in fékkst síldin. Ýmissa ráða var leit- að, reynt að koma öðruvísi að torf- unum, skipta um kastara og hver veit hvað, og að sjálfsögðu varð skipshöfnin í munni nótabassans þeim mun auvirðilegri afhrök sem oftar var bommað. Næstu daga hélt þessu áfram, með einhverjum tilbrigðum þó, far- ið var á aörar slóðir og allstaðar var svartur sjór af síld og skipin fylltu sig á báða bóga. í þeirri lotu urðum við fýrir mestu smán sem hent getur skipshöfn á snurpuveiðum. Við erum komnir í bátana og í færi við girnilega torfu. Bassi er að velta vöngum yfir hvemig skynsam- legast sé að komast í færi, þegar línuveiðari einn kemur öslandi og skiptir engum togum að skipshöfn hans er komin í bátana og róin í kringum torfuna og þar með okkur. Var nú ekki annað fýrir en að kom- ast útúr nót hins aðsópsmikla að- skotaliðs, ekki upplitsdjarfir. Enn er kastað æ ofan í æ, mestall- an sólarhringinn, því sama veður- blíðan hélst, dagurinn nóttlaus að kalla, júlímánuður enn ekki hálfn- aður. Menn gátu aðeins fleygt sér sem snöggvast í sjógallanum á dekkið og þeim var ekki fyrr farið að síga í brjóst en öskrað var í bátana. Auðvitað gafst heldur enginn matfriður fýrir þessu sífellda, árangurslausa öskri, því engin kom síldin um borð. Þegar þessu hafði haldið svona áfram dögum saman var ákveðið að taka nótina í land og mæla hana upp, því eitthvað hlaut að valda þessum ósköpum annað en einskisnýt skipshöfn. Jújú, nótin var tekin í land og breidd á tún og mæld á alla enda og kanta og ein- hverjar breytingar gerðar, því nú var aftur haldið á veiðar með til- tölulega geðgóðan nótabassa, út- hvílda og vonglaða skipshöfn. En ekki stóð sú dýrð lengi. Þrátt fýrir alla bjartsýni og endurheimtan þrótt, máttum við enn sætta okkur við að sjá allar fleytur fylla sig í fá- um köstum meðan hvert bommið tók við af öðru hjá okkur. Ekki dugði þetta. Nú tók útgerðin það til bragðs að fá gamlan og reyndan síldarskipstjóra í túr með okkur til að fá utanaðkomandi hlutlausa staðfestingu á því að skipshöfnin væri ónýt og engin leið að fiska með henni. Þessi aldur- hnigni uppgjafaskiptjóri ræðst nú eina ferð meb okkur og er stefna tekin austurfyrir Siglunes og inná Eyjafjörð. Ekki þurfti lengi að bíða þess að torfa sæist, og var kastað norðuraf Hrísey Ekki höfðum við skipverjar vænst neinna aldahvarfa við að fá þenn- an gamla fausk til að stýra liðinu, þar sem ungur og hraustur beljaki hafði orðið að gefast upp. Samt fór svo, að þótt nokkuð skorti á gjörvi- leik hjá þessum bráðabirgðanóta- bassa, þótt hann færi sér að engu óðslega og ffá honum bærust engin ókvæðisorð, þótt hann ákallaði hvorki djöful né andskota, þá feng- um við nú í fyrsta skipti fulla nót af síld og fullt skip í fáum köstum. Skipverjum gaf hann þá einkunn að þótt hann hefði að vísu verið með röskari skipshöfn, þá væri afla- leysi öðru að kenna en aumingja- skap hennar. Langt var liðið á júlí og óðum styttist í vertíbarlok. Eitthvað hefur síldin líka verið farin að tregðast og breyta um verustað, og var því siglt vesturmeð landi án þess að kastað væri. Vorum við loks komnir vestur á Húnaflóa, en þar voru einhverjir að fá síld, þó vitanlega ekki við fremur en fyrri daginn. Var þá tekin ákvörbun að snúa aftur austur og reyna á Skjálfandaflóa. Bátamir voru teknir á langslef, þ.e.a.s. dregnir í halarófu með langri trossu og nótinni þannig fyr- 456 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.