Æskan

Volume

Æskan - 01.05.1965, Page 12

Æskan - 01.05.1965, Page 12
H. C. ANDERSEN: LJÓTI andarunginn. Myndir eftir Iö)a lt „Nii skil ég við þig!" Andamamma lagaði dúninn á andarungunum fjórum. „Komið með mömmu ykkar. Við skulum nú heimsækja kunningjana, og látið þið nú sjá að þið kunnið mannasiði!“ Undarlegi unginn heyrði alls ekki hvað hún sagði. Hann fór að elta hun- angsflugu og tók ekki eftir því hvar hann steig, því allt í einu hnaut hann um stein og steyptist á höfuðið. „Erkiklaufi!" hreytti andamamma út úr sér. „Það er víst nóg að þú ert svona ljótur ungi. Þú gætir þó að minnsta kosti reynt að haga þér almenni- Iega!" „Erkiklauji!“ Anginn Iitli komst aftur á fætur og hljóp til hinna. „Eg gerði ekkert af mér, mamma,“ maldaði hann í móinn. „Mig iangaði aðeins__“ Andamamma einblíndi á hann. Reyndu þó að vera þar scm þú ert, því þá er ekki víst að tekið verði eftir þér!“ Svo mættu þau tveim gömlum hænum. „Nei, sjáðu!“ hrópaði önnur þeirra. „En hvað þetta eru falleg börn!“ „Já, það má nú segja!“ sagði hin hænan ástúðlega. „Þau eru blátt áfram yndisleg!“

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.