Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1966, Page 3

Æskan - 01.04.1966, Page 3
5*er&ir annci. usundir fugla liafa verið merktar hér á landi á undanförnum árurn. Það var danskur maður, ^iiins C. Morthensen, sem var upphafsmaður vís- uidalegrar fuglamerkingar. Hann hóf fuglamerking- ar árið 1899. En áður höfðu nokkrir menn gert fálm- andi tilraunir nteð fuglamerkingar, en þær höfðu enga vísindalega þýðingu. Þessi möguleiki, að merkja fugla, gerði kleift að rannsaka ferðir þeirra og lifnaðarhætti. Þessi starfsemi hins danska manns bar svo góðan arangur, að vísindamenri víða um lönd tóku að uierkja fugla með svipuðum hætti. Fyrr á öldum liöfðu menn hinar l'áránlegustu hug- niyndir um ferðir og vetrarheimkynni larfugla. Til ^a:niis trúðú menn því, að farfuglar heíðust við á Vetúrna á vatns- eða sjávarbotni eða lægju í dvala í Uellum eða öðrum fylgsnum. I^Teð merkingunum fást mikilsverðar upplýsingar u'n marga aðra lífshætti fuglanna, meðal annars átt- ^agatryggð, dánarorsakir, hve mikið er veitt af hverri tegund og veiðiþol hinna ýmsu fuglategunda, °g svo stofnsveiflur og stofnstærð. Sú aðferð, sem H. C. Morthensen byrjaði á, er að SetJa alúmínhring um fót fuglsins. Á þennan liring er stimplað númer og heimilisfang merkingarstöðv- 'Ulnnar, og árangur af merkingu byggist á því, að lJeir, sem skjóta eða finna merktan fugl, skili um leið merkinu til stöðvarinnar og greini jafnframt *'a> hvar og hvenær fuglinn hafi náðst. Itnn í dag fara fuglamerkingar fram með þessum nætti. Árið 1920 hóf danskur maður, Peter Skovgaard, uglamerkingar hér á landi fyrstur manna. Á hans vegum var merkt hér talsvert af fuglum allt til ársins 1940. Árið 1932 hófst Hið íslenzka náttúru- íræðifélag handa um fuglamerkingar og nú fara þær fram á vegum Náttúrugripasafnsins, undir stjórn dr. Finns Guðmundssonar fuglafræðings. Síð- an 1932 hafa alls verið merktir uni 45 þúsund fugl- ar á vegum þessara aðila, og endurheimtur merkj- anna skipta nú þúsundum. Á vegum Skovgaards voru merktir um 20 þúsund fuglar, svo að alls hafa verið merktir um 65 þúsund fuglar liér á landi. Einn aðalárangur fuglamerkinganna er sá, að nú vita menn, livar íslenzkir farfuglar halda sig á vet- urna. Yfirleitt halda þeir til Bretlandseyja, sumir fara ekki lengra, aðrir halda áfram til meginlandsins til Hollands, Belgíu, Frakklands, Spánar og Portúgal, og þeir, sem hvað lengst fara, íljúga til Vestur- Afríku. Endur og gæsir fara margar ekki lengra en til Bretlandseyja og sömuleiðis surnir vaðfuglar, svo sem heiðlóa og hrossagaukur. Spóar halda til Vestur-Afríku, einnig steindepill og maríuerla og jafnvel fleiri tegundir. Með merkingum fæst einnig vitneskja um aldur fugla. El/.ti fugl, sem merktur hel’ur verið á íslandi, varð 25 ára. Það var kría, sem var merkt við Mý- vatn og náðist 25 árum síðar í Afríku. En krían íerðast lengst allra farfugla. Hún ílýgur allt til Suð- urheimskautslandsins og dvelst þar, þegar vetur grúfir yfir norðurhveli jarðar. Hún flýgur tvisvar á ári yfir hálfan hnöttinn, svo að þessi kría hefur verið búin að íerðast sem svarar 25 sinnum kringum jörðina. 151

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.