Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1966, Blaðsíða 17

Æskan - 01.04.1966, Blaðsíða 17
MYND 2. Á mynd 2 sjáið þið aðra stökkaðferð, sem er talin sú bezta í hástökki, enda nota hana allir beztu há- stökkvarar heimsins í dag, meðal þeirra Brumel frá Sovétríkjunum, sem á lieimsmetið 2,28 m. Takið vel eftir hreyfingum hástökkvarans á mynd- inni. Hann hallar sér vel aftur um leið og hann stekkur upp. Hægri fóturinn sveiflast kröftuglega fram og upp og báðar hendur einnig. Skömmu áður en fullri hæð er náð byrjar stökkv- arinn að draga sig saman og veltir sér yfir rána. Hann gætir þess að lyfta hnénu á stökkfætinum vel út, svo það rekist ekki í rána á niðurleið. Þegar þið byrjið að æfa þessa aðferð, skuluð þið stökkva eins og drengurinn á rnynd 3. Taka aðeins stutta atrennu, lyfta hægra hné og hægri liendi í nppstökkinu, velta síðan yfir rána og koma niður í sandinn á hægri hlið. Þegar þið æfið hástökk, eigið þið ávallt að byrja ú því að „hita upp“, eins og ég gat um í síðasta blaði. Síðan byrjið jrið á því að æfa hástökk með aðeins þriggja skrefa atrennu. Þá leggið þið áherzlu ú að fá öflugt uppstökk og rétt stökklag. Síðan hækkið þið rána þannig, að hún verði 10— 15 cm neðar en þið hafið stokkið hæst áður. Þá lcngið þið atrennuna í 7 skref, eins og mynd 4 sýnir. Þið standið í báða fætur við merki, sem þið gerið ykkur í hæfilegri fjarlægð frá uppstökksstaðn- um. Ef þið stökkvið af hægra fæti, byrjar atrennan með hægri fót fram, annars vinstri. Fyrstu 4 skrefin eru mjúk og ekki liröð, en síð- ustu 3 skrefin kraltmikil. Gætið þess vel, að atrennan sé hæiilega löng og uppstökkið ekki of langt frá ránni. Hæíilegt er að taka sig upp um það bil 2—3 fet frá ránni. Mælið atrennuna í fetum, þegar þið hafið fengið hana rétta. Æfið ykkur í að stökkva áðurnefnda hæð nokkr- um sinnum. Hækkið síðan rána í þá hæð, senr þið hafið stokkið hæst eða aðeins hærra. Takið aðeins 2 til 3 tilraunir við þá hæð. Ef þið reynið mikið við að stökkva hæð, sem þið ráðið ekki við, getið þið átt það á hættu að ofreyna ykkur og eyðileggja stökklagið. 0= <— KÁIH > merki MYND 4 Mér er ljúft að lýsa ánægju minni yfir þeim áliuga á íþrótt- um, sem fram kemur í þeirri ákvörðun að stofna til keppni meðal skólabarna í þríþraut um land allt. Ég efast ekki um, að kennarar og nemendur fagna þessari nýbreytni. Það er ósk mín, að framkvæmd þessi heppnist vel og verði þátttak- Skúli Þorsteinsson. endum til gagns og gleði. MYND 3. Skúli Þorsteinsson form. Samb. ísl. barnakennara.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.