Æskan - 01.04.1966, Page 7
Gæzlumenn og félagar á fundi í janúar síðastliðnum.
Bamastúkan EílífðarWómið mr. 28^
Sauðárkrókf
Að þessu sinni birtum við mynd frá barnastúk-
Ur>ni Eilífðarblóminu nr. 28, Sauðárkróki, sem nú
starfar með prýði undir stjórn ágætrar áhugakonu,
ífú Kristínar Helgadóttur, Skógargötu 5B.
Við fögnum því að geta birt þessa mynd og
1Tiinnzt þess um leið, að stúkan Eilífðarblómið nr.
^8 á sér langa og merka sögu. Hún var stofnuð 27.
janúar 1902 og hefur notið margra og góðra for-
ystumanna á löngunr og heillaríkum starfsferli.
En lengst og bezt mun þó Jón Þ. Björnsson skóla-
stjóri liafa staðið þar á verði. Um margra áratuga
skeið var hann gæzlumaður stúkunnar og starfaði
allt til lrinztu stundar af sínum alkunna áhuga og
frábæru trúmennsku. Fyrir það mikla og óeigin-
gjarna starf á ekki aðeins Sauðárkrókur mikið að
þakka, lieldur Reglan í heild og raunar þjóðin öll.
Blessuð sé minning hans.
Við þökkurn Eilífðarblóminu ágæt störf um langt
árabil og óskum því allra heilla á komandi tímum.
FRÁ UNGLINGAREGLUNNI
155