Æskan - 01.04.1966, Síða 26
Itólynd dýr auka þor byrjendanna.
Hvers vegna ekki dýragarða við skólana?
Allir vita, hve börnum er hollt að umgangast dýr. Fyrir
nokkrum áratugum mátti heita, að hvert barn ælist upp með
húsdýr allt í kringum sig, en þetta hefur breytzt. Nú fjölg-
ar þeim börnum stöðugt, sem sjá naumast húsdýr öðruvísi
en á myndum.
En það er víðar en hér á landi, sem svona hefur farið. í
Danmörku þykir ýmsum illa horfa, því menn telja nauðsyn-
legt, að börn fái þess kost að kynnast dýrunum, læri að hræð-
ast þau ekki og eignist þau að vinum.
Einn þessara manna er danski arkitektinn Bprge T. Lo-
fv rentzen. Hann hefur gefið út bækliu^, þar sem hann lýsir skoð-
unum sínum á þessu máli, og enúfremur setur hann fram
athyglisverðar tillögur um það, hvet’tiig auka megi kynni barna
og dýra. Teikningarnar eru úr þessum skemmtilega bæklingi.
Þarna hafa börnin fengið að
sér til ánægju.
Allstór opin svæði eru
við hvert háhús. Þessi
svæði eru oftast gras-
fletir með nokkrum
trjám og kannske 2—3
rólum, en þau eru líf-
lítil. „Væri ekki æski-
legt, ef hægt væri að
leyfa börnunum að hafa
þar einhver dýr, sem
hæfðu umhverfinu?“
spyr Lorentzen.
174
175