Æskan - 01.05.1970, Side 4
stybbu. Þar rikir lognmolla, deyfð og
drungi. Þess eru mörg dæmi, að fólk hef-
ur veikzt og dáið af völdum þessa, t. d.
í New York og Los Angeles. Þess vegna
skulum við varast bensínstybbuna úr bíl-
unum, jafnvel hér í okkar stormasama
landi, þar sem loftið er oftast á hreyfingu.
Tökum uþp vasaklútinn og höldum um
vitin og vörumst að anda að okkur eim-
yrjunni. Við eigum alls staðar að setja
upp merki eins og í Sundhöllinni: REYK-
INGAR BANNAÐAR, og mig langar að
bæta við: ,,Ekki fleiri bíla“, og því ekki
að gera þetta um leið að baráttumáli,
eins og t. d. ,,hreint land — hreint loft —
heilbrigt lif"? Fögnum því að loftið er
sýknt og heilagt á hreyfingu, rigningar og
stormar gnauða um okkur. Ef svo væri
ekki, væru við öll dauð fyrir löngu.
Eins og ég sagði hér að framan, þá er
þetta óhreina og mettaða andrúmsloft mik-
ið vandamál í stórborgunum. Það er álitið
ein orsök þess, að lungna- og húðsjúk-
dómar herja á borgarbúa, og þess vegna
er bráðnauðsynlegt að sporna við því í
tíma, áður en það flæðir yfir allan heim-
inn. Ég er viss um, að þið hafið heyrt um
þetta vandamál — mengun lofts og lagar.
Á erlendu máli kallast þetta pollution. Við
þurfum líka að gæta þess að hafa ferskt
og hreint loft á heimilum okkar, á vinnu-
stað og í skólanum, og sérstaklega í svefn-
herbergjunum. „Lokaðu aldrei svefnher-
bergisglugganum," stendur á góðum stað.
Það er mikill sannleikur í þessum orðum.
Því miður sefur margt fólk við lokaða
glugga, en það athugar ekki fyrr en um
seinan, hversu óhollt það er. Við sofum
8—10 tíma á sólarhring. Með því að sofa
við lokaða glugga, þá andar maður sama
loftinu aftur og aftur að sér, þar til súr-
efnið er orðið of lítið, og allt hið frjálsa,
hressa yfirbragð þitt hverfur sem dögg
íyrir sólu. Hér er gott dæmi: Setjum svo,
að fólk sé lokað inni í herbergi og þar
sé enginn gluggi opinn, herbergið loft-
laust. Fólkið í lokaða herberginu verður
fljótt veikt og það mun hljóta skjótan dauð-
daga. Þetta hefur hent. Þetta dæmi sann-
ar, að við erum smátt og smátt að stytta
lif okkar með því að sofa við lokaða
glugga. Opnaðu gluggann i svefnherberg-
inu þínu þegar i kvöld og hleyptu hreinu
og fersku lofti inn, og þú lifnar sem
fífill í haga. Gerðu þetta fyrir líkama þinn.
Haltu líkamanum hressum, og þá mun hug-
ur þinn verða hreinn og það verður þér til
sálarheilla og þú fyllist nýrri lífsorku og
breytist í sannari mann. Ef þú felur fallegt
blóm í dimmum skáp, þá veizt þú, að það
deyr, en ef þú setur það þar, sem sólar-
geislarnir skína og ferskt loft leikur um
það, þá blómgast það og dafnar. Hið sama
á við um líkama okkar. Loft og sólskin
hefur góð áhrif á skapið og taugarnar.
Þótt loftið sé svalt, þá er það gott fyrir
allan líkamann og varnar kvefi. i mörg-
um leikfimisölum okkar er þess ekki gætt
sem skyldi að hafa góða loítræstingu. Það
er ekki hægt að iðka likamsæfingar í
þeim sölum, þar sem loftræsting er ekki
góð. Lungu okkar eru til þess að anda
með þeim. Svo skeður hið sorglega, að
við förum úr loftlitlum leikfimisölum og
heim að sofa í álíka loftlausu svefnher-
bergi. Þeir, sem eiga heima í stórborgum,
þar sem loftið er mettað af reyk og sóti,
ollu og bensíni, fá aldeilis að kenna á
þessu, heilsa þeirra, útlit og látbragð ber
þess merki. En við vonum, að þetta á-
stand batni, þegar augu fólks opnast fyr-
ir þessu stórhættulega ástandi. Heilbrigð-
iseftirlitið verður að sjá um það. Það þýð-
ir ekki að vera alltaf að stagast á Hrein
torg, fögur borg. Heldur. Ferskt loft, frískt
fólk.
Gamalt enskt máltæki segir: God made
the country, man made the town (Guð
bjó til sveitma, maSurinn borgina). Hið
merkilega við þetta er það, að svo er
sem allir vilji eiga heima í borgum, t. d.
vilja allir eiga heima í Reykjavík. Hið eftir-
sóknarverða er að eiga heima í úthverfum
eða uppi í sveit, þar sem loftið er hreint,
svalt, tært og ómengað. Sem betur íer er
fólk nú loksins farið að átta sig á þess11
vandamáli. Það er farið að flytjast i
út'
hverfin. Opnaðu gluggana á íbúðinni þinnl1
þegar loftið er ferskt og hreint, t. d. eft,r
rigningu og storm, og sofðu við opinn
glugga. Óttastu ekki kvöldloftið, þótt s'
ói
sá hnigin til viðar. Þá er kvöldloftið
oft
tærara en loftið, sem við öndum að okknr
á daginn, vegna þess að á kvöldin e<
ekki eins mikið ryk, óhreinindi og reykun
Gagnstætt þvi sem almennt er álitið, ne*’
ur þú enga ástæðu til að óttast dragsúð'
Hann er aðeins loft á hreyfingu. Ferskt l°ft
er jafnan gagnlegt. Það er hressand1’
heilsusamlegt og fullt af lifi. En auðvits®
ber að varast of mikinn dragsúg. Nú n
dögum ráðleggja læknar tæringarsjúklinð'
um útivist í hvaða veðri sem er, vegna ÞesS
að reynsla hefur fengizt fyrir því, að l^rl
útiloftið hefur læknað það, sem ekki nef'
ur læknazt á annan hátt. Og að loKUd1
þetta: Loftið, sem þú andar að þér, verður
að vera hreint. Gættu þess að það sé
loftræsting í herbergi þínu. Sé brennt Þa<
gasi eða olíu, eyðir það súrefninu. Ef 9aS
eða olíuþefur er í herberginu þínu, er
nauðsynlegt að útiloft leiki um það, afin
ars andarðu að þér eitraðri kolsýru. Ve<
um þakklát, ef við búum uppi í sveit, Þa<
sem loft og vatn er hreint. Hagnýttu MesS
andi loftið og hið hreina vatn, lofaðu sel
inni að lauga þig. Fátt er unaðslegra e<]
að heilsa fyrstu dagsskímunni og UPP
rennandi sól úti á víðavangi og anda 0
sér svölu, tæru og hressandi morgunlofl
inu. Bjarni Sveinsson.
Auðæfi íslands eru: Loft, hreinn sjór og ómengad vaV1
272