Æskan - 01.05.1970, Síða 53
SPURNINGAR OG SVÖR
Svar til Gísla: ,Tá, þetta er
langt nám, og fyrsl þarf að
taka stúdentspróf.
Svar til G. A.: — Nei, liár-
greiðsluskóli er víst ekki til
hér i Reykjavik, en hár-
greiðslukonur, sem reka liár-
greiðslustofur taka lærtinga,
en ekki getuin við bent á
neina sérstaka. Reynandi væri
fyrir þig að tala við einhvcrja
stúlku, sem vinnur á hár-
greiðslustofu, og fá upplýsing-
ar um námstíma og kaup
lærlinga.
Svar til Bjargar: Já, ))etta
skulum við gera, ef við finnum
eitthvað fréttnæmt um þennan
hrollvekju-sérfræðing. — Hefir
þú tekið eftir því, að honum
sjálfum bregður fj'rir i flest-
ötlum myndum hans, e. t. v.
gengur hann yfir götu i mynd-
inni, eða ]>á að hann séstaugna-
l>lik á barnum o.s.frv. Skrift-
in er góð.
Svar til Fanneyjar: ■— Rezt
mun að losa frimerkin af hin-
um rauða pappir með því að
bera þau yfir vatnsgufu, en
skola þau svo i volgu vatni á
eftir og láta þau síðan þorna
í gömlum dagblöðum. Gott cr
svo, ]>egar mcrkin eru orðin
hér um bil þurr, að láta þau
inilli blaða í bók, t.d. gamalli
símaskrá, og setja ]>au þannig
i létta pressu.
Svar til Rúnu og Tótu: Bezt
mun það vera fyrir ykkur að
skrifa skólastjóra og fá þessar
upplýsingar, sem þið óskið eft-
ir. Utanáskriftin er:
Skólastjóri Verzlunarskólans,
Grundarstíg 24, Reykjavík.
Síminn þar er: 24197.
Svar til Sólrúnar: Hætt er
við, að litlir möguleikar séu til
]>ess að læra þessar tvær at-
vinnugreinar hér á landi, ]>ó
skulum við hafa þetta i liuga
og gættu að þvi, hvort nokkuð
kemur um þetta í þættinum
„Hvað viltu verða“ í sumar eða
næsta vetur.
Svar til F. S. Garðahreppi:
Bændaskólarnir eru tveir hér
á landi, annar á Hólum í Hjalta-
dal, Skagafirði, en liinn á
Hvanneyri, Borgarfirði. — Um
landbúnað og námið í bænda-
skólunum getur ]>ú lesið i
febrúarblaði Æskunnar 1969 í
þættinum „Hvað viltu verða?“
Svar til áhugamanns: Nei,
það getum við ekki, en reyn-
andi væri fvrir ]>ig að skrifa
til „þjóðskrárinnar" i Hagstofu
Islands. — Þeir þar hafa öll
plögg um þetta. —
Svar til Arnórs í Hvassaieiti:
Þökk fyrir ágiett bréf. Um
þetta getur þú lesið í febrúar-
blaði Æskunnar 1969 í þættin-
um „Hvað viltu verða?“
Svar til Siggu: Fyrst verður
]>ú að taka stúdentspróf og
sennilega fara í framhaldsnám
erlendis. — Margir stunda nám
í þessari grein á Norðurlönd-
um, t.d. i Noregi eða Dan-
mörku.
Svar til Þ. Þ., Garði: Já, við
skuluin senda þér teikningu af
einhverju til þess að saga út,
og einnig munu koma teikn-
ingar í Handavinnuhorninu.
Svar til E. J., Akureyri: Nei,
ef ]>ú selur notuðu frímerkin þín
til þeirra, sem verzla með frí-
merki, ]>á máttu búast við þvi,
að þú fáir aðeins 40% af verð-
inu, sem skráð er í verðlistan-
um „ísl. Frimerki 1970.“ — Þó
fer ]>etta nokkuö eftir þvi,
livaða merki er um að ræða.
SKÝRINGAR:
Lárétt: 1, mannsnafn. 2, Rúnar Gunnarsson. 3,
engar eftir. 4, saumaáhald. 5, nafnorð. 6, á fæti. 7,
taltæki. 8, raka af. 12, að innan. 15, kasta upp.
16, faðir. 18, maður Júlíu. 21, læðast. 23, kven-
mannsnafn. 25, reiðihljóð hunds. 28, snögg væta.
30, haf. 31, vel.
Lóðrétt: 1, nábúi. 7, tveir eins. 9, fugl. 10, kven-
mannsnafn. 11, frostmark. 13, holt. 14, nútíð. 15,
öskrið. 17, hundi sigað. 19, datt. 20, málmur fram-
leiddur á íslandi. 22, kyrrð. 23, plat. 24, hljómur.
26, kýr. 27, kvenfataverzlun. 29, ókyrrð. 31, söng-
flokka. 32, hlaðrúm. 33, agar. 34, krafs.
AÐSENT
Lesandi úr fæðingarsýslu minni sendi mér þessa
krossgátu, en bað svo vel að hvorki yrði nefnt nafn
né númer, að ég þori ekki einu sinni að birta nafn-
númerið, hvað þá meir. Ég get þó upplýst að þetta
er stúlka, sem virðist hafa ráð undir rifi hverju, að
búa til svona krossgátu, því að nú fáið þið virkilega
að spreyta ykkur.
Þá er það nýtt við þessa krossgátu frá þvi sem
áður hefir verið, að talið er að ofan og niður, í stað-
inn frá vinstri til hægri.
Höfund bið ég velvirðingar á því að ég hef vikið
við ýmsum orðum í skýringum, en f grundvallaratrið-
um er engu breytt í krossgátunni.
Nú verður gefinn einn og hálfur mánuður til að
skila, því að í þetta sinn er gátan svo þung. Skemmið
Krossgáta 3
nú ekki blaðið með því að klippa krossgátuna út,
en teikna hana upp að nýju og sendið okkur það
blað með utanáskriftinni:
ÆSKAN, krossgáta,
Pósthólf 14,
Reykjavík.
S. H. Þ.
321