Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1973, Blaðsíða 20

Æskan - 01.03.1973, Blaðsíða 20
Mikill matmaður Lúðvlk XIV. var mikill matmaður, og sagði hertogaynjan af Orleans einu sinni: — Ég hef séð konunginn borða í eina máltíð súpu af 4 diskum, kúffull- um, þar á eftir heilan fasana, tvaer stórar sneiðar af svínakjöti, lambakjöt með sósu og lauk, heilan disk af kökum og að lokum ávexti og harðsoðin egg. Áður en Lúðvík XIV. varð myndugur, fór móðir hans með stjórn. Einn dag sagði hún við son sinn: — Sonur, þú verður að kappkosta að líkjast afa þín- um, en ekki föður þínum. — Hvers vegna segir þú þetta? spurði Lúðvík undrandi. — Af þvi að fólkið grét, þegar Hinrik IV. dó, en hló, þegar Lúðvik XIII. dó. Bræðurnir þrír Lúðvík XIV. spurði einu sinni einn af hirðmönnum sinum: — Hvenær er það annars, sem konan yðar á að fæða barnið? Hirðmaðurinn hneigði sig lotningar- fullur og svaraði um hæl: — Þegar yðar hátign þóknast. Liðsforingi, serh misst hafði annan handlegginn i striði, kom á fund Lúð- víks XIV. og spurði, hvort hann gæti ekki fengið eftirlaun. — Ég skal athuga, hvað ég get gert fyrir yður, svaraði konungur. — Yðar hátign, svaraði liðsforinginn, — ef ég hefði sagt: Ég skal .athuga, hvað ég get gert, þegar ég átti að ráð- ast á óvinina, þá hefði ég báða hand- leggi nú og þyrfti ekki á eftirlaunum að halda. Hann fékk strax eftiriaunin. Pað ríkti sorg í landinu, því að prinsessan var týnd. — Hún var einstakiega fögur og jafn góð og hún var falleg. En álfkonan illa, Grímalda, móðg- aðist dag nokkurn og hún varð afbrýðisöm og snart prinsessuna með töfrastafnum sínum, og þá gerðist það: — Föt prinsessunnar breyttust í vængi og hún flaug upp [ loftið og alla leið til hallar álfkonunnar, og þar varð hún að dúsa. Margir hugrakkir og göfugir ungir menn ætluðu að frelsa prinsessuna, og þeir fóru um skóga og yfir vötn, unz þeir komu til hallarinnar. Hún stóð við fallega tjörn og við tjörnina var Iftill silfurbátur, sem gat borið einn mann, en ekkl fleiri. og ungu mennirnir sigldu hver af öðrum til hallarinnar, en úr henni heyrðist yndis- legasta tónlist og söngur. En enginn kom aftur, og enginn, sem hafði hlustað á sönginn, gat slitið sig frá honum. Allir urðu þeir að fara til hallar álfkonunnar, og þar hurfu þeir. Þótt sorg hefði áður ríkt f landinu, varð hún enn meiri nú, þvf að foreldrarnii' syrgðu efnilegu ungu synina sfna. Þar var líka malari, sem átti þrjá syni, sem hétu Hans, Pétur og Páll, og þeir voru myndarlegir og duglegir piltar. „Við verðum samferða," sögðu þeir, „þá getum við hjáipazt að og barizt gegh göldrunum frekar en hver f sínu lagi.“ Svo lögðu þeir upp i leiðina löngu sem svo margir á undan þeim, en þeir voru óhræddir og héldu, að allt færl vel. Þeir mættu gamalli konu, þegar þeir höfðu gengið f gegnum stóran skóg. Hún var sein f vöfum og þreytuleg að sjá, enda bar hún þunga byrði á bakinu. „Eigum við ekki að hjálpa gömlu konunni með byrðina?" hvfslaði Páll að Pétri- „Og sóa dýrmætum tíma til einskis!“ svaraðl bróðirinn. „Það kemur ekki 111 málal" En Páll fór samt og tók brennið frá konunni um lelð og hann sagði: „Ég skal halda á byrðinni, gamla kona. Þú ert svo þreytuleg." Hún vísaði honum veg að kofanum sínum, en bræður hans tveir héldu áfrart1 ferð sinni, en eftir stutta stund fundu þeir hvorki stig né götuslóða. Þeir ráfuðú um skóginn alla nóttina, meðan Páll fylgdi konunni heim til hennar. Hún ga* honum að borða og bauð honum að sofa um nóttina, og þar sem hann áleit, a® hann hefði villzt frá bræðrum sfnum hvort eð væri, þáði hann það. Morguninn eftir hraðaði hann sér af stað, og hann hitti fljótlega þræður slna> sem höfðu ráfað vegvilltir alla nóttina og voru bæði þreyttir og úrillir. Þeir héldu áfram göngunni, og mörgum dögum seinna hittu þeir aðra garnl^ konu, sem bað þá um eitthvað að borða. 18 A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.