Æskan - 01.03.1973, Qupperneq 29
THOR HEYERDAHL
K
eyerdahl er fæddur 6. október 1914 f Larvfk I
Noregi. Foreldrar hans voru reglusöm á gamla
vísu og vöndu hann snemma við stundvlsi. Þau
hugsuðu mikið um, að drengurinn yrði hraustur, og keyptu
n°kkrar geitur, svo að þau gætu gefið honum geitamjólk,
ÞW að geitamjólk var talin hollari en kúamjólk. Thor ólst
að mestu leyti upp með fullorðnu fólki.
..Þegar ég verð stór og fer að ráða mér sjálfur, þá ætla
^9 að ferðast langt burt, þangað sem pálmarnir vaxa og
ne9rarnir búa," sagði hann einhvern tima, og það gerði
hann.
Árið 1933 fór Thor i háskólann i Osló og lagði stund á
dýrafræöi. Þegar hann hafði lokið námi rétt fyrir stríðið,
hann til Suðurhafseyja og dvaldi þar um það bil eitt
^r- Hann lærði mál eyjabúa og margt um þjóðhætti þeirra
°9 menningu.
Hann hlustaði á þjóðsögur þeirra, um fræga forfeður,
Sern komið hefðu um langan veg á skipum undir forystu
Höfðingja, er Tiki hét, sonar sólarinnar. Þegar Thor kom
S;ðar til Perú, rakst hann á sögur um höfðingjann Kon-Tikl.
^0r setti saman mikið rit um kenningar slnar um uppruna
'°Ua Suðurhafseyja og rakti uppruna þeirra til Ameriku.
J^enn sögðu, að þetta gæti ekki staðizt, þvi að hinir fornu
^Uar Ameriku hefðu ekki haft haffær skip.
Thor vissi, að sumir Indiánar höfðu lengi notað fleka úr
a|saviði. Hann lét smfða Kon-Tiki-flekann og sigldl á hon-
Urn yfir hafið meira en átta þúsund kílómetra leið til þess
sanna mál sitt. Ferðin vakti mikla athygli, og ferðasagan,
Sern Thor skrifaði, varð heimsfræg. Hann safnaði miklu af
rngripum bæði á Suðurhafseyjum og I Perú, og margt
er undarlega líkt.
Seinna fór Thor til Páskaeyjar og rannsakaði hinar risa-
v°xnu fornu steinstyttur þar. Þessar styttur hafa lengi
verið mönnum ráðgáta, til dæmis hvernlg þær voru færðar
til og höggnar úr berginu.
Thor vingaðist við höfðingja á eynni og lét hann sýna
Thor, hvernig þetta var gert og áætlaði Heyerdahl, að það
tæki tólf menn eitt ár að höggva eina styttu með hinum
fornu aðferðum. Eyjarskeggjar sýndu honum einnig hvemig
steinblokkirnar voru fluttar með reipum og vogarstöngum
og grjóti, sem sett var undir þær. Thor flutti eina styttu
með hjálp tólf manna og lyfti henni á stall. Nú stendur
stytta þessi ein á upphaflegum stalli.
Árið 1969 fór Thor I sjóferð á papýrusbáti, sem gerður
var eftir gamalli egypzkri fyrirmynd. Hann var 15 metrar á
lengd og 5 metrar á breidd. Bátur þessi var smiðaður I
eyðimörkinni hjá pýramídunum, og var hann bundinn
saman með sefi, og gat borið mörg tonn. Á honum var segl
eins og Egyptar höfðu notað i fornöld.
Á bátnum með Thor voru sex menn frá jafnmörgum
löndum. Þeir lögðu af stað frá Safi I Marokkó, mjög gamalll
höfn, sem var mikill siglinga- og verzlunarstaður á dögum
Fönikíumanna. Ra lenti I vondum veðrum og miklum sjó-
gangi á Atlantshafi. Báturinn komst til Kanarleyja og fram
hjá Grænhöfðaeyjum, en þá komu fram gallar i þátnum,
gallarnir virtust smávægilegir, en reyndust vera alvarlegir,
þegar fór að reyna á bátinn til lengdar I miklum sjógangi.
Ekkl hafði verið farið nógu nákvæmlega eftir gömlum
fyrirsögnum við smiði bátsins. Þegar þeir félagar höfðu
verið 57 sólarhringa á siglingu og farið um 8 þúsund klló-
metra, urðu þeir að yfirgefa bátinn, en papýrusinn, sem
báturinn var gerður af, var enn óskemmdur af volkinu.
En Thor Heyerdahl lét ekki hugfallast. Hann gerðl annan
bát úr sama efni, Ra II, og á honum komst hann alla leið.
Þorvarður Magnússon.
Kanntu að teikna?
^a er loks komið að því, að þið getið teiknað hana kisu
9 hann afa lika. Reynið nú og sjáið, hvernig tekst til.