Æskan - 01.03.1973, Page 33
11. atriði Lifgun úr dauðadái
Stundum er unnt að bjarga mannslífi, ef einhver
hættir að anda, með lífgun úr dauðadái. Til þess eru
margar leiðir, en við sýnum ykkur hér aðferðina, sem
kölluð er Holgers-Nielsonar-aðferðin.
Loftinu er þrýst inn í lungun með þvl að lyfta
handleggjunum, og þrýst úr þeim með þvl að ýta
brjóstholinu til jarðar.
Eins og sjá má á myndinni, er sjúklingurinn lagður
ú grúfu eftir að allir aðskotahlutir hafa verið fjar-
lægðir frá vitum hans og föt hans losuð um mitti
og háls.
Aðstoðarmaðurinn krýpur við höfuð sjúklingsins
og snýr að fótum hans. Síðan setur hann hendurnar
á bak sjúklingsins, rétt fyrir neðan herðablöðin,
þannig að þumalfingurnir snertist, og þrýstir á, fram
og aftur með útrétta handleggi, likt og róandi maður.
Hann lætur hendurnar líða niður með siðum sjúkl-
ingsins og tekur undir olnboga hans, þegar hann
hallar sér aftur á bak og lyftir höfði sjúklingsins um
leið. Þetta á hann að gera án þess að lyfta brlngu
sjúklingsins frá jörðinni.
10—12 sinnum á minútu er rétt að halda þessu
áfram, unz andardrátturinn verður eðlilegur.
12. atriði Biæðingar
Blæðing getur verið úr slagæð, bláæð eða háræð.
Slagæðarblæðing er alvarlegust. Blóðið streymir frá
hjartanu I Ijósrauðum strauml.
Það er oft hægt að stöðva blæðingar með þvi að
þrýsta á sárið sjálft. Það getum við gert, ef ekki er
neinn aðskotahlutur, eins og glerbrot, I sárinu.
Rétt er að búa um fingur sinn og þrýsta á sárið,
unz blæðing hættir. Þá er búið um sárið. Hérna til
vinstri sjáið þið, hvernig það er gert.
Það er líka unnt að stöðva blæðlngu með þvi að
þrýsta á vissa hluta likamans, þá staði, þar sem
aðalslagæðar liggja við bein. Þá veldur þrýstingurinn
þvi, að slagæðin þrýstist að beininu, æðin lokast og
blæðingin hættir.
Efst til hægri sést, hvernig á að stöðva slagæðar-
blæðingu i fótlegg. Ef þrýstingurinn er nægilegur,
stöðvast blæðingin.
Myndin neðst sýnir, hvernig á að stöðva slagæðar-
blæðingu úr handlegg. Þá á að þrýsta á rétt fyrlr
neðan olnbogann.
Gætið ykkar mjög vel, þegar þið ákveðið,
bezt sé að þrýsta á slagæðar.
31