Æskan - 01.03.1973, Qupperneq 37
Tilraunir með Ijósmyndir voru gerð-
ar 1860 með vélum, er líktust Zoetrope,
hinu lifandi hjóli, af Bandaríkjamann-
inum Coieman Sellers, en þvl miður
h'istókust þaer.
Annar Bandarlkjamaður, Thomas Edi-
s°n> kom svo fram með slna kvikmynda-
yél 6. október 1889. Þessi vél sést hér
a hiyndinni, og notaði Edison filmur I
vélina gerðar af Eastman Kodak.
Fyrst þurfti að horfa i gegnum vélina,
°9 gat þá aðeins einn maður horft á
myndina í einu.
Edison tók strax til við að fullkomna
vél sína, og það kostaði miklar tilraun-
ir og fé.
Mörg afbrigði komu fram af þessari
vél> og loks tókst majór Woodville Lat-
ham áris 1895 að koma með miklar
umbastur á vélinni.
Fn bezta gerðin af þessum gömlu
vélum var gerð af Louis og Augustine
umiére-bræðrunurn, og sýndu þeir slna
vél 22. marz 1895.
Bandaríkjamaðurinn Thomas Arnat
ann upp vél sumarið 1895. Hún var
miklu margbreyttari en hinar vélarnar
°9 var fyrst sýnd opinberlega í Atlanta I
SePtember 1895.
Sv° tullkomnuðu Lumiére-bræðurnir
e lr>a enn meira og höfðu fyrstu opin-
ru kvikmyndasýninguna í desember
Sama ár.
þessi sýning var I París, en sýningin
° 1 otiklu uppistandi, vegna þess að fólk
aré gripis hræðslu, þegar það sá stóra
Ju5rnbrautarlest stefna á sig. Margir köll-
g u a hjálp og margt kvenfólk féll I
n9vit og sýningin varð að hætta.
ysta opinbera sýningin I Englandi
ar haldin 1896, og Louis hinn yngri
Urniére stóð fyrir henni.
Þessi sýning í London tókst mjög vel.
Sama sýning var svo endurtekin með
sömu vélum árið 1936 á fjörutlu ára
afmæli kvikmyndasýninga I Bretlandi.
Afturkippur kom í framþróun kvik-
myndasýninga um skeið eftir 1897. Þá
varð mikill eldsvoði í Charity Bazar I
París 4. maí, og var því kennt um, að
kviknað hefði í út frá kvikmyndasýn-
ingu, sem stóð þar yfir.
Kvikmyndagerðinni og iðnaðinum hef-
ur fieygt fram allt til þessa dags.
Fyrsta stórmyndin var gerð 1897, og
var það mynd um heimsmeistarakeppni
I hnefaleikum I þyngsta flokki. Þetta
var keppni milli Bob Fitzimmons og Jim
Corbetts. Keppnin stóð i tvær stundir,
og myndin var þögul. En fyrsta myndin,
sem gerð var eftir handriti, hét Járn-
brautarránið. Hún tók 15 mínútur og var
tekin 1903.
Fyrsta myndin með tall og tónum var
Jazzsöngvarinn með Al Jolson, og var
hún gerð 1927.
Farið var að sýna litmyndir rétt fyrir
fyrri heimsstyrjöld. Fyrsta myndin var
gerð 1912 og kölluð Delhi Durbar.
Vinnubrögðin voru mjög frumstæð og
var myndin öll handlituð. Þetta var kom-
ið í allgott horf 1935.
Svo var farið að reyna að sýna þri-
viddarmyndir, en þá þurfti fólk að bera
sérstök gleraugu meðan á sýningu stóð.
Þótti það mjög óþægilegt og var hætt
við þá framleiðslu.
En núna eru kvikmyndahús, sem geta
sýnt þannig myndir. Þetta eru Cinerama,
Todd AO og Cinemascope.
Todd AO myndir eru sýndar hér I
Laugarásbíói í Reykjavík.
Það er mikil vinna að taka kvikmynd
núna, og fjöldi fólks verður að vinna
saman til þess. Velja þarf sögu eða
frumskrifa kvikmyndahandrit. Svo þarf
marga leikara, leikstjóra, kvikmynda-
tökustjóra, myndatökumenn, hljóðupp-
tökumenn og tónskáld, sem semur tón-
listina fyrir myndina. Svo þarf kvik-
myndaver og senustjóra. Einnig þarf
stundum að reisa heilar byggingar, svo
að oftast þarf mikla fjármuni til verksins.
Þið sjáið ýmis atriði hér á myndinni,
til dæmis nærmyndir.
Kvikmyndahúsin hafa breytzt mikið
með tímanum og tækni og notkun Ijósa
hefur fleygt fram. Fyrst voru þau lík
leikhúsum, en nú eru sýndar stórar úti-
senur, sem ekki væri hægt að sýna I
leikhúsum. Klú hafa menn meðfærilegr!
vélar en áður, sem hægt er að nota
bæði á sjó og landi.
Eitt frægasta kvikmyndaver I heimi
35
■■■