Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1978, Blaðsíða 32

Æskan - 01.05.1978, Blaðsíða 32
APRILVEÐUR ið vitið víst öll, að í aprílmánuði er aldrei hægt að treysta veðrinu. Það er að vísu sjaldan hægt að treysta því, einkanlega hér á Suðurlandi, því að þaö þarf engan apríl til þess, að fernskonar veður sé sama daginn. Til dæmis rigning að morgni, sólskin um hádegið, moldrok um nónið og snjó- gangur að kvöldi. — En aldrei er þetta eins algengt og í apríl. Þá er sólin stundum svo björt og heit, að manni liggur við að halda að sumarið sé komið, en svo kemur allt í einu útsynnings él, svo að bylur ( bárujárninu á þakinu: Stundum er kannski útsynnings rigning þegar maður fer út, og þess vegna hefur maður farið í regnkápuna og sett á sig skóhlífarnar eða bomsur, ef maður er svo heppinn að eiga slíkt til. En það getur vel farið svo, að áður en maður er kominn heim aftur sé komið glaða sólskin, og þá mætir maður kannski eintómu léttklæddu fólki í sumarfötum, sem hefurfarið að heiman síðar en maður sjálfur. Og þá finnst manni leiðinlegt að vera svona klæddur. Jæja, þetta vitið þið nú öll svo vel, að ég þarf ekkert að orölengja um það. Og svo vitið þið annað um veðrið íapríl, — að aldrei hættir manni frekar við að fá kvef en þá, og allt kemur þetta af veðrinu. — En nú ætla ég að segja ykkur hvers vegna veðrið er svona duttlungafullt í apríl. Einu sinni fyrir mörgum, mörgum árum, þegar alls staðar var krökkt af jólasveinum, álfum, flugdrekum, úti- legumönnum og alls konar þessháttar lýð hérna á jörðinni, sat veðurmaður- inn inni í baðstofu hjá sér og var að hugsa um, hvernig hann ætti að haga veðrinu í næstu hundrað þúsund ár. Veðurmaðurinn var ákaflega vold- ugur maður. Hann hafði fengið skip- un um að búa til alls konar veður, sem nota mætti hér á jörðinni, og af því að hann var svo vitur, þá gat hann smíðað sér ýmiss konar vélar, sem gerðu ótal tegundir af veðri. — Hérna hef ég stóran dunk fyrir rigninguna, en ég verð að sjá um að hann leki ekki, hugsaði hann með sér. — Annars verður alltaf hellirigning á jörðinni, alveg eins og dagana fyrir Nóaflóðið. — En ef ég gæti vei að krananum þá fær jörðin alveg hæfi- legt regn — svo að grasið grói og „Snorkel" er pípa sem menn nota tll þess að ná tll s(n loftl þegar þelr eru í kafl. Fílarnlr nota ranann á sór sem loftpípu og liggja oft í kafl í tjörnunum með endann á rananum upp úr vatnsborðlnu tll þess að geta náð í loft. Flelri dýr í Afríku nota sðmu aðferðlna: að hafast vlð í kafl með naslrnar elnar upp úr. verði grænt og blómin þrífist. Og ekki má gleyma rykinu á götunum 1 Reykjavík eða á söndunum. Hvernig færi aumingja fólkið að, ef ekki kaerni dropi úr lofti þar? Það mundi víst kafna. — En þú lætur víst ekki rigna mikið i á veturna? spurði lítill álfur, sem kom til veðurmannsins við og við. — Vitanlega ekki. — Ég bjó mér hérna til frystivél, og með henni gerJ ég rigninguna að snjó. Og svo hef é9 hérna stóra dós af höglum handa úr- synningnum, því aö hann gerir sig ekki ánægðan með minna, svaraði veðurmaðurinn og benti á frystinn. Æ, hvað hann var kaldur. Það var nærri því eins og maður brenndi sig a fingurgómunum þegar snert var a honum. Ég hef hugsað mér, að best sé að nota sem mest snjó í janúar o9 febrúar, og svo auðvitað talsverðan slatta í desember, því að allir vilja hafa hvít jól, sagði veðurmaðurinn. Og svo blanda ég miklu af frosti saman við snjóinn og læt svo pínulítið af sólskim fylgja með, eftir efnum og ástæðum- Ég verð að spara sólina yfir skamm- degið, því að annars yrði ég upp1' skroppa þegar sumarið kemur. — Ætlarðu þá að láta sólina skína allan sólarhringinn í sumar? spurði | annar álfur. — Já, norður á pól geri ég það, en þarna norður á Melrakkasléttu fá Þeir miðnætursól í nokkra daga. Ég verð að spara hana. En allir fá jafnmör9 pund af sól á ári, hvar sem þeir eru — það er að segja ef hún kemst til þeirra- Þeir sem fá mest af rigningu og skýjaþykkni, fá minni sól — af því að skýin gleypa hana. — Um páskana verð ég oftast að lofa landsynningnum að leika ser
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.