Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1978, Qupperneq 37

Æskan - 01.05.1978, Qupperneq 37
~~ Heim til ríka mannsins, svaraði potturinn, og áður en konan vissi, hvaðan á sig stóð veðrið, var hann st°kkinn út. Bóndakonan var að taka brauð úr ofninum á stór- tylinu. . ~~ En fallegur pottur, sagði konan, og hún lagði í hann e,tt brauð, og annað, og það þriðja. sagði potturinn: — Ég hoppa. Ég skoppa. ~~ Hvaö segirðu? sagði konan. — Hvert hopparðu? ~~ Heim til fátæklingsins, kallaði hann, og áfram hljóp nann. ^átæka konan gladdist, og henni skildist, að þennan p°b yrði hún að hugsa vel um og gæta vel. ^aginn eftir sagði hún: — Æ, ef ég ætti nú mjöl í graut! ~~ Ég hoppa, ég skoppa, heyrðist uppi á hillu. ~~ Hvert hopparðu? spurði konan. Ut á akra ríka bóndans, og innan skamms stóð svarti Potturinn þar. inn þreskingarmannanna sá hann og sagði: — En le9ur pottur, og hann barmafyllti hann af mjöli. Það var ^ik*. að fátæki maðurinn átti mjöl í grautinn sinn allt , ~~ Ég hoppa, ég skoppa, sagði potturinn, og bar mjölið eirn til fátæklingsins. ~~ Skrúbbaðu mig og stilltu mér á hilluna, sagði pott- ^nn, og konan varð svo hrifin af að sjá hann aftur, að ,. n m3rgskúraði hann og þvoði. Næsta morgun fengu ®ki maðurinn og kona hans bæði brauð og graut í Þýska vikublaðið „Neue Revy“ segist hafa það eftir áreiðanlegum heimiidum að aftur sé fjölgunar von hjá sænsku konungshjónunum í júní á þessu ári. Blaðið segir ennfremur að þetta komi engum á óvart því konungshjónin hafi lýst því yfir að þau óski sér að eiga mörg börn og ekki sé ráðlegt að bíða lengi með það því Silvia er 34 ára. matinn, og konan sagði: — Við seljum mjölið fyrir leigunni. En þá heyrðist af hillunni: — Ég hoppa, ég skoppa, og andartaki seinna var potturinn á leiðinni heim til ríka bóndans. Ríki bóndinn stóð úti og taldi aurana sína, en þá birtist potturinn allt í einu. Bóndinn setti peninga í pottinn, sem sagði, þegar hann var fullur: — Ég hoppa, ég skoppa, og áður en bóndinn vissi, hvað gekk á, var potturinn stokkinn heim til fátæka mannsins. Þar ríkti vitanlega glaumur og gleði. Peningarnir voru faldir og potturinn þveginn. Næsta dag hrópaði potturinn aftur: — Ég hoppa, ég skoppa, og áður en konan vissi, hvaðan á sig stóð veðrið var hann lagður af stað heim til ríka bóndans. Ríki bóndinn var ekki kominn á fætur, þegar konan hans kom stökkvandi inn og sagði: „Potturinn er kominn aftur! Hann hefur hnuplað frá okkur brauði, mjöli og peningum! — Ég ætla að brjóta þennan andstyggðar pott, sagöi bóndinn. Hann settist jafnbreiður og sver og hann var upp í pottinn. — Ég hoppa, ég skoppa, sagöi potturinn. — Hoppaðu þá yfir stokka og steina! kallaði bóndinn, en það hefði hann ekki átt að segja, því að potturinn hljóp yfir stokka og steina. Bóndinn hljóðaði og grét, og náttskyrtan flögraði um leggina, en potturinn hvarf með ríka bóndann og hefur ekki sést upp frá því.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.