Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1978, Page 30

Æskan - 01.10.1978, Page 30
Sonur ekkjunnar 17. Hesturinn hélt áfram: „Farðu upp í herbergi hér fyrir ofan okkur og náðu í elstu og slitnustu herklæðin, sem þar hanga. Sverð skaltu einnig velja þér á sama hátt." Þetta gerði strákur. 19. ,,Getur þú lyft mér upp?" spurði hesturinn, og varð hann mjög ánægður þegar strákur gat það fyrirhafnarlítið. „Jæja, taktu með þér steininn, hornið, hrísvöndinn og vatnskönnuna, láttu á mig hnakkinn og svo förum við af stað." 18. Næst sagði hesturinn stráknum að baða sig upp úr katlinum, og er hann hafði gert það varð hann bæði miklu sterkari og fríðari en hann hafði áður verið. 20. Þeir fóru af stað og fóru greitt. Eftir nokkra stund segir hesturinn: ,,Mér heyrist eitthvað koma á eftir okkur, sérðu nokkuð?" „Já, það eru einhverjir að elta okkur," segir strákur. „Líklega er það tröllið með eitthvað af sínu fylgdarliði," segir hesturinn. Skemmtileg myndasaga í litum

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.