Æskan - 01.10.1978, Síða 30
Sonur ekkjunnar
17. Hesturinn hélt áfram: „Farðu upp í herbergi
hér fyrir ofan okkur og náðu í elstu og slitnustu
herklæðin, sem þar hanga. Sverð skaltu einnig velja
þér á sama hátt." Þetta gerði strákur.
19. ,,Getur þú lyft mér upp?" spurði hesturinn, og
varð hann mjög ánægður þegar strákur gat það
fyrirhafnarlítið. „Jæja, taktu með þér steininn,
hornið, hrísvöndinn og vatnskönnuna, láttu á mig
hnakkinn og svo förum við af stað."
18. Næst sagði hesturinn stráknum að baða sig
upp úr katlinum, og er hann hafði gert það varð
hann bæði miklu sterkari og fríðari en hann hafði
áður verið.
20. Þeir fóru af stað og fóru greitt. Eftir nokkra
stund segir hesturinn: ,,Mér heyrist eitthvað koma á
eftir okkur, sérðu nokkuð?" „Já, það eru einhverjir
að elta okkur," segir strákur. „Líklega er það tröllið
með eitthvað af sínu fylgdarliði," segir hesturinn.
Skemmtileg myndasaga í litum