Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 12

Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 12
Það var seinast í maímánuði í litla bænum Alpenstein. Bændurnir voru um það bil að byrja ferðir sínar upp í engin hátt uppi í fjöllunum fyrir ofan skógarbeltin. Á hverju ári gættu þeir ánna í hinum fersku sumarbeiti- löndum. Karlmenn og drengir bjuggu í fjalla- hlöðum og kofum þar til fyrsti snjór nýs vetrar rak þá niður í dalina aftur. Peter Clause hallaði sér að dyra- stafnum. Faðir hans var önnum kafinn við að búa um hveitið, sykurinn og saltið sem þeir notuðu fyrir kvikfénað- inn í sumarbústaðnum. „Pabbi?“ „Hvað er það Pétur?“ „í hvaða böggul á ég að láta máln- ingardótið mitt?“ Pabbi hans Péturs hætti að vinna og leit á son sinn. „Við erum bændur - ekki listamenn" sagði hann hljóðiega. „Ég elska bæði störfin," svaraði Pétur, „bæði að mála og eins sveitastörfin." Faðir hans strauk höfuðið. „Þú getur notað pokann þarna við eldavélina. Ég sé ekki hvort sem er hvernig þú mundir hafa tíma til listmálunar. Núna er ég til dæmis að undirbúa störfin á morgun. Það var margt sem Pétur langaði að mála - grænu engin þakin bláum og gulum villtum blómum, snjóugir tindar fjallanna - litlu ostahreysin. Hann leit upp fjöllin hálf hulin fjallalæðunni og teygaði fjallaloftið, fjallatindarnir trónuðu yfir smáþorp- unum. „Ég skal finna ráð,“ sagði hann við sjálfan sig. Ég er sterkur og get unnið starf mitt og málað myndir mínar. Það verður að vera tími fyrir hvorttveggja. Hið langa harða klifur byrjaði snemma næsta morgun. Hljómur kúa- bjallanna og köll manna og drengja hljómuðu í loftinu. Flokkurinn hélt nú í fylkingu einn af öðrum upp af slóðan- um sem lá frá þorpinu upp gegnum skógarslóðana upp háu fjallaskörðin. Og eftir því sem þeir nálguðust býlið óx spenningur Péturs. „Þarna er það,“ hrópaði hann þar sem hann tróð sér á milli kúnna og geitanna sem höfðu farið þetta langa ferðalag með þeim. „Allt er í lagi! Pabbi horfðu á fjalla- tindana sem Ijóma af seinustu geislum sólarinnar. Er ekki fallegt hérna uppi?“ Faðir hans svaraði hugsandi „Já, það er gott að vera kominn. En nú verðum við að koma skepnunum fyrir undir nóttina. Það er mikið að gera.“ Pétur vann mikið á sumarbýlinu frá því sólin reis þar til hún hvarf bak við fjallatindana í fjarska. Á hverju kvöldi þegar faðir hans lá sofandi á heyloftinu þá kom Pétur varkár með litatúbur sínar og pensla. Og í mildu kertaljósi málaði hann þar til hann gat ekki lengur haldið sér vak- andi. Og með tímanum varð hann þreytu- legur af langvarandi svefnleysi. Morg- un einn átti faðir hans í erfiðleikum með að vekja hann. „Pétur vaknaðu, klukkan er orðin fimrn!" „Ég kem,“ muldraði Pétur syfjulega. Hann burstaði heyið úr hári sínu og fötum og skreið niður stigann af hey- loftinu. Eftir að hann hafði kveikt eld þá hellti hann kaffi og mjólk í stóran pott. Og á meðan það hitnaði, tók hann fram ost og brauð og lagði það á borðið. Meðan þeir neyttu morgunverðar fylgdist faðir Péturs með honum. „Kannski ættir þú að fara aftur niður í dalinn," sagði hann lágum rómi. Utan við sig af orðum pabba síns grét Pétur mikið, „Ó, leyfðu mér að vera kyrr. Ég elska að vera hér,“ sagði hann. 12
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.