Æskan - 01.02.1983, Side 25
RAUÐI
KROSS
ÍSLANDS
Hættur af rafmagni
og
skyndihjálpin
Góðir lesendur!
I síðustu grein Rauða krossins
var sagt að efni um rafmagnsslys
yrði birt síðar og skal það nú efnt.
A þeim mörgu skyndihjálparnám-
skeiðum sem ég hef haldið hefur
komið fram, að fólk vill vita sem
mest um hættur af rafmagni og
hvar þaer leynast í umhverfi okkar.
lJrn þetta efni ætla ég að fjalla lít-
^e9a, en svo viðamiklu efni sem
Þetta er verða ekki gerð ýtarleg skil
' svona stuttri grein.
/ \
Áður en lengra er haldið skulum
við til gamans fræðast ögn um
þetta fyrirbæri sem við köllum raf-
magn og er orðið svo snar þáttur í
daglegu lífi okkar, að sumir tala nú
um það sem „þarfasta þjóninn".
Hverjum hefði dottið í hug fyrir um
100 árum, að rafmagnið myndi
verða svo að segja undirstaða til-
verunnar í dag. En verum þess
minnug að viðsjált er rafmagnið og
slys geta hent ef ógætilega er farið.
Hvað er rafmagn?
Öll efni eru byggð upp af atóm-
kjörnum og rafögnum sem sveima í
kringum kjarnann, nefndar elek-
trónur. Þær elektrónur sem fjærstar
eru kjarnanum hafa þann eiginleika
að geta borist frá einum kjarna til
annars og með vissum hætti,
spennumyndun, getum við haft
áhrif á hegðun þessara frjálsu
elektróna, fengið þær til að streyma
eftir hinum ýmsu brautum, sem við
25