Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 36
„DRAUMAPRINSINN EFTIRMINNILEGUR“
segir Ragnhildur Gísladóttir
Þaö kemur ekki á óvart aö lesendur Æskunnar skuli hafa
kosið Ragnhildi Gísladóttur vinsælustu söngkonu ársins
1982. Hún er fjölhæfur söngvari, býr yfir miklum raddstyrk
og góðri túlkun. Flest þeirra laga, sem hún hefur sungið,
hafa notið mikilla vinsælda. Hér má til dæmis nefna lagið
Draumaprinsinn úr kvikmyndinni Okkar á milli í hita og
þunga dagsins, sem trónaði vikum saman á toppi
vinsældalista félagsmiðstöðva á síðasta ári.
Þetta er í annað sinn sem Ragnhildur Gísladóttir hlýtur
nafnbótina „Vinsælasta söngkona ársins“ hjá fjölmiðli. í
fyrra skiptið var það í vinsældavali Dagblaðsins og Vikunn-
ar. Ragnhildur er 26 ára (eins og Bubbi). Söngferil sinn hóf
hún fyrir fimm árum á plötunni „Út um græna grundu“, sem
Gunnar Þórðarson útsetti. Síðan hefur hún komið víða við,
verið með á fjölmörgum hljómplötum og sungið með hljóm-
sveitum. ( dag spilar hún með „Grýlunum" og er fyrir
mörgum leiðtogi þeirra.
„Við vorum að taka upp nýja plötu", sagði Ragnhildur í
stuttu spjalli við okkur eftir að hafa tekið við hamingjuósk-
um frá Æskunni. „Hún á að koma út 1. apríl nk. Það verður
vandað meira til hennar en þeirrar fyrri og líklega verður
hún fjölbreyttari".
- Vinnurðu eingöngu við tónlist?
„Já. Ég kenni 7-12 ára börnum í Vesturbæjarskóla
tónmenntir og svo syng ég, vinn við upptökur og útsetning-
ar á músík og það sem þessum bransa fylgir".
- Margir unglingar hafa tekið upp klæðnað ykkar
Grýlanna. Hvað viltu segja um það?
„Já, það er ekki óalgengt að hljómsveitir hafi áhrif á
klæðaburð. Tísku- og tónlistarheimurinn eru oft nátengdir.
Ef krökkunum finnst sniðugt að klæða sig eins og við, þá er
það allt í lagi. Stundum hefur komið fyrir að hringt hefur
verið í okkur Grýlurnar og við spurðar hvar hægt væri að
kaupa þenna Grýluklæðnað. Það er bara gaman að
þessu“.
- Geturðu sagt okkur af hverju þú syngur bæði um
Benóný og Benjamín í laginu Draumaprinsinn. Voru það
mistök?
„Nei, ekki mistök. Það átti að vera viss húmor í þessu hjá
Magnúsi Eiríkssyni. Mér finnst gaman að smá sprelli sem
vekur spurningar hjá fólki“.
- Er Draumaprinsinn kannski eitt af þínum uppáhalds-
lögum?
Ragnhildur Gísladóttlr
- Já, ég get ekki neitað því. Hann er mér eftirminnilegur
af ýmsum ástæðum. Andinn var til dæmis mjög skemmti'
legur meðan á upptökum stóð og svo eru margar raddir i
laginu sem gaman var að fást við“.
- Finnst þér unglingarnir í dag vera öðruvísi en þegar
þú varst á þeirra reki?
„Nei, þetta er sami hópurinn. Það er gaman að skemmta
þeim. Ég er bjartsýn á þessa krakka. Mér leiðist allt svart-
sýnisraus", sagði Ragnhildur Gísladóttir að síðustu.
- E.l.
36