Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 21

Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 21
HVER VERÐUR FYRSTUR I MARK? Hlaupararnir nr. 1, 2 og 3 hlaupa af stað en hver þeirra verður fyrstur? peninginn sinn í vasanum, fann hann til sárrar kvalar yfir því að hafa ekki fyllt alla vasa sína af gulli. Svo kom að því, að hann tók að ásaka sjálfan sig fyrir þá heimsku að láta hafa sig til að ganga langan og erfiðan veg á hverjum degi hvernig sem viðraði til að sækja einn auvirði- legan gullpening, þegar hægðarleikur var að fá fullan poka með sömu fyrir- höfn. Vinnu sína var hann hættur að stunda, því að nú hafði hann nóg vinnu- fólk, sem gat tekið af honum ómakið. Sí og æ velti hann því fyrir sér, hvílík heimska það væri fyrir mann, sem dag- lega sæi ótæmandi auðæfi fyrir fótum sér og þyrfti ekki annað en rétta út höndina eftir þeim, að hafa svona mikið fyrir að verða ríkur. Það eina, sem hann tók sér fyrir hendur, var að sækja gullpeninginn, og var hann nú orðinn svo latur, að honum veittist það afar örðugt, enda þótt hann færi það nú orðið ríðandi og gerði ekki annað, þegar heim kom en hvíla sig á silkikoddum. Annað var það enn, sem hann hugs- aði mikið um auk gullsins í pottinum. Hann vildi fá sér konu, en vissi ekki hverri hann ætti að auðsýna þá náð að kvænast. Bændastúlku vildi hann alls ekki líta við, en vissi hins vegar ekki, hvort sér mundi til nokkurs að fara slíks á leit við konur af háum stigum. Að minnsta kosti fannst honum ekki mundu tjá að hugsa til þess, meðan hann væri búinn sem bóndi, enda þótt vel væri vandað til fatanna. En þar var líka úr vöndu að ráða, þar sem hann var bundinn við að sækja peninginn á hverjum degi og var þess vegna, að honum fannst, eins og hundur í bandi. Hann fór nú að leggja niður fyrir sér, hvort nokkur hætta gæti í raun og veru stafað af því, ef hann brygði út af boðinu og tæki einu sinni pokafylli. Enginn þurfti að vita það og enginn var sá, sem vissi, að hann var bæði nógu heimskur og ráðvandur til að láta sér nægja einn pening á dag. Það lá í augum uppi, að eina skyn- samlega ráðið, sem hann gat tekið, var að hafa með sér stóran poka, þegar hann færi næst - hver gat vitað það? - Enginn - potturinn var jafnfullur fyrir það. Eða átti hann heldur að reyna fyrir sér og fara hægt í sakirnar - það yrði máske affarasælla. Næsta dag tók hann tvo gullpeninga í staðinn fyrir einn. Hann leit í kringum sig flóttalega, en ekkert óvanalegt bar við. Þá var hann viss um, að engin hætta var á ferðum. Daginn eftir tók hann þrjá - svo fjóra, og ekki bar enn á neinu. Svona hélt hann áfram heila viku, og aldrei varð hann var við neitt óvanalegt. Það leit ekki út fyrir, að hann ætti að verða fyrir neinni hegningu, svo að hann færði sig upp á skaftið og tók nú fimm, svo sex - allt voru þetta hundrað krónu peningar, svo að hann átti nú álitlega upphæð. Nú fannst honum ekki vanta nema herslumuninn að taka einu sinni nóg í einu, svo gæti hann fengið sér greifa- eða jafnvel konungsdóttur fyrir konu - nóg var af gullinu. Svo tók hann með sér tvo stóra poka, þegar hann fór næst upp í rúst- irnar. Hann gekk niður þrepið, inn í hvelf- inguna, gegnum ganginn og stóð nú í klefanum við pottinn. Hann var eins og fyrr, barmafullur af glóandi fögru gull- inu, og ekki sá á, að tekið hefði verið af þvl dag eftir dag í mörg ár. Það var eins og augum ætluðu út úr höfðinu á unga manninum af taum- lausri ágirnd - það var hægðarleikur fyrir hann að eignast öll þessi ógrynni fjár - það hafði sýnt sig, að engin hætta var á ferðum - því átti hann þá að draga sig lengur á því? Þessi mikli fjársjóður mátti ekki lengur liggja þarna ónotaður. Svo tók hann pokana, opnaði annan þeirra og fór að ausa gullinu í hann með báðum höndum. - Heyrðist þá 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.